Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði

Share

Velkomin á fésbókarsíðu Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði. Hér birtast upplýsingar og fréttir af skólastarfinu.

15/04/2026

Þessi gleraugu fundust fyrir utan Barnaskólann ef einhver kannast við þau þá eru þau inn á skrifstofu ❤️

20/11/2025

Kæru fjölskyldur
Dagur mannréttinda barna er í dag 🥰 Dagurinn er haldinn 20. nóvember ár hvert og er hann helgaður vitundarvakningu og fræðslu um Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna og þau réttindi sem öll börn eiga að njóta.

8 og 9 ára börn hafa í vikunni unnið verkefni í tengslum við mannréttindi. Markmið verkefnisins var að kynnast mannréttindasáttmála Sameinuðuþjóðanna og barnasáttmálanum og opna á umræðu um að öll börn eiga þessi réttindi, hvar sem þau búa og hver sem þau eru.

8 og 9 ára börn buðu öllum nemendum skólans á sýningu á salnum í dag þar sem þau kynntu mannréttindasáttmálann. Afraksturinn hangir nú í anddyri skólans og hér má sjá myndskeið sem við hvetjum öll til þess að horfa á 😍

Það sköpuðst mjög fallegar umræður um það hvers vegna mannréttindi skipta máli og hvernig þau birtist í daglegu lífi okkar, bæði heima og í skólanum, að við berum skyldu til að virða mannréttindi annara og að passa uppá hvert annað.

Þannig sköpum við réttlátari heim fyrir öll 💕

Fyrir áhugasöm er hér ítarefni:

📌 https://barnaheill.is/dagur-mannrettinda-barna/

📌 https://www.barnasattmali.is/is/fyrir-born/barnasattmalinn-a-barnvaenu-mali

📌 https://www.ruv.is/krakkaruv/spila/rettindum-barna-fagnad/38215/bce9bl

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði | Hjallastefnan 29/08/2025

Erum við að leita að þér? 😍

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði auglýsir eftir starfsfólki í frístund skólans. Kjörið með námi og alltaf frí um helgar 😊

Um er að ræða 35 - 50% stöður í frístundastarfi skólans þar sem vinnutími er frá 13:00/13:30 - 16:00/16:30 á virkum dögum. Einnig er möguleiki á að vera nokkra daga í viku í lægra starfshlutfalli/tímavinnu með skóla.

Barnaskólinn í Hafnarfirði er staðsettur í yndislegu umhverfi við Víðistaðatún en starfið í frístund fer mikið fram úti í náttúrinni. Börnin í frístundinni eru á aldrinum 6 - 9 ára en í skólanum starfa einnig 5 ára börn. Starfað er í litlum hópum ýmist inni eða úti þar sem fjölbreytni er í fyrrúmi.

Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstaklingum sem eru tilbúnir að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika 💛

Laun eru samkvæmt Kjarasamningum Hlífar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Vinsamlegast sendið umsóknir í gegnum netfangið [email protected] þar sem fást einnig allar frekari upplýsingar um störfin. Eins má hafa samband símleiðis við skólastýrur Barnaskólans; Hildur 899-9633 eða Ruth 767-0725.

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði | Hjallastefnan Erum við að leita að þér? Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði auglýsir eftir starfsfólki í síðdegis barnastarf með 6-9 ára börnum í frístund. Kjörið með námi og alltaf frí um helgar :) Í boði er 40-50% starfshlutfall með vinnutíma á bilinu 13:00-16:30 alla virka dag...

28/02/2024

Hvað er í matinn?

Við vitum að mörg börn og fullorðnir hafa beðið með eftirvæntingu eftir að hann Sigurjón okkar, kokkur Barnaskólans, myndi gefa út uppskriftabók. Bókin, Hvað er í matinn? er komin út og tileinkuð öllum þeim börnum sem hafa komið í eldhúsið og spurt hvað sé í matinn 💛

Bókin hefur að geyma ógrynnin öll af girnilegum uppskriftum og er nú fáanleg í Barnaskólanum.

Bókin kostar 3000kr. en ágóði af sölu bókarinnar rennur í endurmenntunarsjóð starfsfólks Barnaskólans í Hafnarfirði og þá sérstaklega til þeirra sem greiða í önnur stéttarfélög en kennarasambandið og eiga því lítinn rétt á styrkjum, þar á meðal Sigurjón okkar. En starfsfólk skólans hyggst leggja land undir fót þann 9. maí 2024. Um er að ræða námsferð til Corfu en þar munum við fræðast um beina kennslu ásamt því að fara í skólaheimsóknir.
Þau ykkar sem viljið næla ykkur í eintak af þessari flottu bók:

Leggið inn á eftirfarandi reikning: 0545-14-408936.
Kennitala: 450418-0800
Sendið staðfestingu á millifærslu á eftirfarandi netföng : [email protected] og [email protected]

Bókin er afhent í Barnaskólanum (einnig hægt að nálgast hjá starfsfólki sem þið þekkið) og því er mikilvægt fyrir okkur að fá staðfestinguna senda til okkar og enn betra að þið sýnið okkur þegar þið sækið ❣️

Hlýjar kveðjur ❤
Starfsfólk Barnaskólans

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði Velkomin á fésbókarsíðu Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði. Hér birtast upplýsingar og fréttir af skólastarfinu.

01/06/2023

Kæru fjölskyldur foreldrafélag Barnaskólans minnir á vorhátíðina næstkomandi mánudag 5. júní. Hátíðin er vettvangur fyrir öll börn á 5-9 ára kjörnum skólans og fjölskyldur þeirra til að gera sér glaðan dag 🥰

13/05/2022

Skólagjöld í Barnaskólanum í Hafnarfirði heyra sögunni til 💪💛

Það er einstök gleði að deila með ykkur nýrri ákvörðun bæjaryfirvalda í Hafnarfirði um hækkun á framlagi með hverju barni sem sækir Barnaskólann í Hafnarfirði frá og með næsta skólaári og þar með heyra skólagjöld sögunni til.

Langþráður draumur okkar í Hjallastefnunni og foreldra hefur ræst; sambærilegt fjármagn mun fylgja öllum börnum bæjarins, óháð því hvaða skóla þau sækja. 🙏

“Með þessu hafa hafnfirsk bæjaryfirvöld riðið á vaðið og tryggt öllum skólum sveitarfélagsins réttlátt framlag og við fögnum hjartanlega þessari jafnréttisbyltingu fyrir börn, foreldra, kennara og skóla”, sagði Magga Pála, stofnandi Hjallastefnunnar.

Hún bætir því við að sérlega góð samvinna bæjaryfirvalda, skólastjórnenda Barnaskólans og svo foreldra hafi skipt sköpum í þessari merkilegu niðurstöðu. ❤💙

Þetta stórkostlega framfaraskref var staðfest á fundi Fræðsluráðs Hafnarfjarðar þar sem samþykkt var að rekstrarframlag með barni muni framvegis verða 100% til sjálfstætt starfandi skóla í Hafnarfirði í stað þeirra 75% sem hafa að hluta verið brúaðar með skólagjöldum foreldra.

Hjallastefnan tekur undir það sem fram kemur í fundargerð ráðsins að mikilvægt sé að gæta jafnræðis milli allra barna í grunnskólum óháð því hvert rekstrarframlag skólanna er. Fjölbreytni og valfrelsi skiptir höfuðmáli og Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði er því orðið raunverulegt val þeirra sem kjósa að senda börn sín í Hjallastefnuskóla í bæjarfélaginu - óháð efnahag foreldra.

“Við fögnum þessari mögnuðu staðreynd að bæjarfélagið og þeir sem fyrir það starfa, hafi haft kjark og þor til þess að taka þetta stóra skref ”, sagði Bóas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar.

Sjá fundargerð Fræðsluráðs Hafnarfjarðar frá 11. maí 2022. 9.
https://www.hafnarfjordur.is/stjornsysla/fundargerdir/DisplayMeeting.aspx?id=xSex1NTvCEqsg9kJo_Up_g1&text=

Hraði eða skilningur? 09/03/2022

Sjálfvirkur lesari! Hraði eða skilningur?

Fagmennska í lestrarkennslu svo barn auki við færni sína verður seint umdeild. Lestrarferlið er marg þætt og þar spilar ferli umskráningar lykilhlutverk. Umskráning samanstendur af þáttum sem þróast hjá barni hver á eftir öðrum, hefst ferlið á því að barn lærir að þekkja bókstaf út frá hljóði og þar á eftir þróast færni sem felst í því að þekkja hljóð bókstafa. Ferlið heldur svo áfram. Þegar umskráningarferlið, af öllum þeim þáttum sem það samanstendur af, er komið vel á veg hjá barni þá les barnið algeng orð með sjálfvirkum hætti. Ef eitthvað í ferlinu gengur ekki sem skyldi eru líkur á því að sjálfvirknin verði slök. Slök sjálfvirkni dregur úr skilvirkni lesturs og hefur áhrif á lesskilning því einbeiting fer þá gjarnan í umskráninguna en ekki innihald textans. Barnaskólinn leggur því mikið upp úr því að lestrarkennslan miði að því að börn nái valdi á sjálfvirkri þekkingu á bókstöfum og hljóðum þeirra. Með öðrum orðum, lestur er ferli, eitt útilokar ekki annað, hraði rétt lesinna orða mun ávallt hafa forspárgildi fyrir frekari færni.

Hraði eða skilningur? Leikskóli

Frábær árangur í lesfimi! 15/09/2021

Við gleðjumst yfir frábærum niðurstöðum úr lesfimiprófunum í maí sl. Þar sem samanburður á heildarniðurstöðum fyrir alla grunnskólana í Hafnarfirði og heildarniðurstöður fyrir landið allt er okkur í Barnaskólanum til sóma. Hér má sjá árangur ríkulegrar samvinnu heimils og skóla ásamt miklum metnaði starfsfólks og barna. Lestur er alla daga partur af okkar röð, reglu og rútínu - alveg sama hvað. Þá er ólíkum þörfum mætt og eitt útilokar aldrei annað. Lestur er bestur!

Frábær árangur í lesfimi! Leikskóli

Barnaskólinn Hafnarfirði 11/08/2021

Erum við að leita að þér?

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði auglýsir eftir starfsfólki í hlutastörf. Kjörið með námi og alltaf frí um helgar 😊

Annars vegar er um að ræða 50% stöður í frístundastarfi skólans þar sem vinnutími er frá 13:00-16:30 á virkum dögum. Hins vegar er um að ræða tímavinnu á skilavöktum á 5 ára leikskólakjörnum og/eða í frístund. Vinnutími er frá 13:30/14:30-16:30 á virkum dögum.

Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstaklingum sem eru tilbúnir að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika 💛

Laun samkvæmt Kjarasamningum Hlífar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Vinsamlegast sendið umsóknir í gegnum netfangið [email protected] þar sem fást einnig allar frekari upplýsingar um störfin. Eins má hafa samband símleiðis við skólastýrur Barnaskólans; Hildur 899-9633 eða Ruth 868-0725.

Barnaskólinn Hafnarfirði Leikskóli

Hópstjóri með 5 ára börn og stuðningur | Hjallastefnan - Barnaskólinn í Hafnarfirði 26/07/2021

Erum við að leita að þér?

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði auglýsir eftir starfsfólki á 5 ára leikskólakjarna og í frístundarstarf skólans. Allar nánari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi atvinnuauglýsingu á Alfreð. Opið fyrir umsóknir til 3. ágúst 😊

Hópstjóri með 5 ára börn og stuðningur | Hjallastefnan - Barnaskólinn í Hafnarfirði Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði auglýsir eftirfarandi lausar stöður við skólann næsta skólaár 2021-2022: - Leikskólakennari á 5 ára leikskólakjarna (100% starfshlutfall) - Stuðningsfull...

Want your school to be the top-listed School/college in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Hjallabraut 55
Hafnarfjörður
220