28/10/2025
Tilkynning til foreldra – Frístundaakstur fellur niður
Kæru foreldrar/forráðamenn,
Vegna veðurs fellur frístundaakstur niður þriðjudaginn 28. október. Það hefur snjóað mikið, færðin er erfið og gera má ráð fyrir að það bæti í með slyddu, lélegu skyggni og talsverðum samgöngutruflunum.
Frístundaheimilin verða opin, en hvatt er til að börn séu sótt snemma og fólk sé ekki seint á ferðinni
Vinsamlegast verið í samskiptum við starfsfólk frístundaheimilisins um hvort barn megi ganga heim eða verði sótt sé þörf á.
Sjá fyrir neðan tilkynningu frá aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins
Dear parents/guardians,
Due to weather conditions, leisure transport is cancelled on Tuesday, October 28. There has been heavy snowfall, road conditions are difficult, and further sleet is expected, with poor visibility and significant traffic disruptions.
Leisure centers will remain open, but we encourage early pickup and advise against being out late in the day.
Please stay in contact with staff regarding whether your child may walk home or will be picked up.
TILKYNNING FRÁ AÐGERÐASTJÓRN HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
Vegna áframhaldandi snjókomu á höfuðborgarsvæðinu er fólk eindregið hvatt til að halda sig heima og vera alls ekki á ferðinni að nauðsynjalausa. Gul viðvörun vegna veðurs er í gildi í umdæminu, en hún mun breytast í appelsínugula viðvörun kl. 17, en áfram er spáð mikilli snjókomu eða slyddu með lélegu skyggni. Fólk sem fór að heiman í morgun er beðið um að huga að heimferð sem allra, allra fyrst (mjög gott ef fólk er komið til síns heima fyrir kl. 15) því færðin og veðrið á bara eftir að versna eftir því sem líður á daginn. Áfram má búast miklum samgöngutruflununum og fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Þetta er dagurinn og kvöldið til að vera heima og hafa það notalegt, en ekki ana út í umferðina og sitja þar fastur! Fólk er beðið um að sækja ekki þjónustu í dag sem getur auðveldlega beðið betri tíma, t.d. sundlaugar og bókasöfn, en hvatt er til að þeim verði lokað. Nauðsynlegri þjónustu verður hins vegar haldið úti, t.d heilbrigðisstofnanir og ýmiss velferðarþjónusta.
Þá er það ítrekað, enn og aftur, að ökumenn á vanbúnum ökutækjum eiga alls ekki að vera í umferðinni í þessari miklu vetrarfærð. Þrátt fyrir aðvarnanir hefur borið mikið á því dag og hefur það ollið mjög miklum vandræðum. Vanbúin ökutæki verða fjarlægð á kostnað eigenda. Best er samt að allir sem mögulega geta haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir, óháð öllum dekkjabúnaði ökutækja.