19/06/2025
ATH Þessari síðu verður lokað á allra næstu dögum.
Velkomin á nýju síðuna okkar ❤
Fagurhólsbrekka er nafnið á fyrirtækinu okkar og væntalegt nafn á nýju jörðinni okkar sem staðsett er í dásamlega fallegu umhverfi á Flúðum.
Hér ætlum við að halda áfram að miðla hestatengdum upplýsingum eins og innblástur í kennslu, þjálfun, almennu sveitalífi fjölskyldunnar og uppbyggingu á búgarðinum okkar í framtíðinni.
Með þessu ætlum við að loka með síðunum ISLÄNDSK RIDKONST og Íslensk Reiðlist - Hinrik Sigurðsson sem við höfum áður notað og bjóðum alla áhugasama velkomna að fylgja okkur á nýju síðunni í komandi verkefnum.
Við hlökkum mikið til að fást við uppbygginguna og veita vinum okkar og fylgjendum innsýn í sveitalífið. 🐎🐎🐎
Very welcome to our new site ❤️
Fagurhólsbrekka is the name of our brand and our new farm located in beutyful nature close to Flúðir in southern Iceland.
Here we will provide insight in our ranchlife, give information and inspiration on our life with the horses, horsemanship and training while building up our farm in the future.
At the same time we will close our other sites here, Isländsk ridkonst and Íslensk reiðlist-Hinrik Sigurðsson and welcome you to follow us on our new site in the upcoming projects.
we look forward to share our live in the Icelandic countryside woth our friends and followers. 🐎🐎🐎🐎
02/01/2025
Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir skemmtilegt liðið ár.
Nú er nýtt tímabil að hefjast og það er hugur í okkur eins og alltaf :)
Þriðjudaginn 7. janúar kl. 19:30 verður bóklegur tími á Teams.
"Flugstart á vetrarþjálfunina"
Efni tímans er hugsað sem almennur innblástur inn í nýtt þjálfunarár fyrir knapa á öllum stigum.
Áhersla er á ábendingakerfið, skipulag þjálfunar inn í veturinn og lyklar að uppbyggingu reið- og keppnishestsins yfir tímabilið.
Knapaþjálfun fær einnig stóran sess í tímanum, bæði hugarfar og
ýmislegt um jafnvægi og líkamsbeitingu knapans.
Skráning hjá:
[email protected]
[email protected]
eða PM hér á Facebook.
Verð: 2.500 kr.
Verið velkomin og ég hlakka til að hefja nýtt þjálfunarár með stæl
22/11/2024
Uppskriftin að árangri liggur í hugarfarinu, skipulaginu og þeim klukkustundum sem þú setur í góða þjálfun.
Skipulag, markmið, gott hugarfar og fókus.
Í gær átti ég frábært kvöld í einkaviðtölum með knöpum með metnað, brennandi áhuga og eldmóð inn í nýtt tímabil.
Samtölin eru svo skemmtileg og mikilvæg að kvöldið leið eiginlega alltof hratt og frábærlega gaman að fá að taka þátt í vegferð metnaðarfullra knapa í átt að sínum markmiðum.
Næsti dagur sem er frátekinn í viðtalstíma er fimmtudaginn 12. desember.
Tímabókun er best að gera á noona.is/hinriksigu eða hafa samband við mig.
Einn á einn samtal með þjálfara er frábær leið til þess að fá nýjar hugmyndir í þjálfun, hjálp með hugarfarsþætti, skipuleggja þjálfun eða kasta á milli sín hugmyndum um prógramm í gæðingalist líkt og einn knapi vildi nýta sitt viðtal í gær fyrir þátttöku í einni af fjölmörgum deildum sem fara af stað í vetur.
Fullur trúnaður gildir að sjálfssögðu og hátt til lofts þegar kemur að efni að spjalla um.
Hlakka til að heyra frá þér og styðja þig í þinni vegferð
Kv Hinni
Noona | Bókaðu tíma í allt, núna.
Bókaðu þjónustu eða borð hjá uppáhalds fyrirtækjunum þínum, hvenær sem er og hvar sem er inni á noona.is eða Noona appinu.
18/11/2024
Örfáir tímar lausir.
Á fimmtudaginn 21 nóv eru viðtalstímar þar sem hægt er að fá ráðgjöf og aðstoð um þjálfun, markmiðasetningu, hugarfarsþjálfun eða að setja upp þjálfunaráætlun fyrir sig og hestinn sinn.
Dagurinn fyllist hratt en það eru nú þrí tímar lausir klukkan 17:00, 18:00 og 19:00 en aðrir tímar eru þegar bókaðir.
Frábær byrjun á þjálfunartímabilinu að setjast og skipuleggja sig, spjalla um þær áskoranir og verkefnin sem framundan eru með hestinum eða hjá okkur sjálfum.
Tímabókanir á Noona appinu eða PM.
Sjáumst og tökum spjallið
Kv Hinni
17/11/2024
Vilt þú ná árangri með hestinn þinn?
Einkatíma eða reglubundna þjálfun yfir lengri tíma?
Fáðu flugstart á vetrarþjálfunina með góðri aðstoð hvort sem er í reiðtíma eða að setjast yfir skipulag, markmiðasetningu og hugarfarsþjálfun í viðtalstímum sem hægt er að bóka hvar sem þú býrð og taka gegnum fjarfundarbúnað.
Nú er nýtt tímabil að hefjast af fullum krafti og vetrarþjálfunin að síga af stað hjá flestu hestafólki.
Við vorum að opna fyrir tíma komandi mánaða á Noona appinu þar sem hægt er að fara inn og bóka reiðtíma, viðtöl og ráðgjöf á einfaldan og skilvirkan hátt.
noona.is/hinriksigu
Þar inni eru tímar sem í boði er að bóka.
Ég vill einnig benda á nú er hægt að setja sig á biðlista sem virkar þannig að ef tímarnir sem eru opnir og í boði á appinu henta ekki er hægt að skrá sig á biðlistann og þá berst sú ósk um tíma og möguleiki á að hægt sé að verða við því.
Fimmtudaginn 21. nóvember og fimmtudagnn 12. desember verða sérstakir dagar þar sem viðtalstímar eru í boði (fleiri verða eftir áramót).
Það hefur undanfarið orðið sífellt vinsælla að nýta sér það að bóka viðtalstíma þar sem unnið er með "coaching" útfrá óskum og þörfum hvers og eins.
Fara í markmiðasetningu, setja upp þjálfunaráætlun, vinna með
hugarfar, eða ræða einhver sérstök mál sem upp koma í þjálfun eða keppni.
Að ná árangri er engin tilviljun.
Hver og einn knapi getur með góðu skipulagi og skýrri stefnu búið sér til sín eigin afrek.
Setjumst og skoðum það saman.
Bókun á þessa daga er hægt að gera gegnum appið eða með því að hafa samband beint við mig.
Gleðilegan hestavetur og let´s go
Noona | Bókaðu tíma í allt, núna.
Bókaðu þjónustu eða borð hjá uppáhalds fyrirtækjunum þínum, hvenær sem er og hvar sem er inni á noona.is eða Noona appinu.
04/11/2024
Annar gamall og góður föstudagspistill þó það sé ljómandi fínn mánudagur í dag😁
Mér finnst eins og það séu alltaf föstudagar orðið, vikurnar fljúga áfram og ég sé að hesthúsahverfin eru að fyllast af hestum og fólki og það er að færast heilmikið líf yfir hestamennskuna.
Allavega þá er það eitt sem ég var að velta fyrir mér að velta upp í dag, sem ég tel henta glimrandi vel að skoða svolítið nánar nú þegar við erum að setja hrossin í gang eftir hausthvíldina, og starta nýju tímabili.
Það er það sem ég persónulega tel vera alstærsta og mikilvægasta gegnumbrotið sem við fáum í þjálfun og tamningu á hestinum okkar:
Það, þegar við getum búið til tilfinningu/smá þrýsting (feel) í hvaða átt sem er og hesturinn fylgir með, færir sig frá þrýstingnum.
Ég ætla að útskýra þetta betur, náttúrulegt viðbragð hestsins þegar hann finnur stöðugan þrýsting er að ýta sér á móti honum. Þeir þrýsta á móti þrýstingi og verða þungir.
Þegar við getum í staðinn búið til tilfinningu í einhverja átt: getur verið með jafnvæginu fram, aftur, hægri eða vinstri, getur verið með taumnum að hálsi eða bóg, taumtak, eða með fótum að hliðum hestsins og hann skilur það að fylgja þessari tilfinningu í stað þess að ýta sér á móti. Þá getum við í raun sent hestinn í hvaða átt sem er.
Bara það að hesturinn skilji það að færa sig frá þrýstingi sama hvar hann kemur gerir að verkum að við náum stjórn á fótum hestsins sem er eitt það almikilvægasta þegar kemur að leiðtogahlutverki knapans.
Þess vegna segi ég stærsta og mikilvægasta gegnumbrot í allri þjálfun er að hesturinn færi sig frá þrýstingi sama hvar hann kemur.
Með það sagt vill ég minna á að þrýstingur er í raun ekkert sem kemur góðri reiðmennsku við, nema hvað að knapinn hafi stjórn á tóninum í ábendingunni, þ.e. að hann bjóði hestinum sínum upp á léttleika í þessari ábendingu, og þá fáum við léttleika til baka. Ég er þannig mest að tala um tilfinningu (feel).
Nú í upphafi vetrarþjálfunar mæli ég sterklega með því að þið leikið ykkur með þetta þema, að búa til tilfinningu í einhverja átt, og leggja áherslu á að fá hestinn til þess að færa sig með, elta hana.
Trúið mér, þið eigið eftir að upplifa meiri léttleika en áður og opna fyrir fullt af allskonar skemmtilegu.
Byrjið við hendi, bakka, færa fram- og afturhluta, sveigja hálsinn og svo framvegis, svo á baki að gera sama.
Byrja alltaf með því að búa til tilfinningu í áttina sem þið viljið senda hestinn, og svo hvetja smá og hesturinn fylgir.
Munið að hesturinn lærir á umbuninni, þegar ábendingin fer af, en ekki á ábendingunni sjálfri.
Góða skemmtun og ríðið vel 🙂
Hinni
01/11/2024
Æfingin skapar meistarann eða hvað?
(Gammal en gildur föstudagspistill endurbirtur)
Við verðum góð í öllu sem við æfum, sama hvað það er. Það sem við eyðum tíma í, verðum við góð í.
Ég þekki til dæmis einn alveg meiriháttar náunga sem er algjör meistari í að syngja falskt. Hann elskar að syngja, og syngur á hverjum degi en alltaf jafn falskt. Hann er orðinn svo flinkur í því að er meira og minna orðið ómögulegt að breyta því.
Semsagt æfingin skapar meistarann!!!
Ef við erum alltaf í fýlu, hverju verðum við góð í þá? Eða ef við erum alltaf stressuð? Ja þið skiljið.
Í hestamennskunni tel ég þetta vera alveg ótrúlega mikilvægt atriði. Við verðum að vera flink að velja hvað við æfum.
Tíminn sem við getum þjálfað hestinn okkar er mjög takmarkaður. Það er ómögulegt að vera á baki 11 tíma á dag á hesti sínum, hann verður þreyttur og við líka. Svo hver þjálfunarstund telur ansi mikið ef eitthvað á að verða úr því.
Ég er ekki að segja að það þurfi að líta út eins og maður sé að fara inn á völl á Landsmóti í hverjum reiðtúr, alls ekki.
En, við þurfum að vera dálítið nákvæm til dæmis ef við ríðum af stað á hægu tölti, að hugsa “Er þetta nógu gott tölt til þess að það sé þess virði að eyða tíma í að æfa það?”
Er hesturinn slakur, spennulaus?
Ber hann sig sjálfur?
Er takturinn í lagi?
Ef svarið er já, þetta tölt gæti orðið eitthvað… þá er um að gera að halda áfram og æfa það.
Ef svarið er nei, hann er spenntur, stífur á vinstri hlið eða hvað sem gæti verið. Í guðanna bænum ekki láta sem ekkert sé og halda áfram að æfa það!!!!!
Ef hesturinn fær að hanga á vinstri taumnum lengi, í hverju verður hann góður þá????
Ég hef til dæmis oft séð þegar hesturinn stendur ekki kyrr þegar farið er á bak.
Sami hestur dag eftir dag, alltaf fer hann eins að og fyrir rest var knapinn orðinn bráðflinkur í að hoppa á bak á ferðinni í staðinn fyrir að æfa hestinn í að standa kyrr.
Semsagt, veljum hvað við æfum og þá segi ég með góðri samvisku: Æfingin skapar meistarann!!!!
All the best 🙂