13/02/2026
Sitja, liggja eða standa?
Rannsóknir hafa sýnt fram á að langvarandi kyrrseta hefur neikvæð áhrif á heilsu og vellíðan. Þeir sem sitja samfleytt í langan tíma í námi eða vinnu eru í meiri hættu á að finna fyrir vöðvarýrnun, hjarta- og æðasjúkdómum og skertum efnaskiptum. Að skipta reglulega um líkamsstöðu yfir daginn, ásamt stuttum hreyfilotum, hjálpar nemendum að afkasta meira og líða betur í lok skóladags.
Í NÚ nýta nemendur þrjár mismunandi vinnustöður og skipta um stöðu á u.þ.b. hálftíma fresti. Í standandi stöðu geta nemendur stillt borðhæðina eftir eigin þörfum. Nemendur virkja vöðva í fótum, mjöðmum og baki til að viðhalda góðri líkamsstöðu. Í sitjandi stöðu nota nemendur stóla sem hvetja til virkrar setu og styrkja bakvöðvana, en stólarnir eru jafnframt hæðarstillanlegir. Í liggjandi stöðu liggja nemendur á kviðnum á jógadýnum. Sú staða veitir mikilvægt mótvægi við hefðbundna vinnustöðu þar sem bakið bognar og horft er niður; hér rétta nemendur úr bakinu og horfa fram.
Þar sem NÚ er íþróttaskóli og nemendur mjög virkir á æfingum, eru fjölbreyttar námsstöður lykilatriði í endurheimt. Létt vöðvavirkjun og aukið blóðflæði yfir daginn hjálpar líkamanum að jafna sig hraðar eftir strangt líkamlegt álag. Fyrir vikið mæta nemendur ferskari á æfingar seinnipartinn og eru betur í stakk búnir til að takast á við áskoranir íþróttamannsins. Þessar námstöður hafa verið staðlaðar í NÚ síðustu 10 árin og flestir nemendur hafa gefið því góða endurgjöf. Útskrifaðir nemendur tala margir um að þeir sakni þess að geta verið í liggjandi eða standandi stöðu þegar þeir koma í framhaldsskóla.
Myndin er gerð með gervigreind.