09/03/2026
Til upplýsinga til foreldra:
Sælir kæru foreldrar
Ég heiti Íris Árnadóttir og er tengiliður farsældar í Víðistaðaskóla. Nú stendur yfir Farsældarvika, sérstök kynningar- og fræðsluvika um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Allir grunnskólar í Hafnarfirði eru hafa nú tengilið farsældar sem hluta af sínu stoðteymi.
Tengiliður farsældar vinnur í nærumhverfi barns og aðgengilegur börnum og foreldrum.
Meðal helstu verkefna sem tengiliðir sinna er að meta þjónustuþörf og þekkja úrræði sem eru í boði, að aðstoða fjölskyldur við að rata í gegnum kerfið og að skipuleggja og fylgja eftir samþættri þjónustu á fyrsta stigi.
Bæði börnum og foreldrum er velkomið að óska eftir samtali við mig. Viðtalstímar eru eftir samkomulagi.
[email protected]