07/07/2021
Hæhæ. Mikilvæg skilaboð vegna lokunar Kaplakrika á morgun:
Boltaskóli FH:
Vegna Evrópuleiks FH fimmtudaginn 8. júlí verður Kaplakriki lokaður frá klukkan 13:00 miðvikudaginn 7. júlí. Fimmtudaginn 8. júlí tökum við á móti börnunum í boltaskólanum fyrir utan Kaplakrika, uppi á pallinum á milli klukkan 8:00 og 9:00 og löbbum með þau í handboltasalinn (að utanverðu) – þar verður boðið upp á gæslu á milli klukkan 8-9 og 12-13. Börnin taka með sér nesti þangað, geyma dótið sitt þar og borða þar. Börnin klára daginn einnig í handboltasalnum og þangað getið þið sótt þau – það verður starfsmaður á pallinum sem vísar ykkur veginn
Íþrótta- og ævintýranámskeið FH:
Vegna Evrópuleiks FH fimmtudaginn 8. júlí verður Kaplakriki lokaður frá klukkan 13:00 miðvikudaginn 7. júlí. Við tökum á móti krökkunum í íþróttaskólann fyrir utan Kaplakrika, uppi á pallinum fyrir klukkan 13:00 og löbbum með þau í Dverginn.
Krakkarnir klára daginn í handboltasalnum (einungis hægt að ganga inn að utanverðu) og munum við fylgja þeim aftur út á pallinn klukkan 16:00 þar sem þið getið sótt þau.
Á morgun, fimmtudag, verður skipulagið eins.
Knattspyrnuskóli FH:
Vegna Evrópuleiks FH á morgun, fimmtudaginn 8. júlí verður Kaplakriki lokaður og munum við taka á móti krökkunum í Knattspyrnuskólanum fyrir utan Kaplakrika, uppi á pallinum á milli klukkan 8:00 og 9:00 og löbbum með þau í Knatthúsin. Krakkarnir taka með sér nesti þangað og þeir sem eru skráðir í hádegismat fá matinn þangað.
Einungis verður hægt að ganga inn í knatthúsin að utanverðu og munum við fylgja þeim aftur út á pallinn klukkan 12:00 þar sem þau fá hádegismatinn og þið getið sótt þau.
Ef einhverjar spurningar, hafið samband við [email protected] eða Melkorku (s: 6155790).