Leikskólinn Grænuvellir er átta deilda leikskóli á Húsavík. Læsi er mikilvægur þáttur fyrir hvern einstakling og stuðlar að lýðræði í samfélaginu.
ólann. Námskráin byggir á s*x grunnþáttum sem eru:
læsi
sjálfbærni
heilbrigði og velferð
lýðræði og mannréttindi
jafnrétti
sköpun. Námþættirnir fléttast inn inn í allt leikskólastarfið en þeim er ætlað að efla læsi á samfélag, menningu, umhverfi og náttúru. Þannig efla þeir nemendur andlega og líkamlega og búa þau undir lífið, að bjarga sér í samfélaginu og vinna með öðrum. Læsi:
Í læsi felst þekking barna til að lesa í umhverfi sitt. Í læsi felst einnig leikni barna til að tjá upplifun sína, tilfinningar og skoðanir. Við leggjum áherslu á góð samskipti, æfum okkur að skiptast á, bera umhyggju fyrir hvert öðru og að læra að tilheyra hóp. Við leggjum einnig áherslu á og æfum okkur í að lesa í og skilja tilfinningar okkar. Við leggjum upp með að börnin verði fær um að lesa í umhverfi sitt, við förum í vettvangsferðir þar sem við æfum okkur að nota augu og eyru t.d þegar við förum yfir götu. Við skoðum skilti og aðrar vísbendingar sem umhverfið gefur okkur. Við æfum okkur t.d að finna út hvernig ber að klæða sig eftir veðri og árstíðum. Í samverustundum leggjum við mikið upp úr lestri bóka og sögum í munnlegri geymd. Við vinnum m.a með markvissa málörvun og tilfinningar. Á Grænuvöllum notum við Tákn Með Tali (TMT) og leitumst við að gera starfið sýnilegt og myndrænt fyrir alla til að efla sjálfstæði og öryggi. Leikurinn er er mikilvægur þáttur í námi í læsi. Sjálfbærni:
Sjálfbærni er samspil umhverfi, efnahags samfélagsins og velferðar. Samfégsleg sjálfbærni snýst um að hafa lýðræðisleg vinnubrögð og tryggja að fjölbreyttum þjóðfélagshópum sé gert jafn hátt undir höfði. Í sjálfbærni menntun felst einnig að börnin þrói með sér gagnrýna hugsun. Við viðhöldum þjóðlegum hefðum m.a. með því að halda þorrablót og undirbúa jól og páska. Við höldum í hefðir leikskólans t.d. með því að halda blátt og bleikt boð. Við leggjum áherslu á að fara vel með náttúruna, tínum rusl, gefum öndunum brauð, rínum ber á haustin og göngum frá náttúrunni í útikennslu eins og við komum að henni. Við nýtum svo kallað verðlaust efni eins og eggjabakka, fernur, dósir og fleira í leik í listavinnu. Við leggjum áherslu á að fara vel með alla hluti. Við söfnum lífrænum úrgangi og setjum í moltu, við spörum rafmagn og kaupum mjólk í stórum ílátum til að spara pappír og fjármuni. Í gegnum leikinn gera nemendur ýmsar tilraunir með þætti sjálfbærni. Heilbrigði og velferð:
Heilbrigði felur í sér andlega, líkamlega og félagslega vellíðan. Við leggjum áherslu á jákvæða sjálfsmynd, hreyfingu, næringu, hvíld, andlega vellíðan, góð samskopti, öryggi, hreinlæti, kynheilbrigði og skilning á eigin tilfinningum og á tilfinningum annara. Við tökum mið af einstaklingsbundnum þörfum nemenda og gætum þess að allir fái notið styrkleika sinna til að byggja upp jákvæða sjálfsmynd. Á Grænuvöllum leggjum við áherslu á daglega hreyfingu í formi útiveru, gönguferða, frjálsan leik og í hreyfistundum. Stefna okkar er að borða hollan og góðan mat. Lögð er áhersla á grænmeti og ávexti en matseðalar eru unnir í samráði við næringarráðgjafa og Lýðheilsustöð. Við eflum og styðjum sjálfsmynd nemenda og stuðlum að andlegu og líkamlegu öryggi. Við kennum nemendum að taka sjálfstæðar ákvarðanir og bera ábyrgð á eigin hegðun. Til hliðsjónar höfum við Jákvæðan aga en starfsfólk leikskólans situr reglulega fyrirlestra og námskeið varðandi agastefnuna. Lýðræði og mannréttindi:
Lýðræði byggir á gagnrýnni hugsun og virkri þátttöku í að skapa samábyrgt og sjálfbært samfélag. Í lýðræðislegu samfélagi er tekið mið af mannréttindum og virðingu fyrir einstaklingnum. Umhyggja fyrir fólki, dýrum og umhverfi er mikilvæg lýðræðis- og mannréttindamenntun. Í starfsháttum leikskóla skal taka mið af þörfum einstaklings, áhuga hans og sjálfsábyrgð. Börn læra lýðræði í lýðræði. Á Grænuvöllum taka nemendur þátt í daglegu starfi leikskólans og hafa áhrif á starfið allt eftir áhuga, þroska og getu hvers og eins. Nemendur hafa ákveðin ábyrgðarhlutverk í leikskólanum. Meðal annars eru þjónar sem sækja mat og leggja á borð, gá til veðurs og segja til um hvernig æskilegt er að klæðast. Hver deild á ákveðið svæði þar sem hópurinn tínir rusl (í bænum á vorin). Á Grænuvöllum fá börnin tækifæri á að velja sér leikefni og svæði til að leika sér á. Í leik æfa nemendur sig í lýðræði og réttindum, hvað má og hvað er bannað eða óviðeigandi. Við leggjum áherslu á að hlusta á það sem börnin hafa að segja. Við leggjum áhersu á góð samskipti við foreldra og kennum börnunum að taka tillit til annarra og virða skoðanir þeirra. Starfsfólk er mikilvægar fyrirmyndir í leikskólanum en allir hafa sama rétt óháð þjóðerni, fötlun, kynþætti. litarhætti eða trúarskoðunum. Við leggjum áherslu á að vera góð við hvert annað og að hjálpast að. Við stuðlum að samvinnu við Borgarhólsskóla, Tónlistarskólann, Framhaldsskóla Húsavíkur, Heilbrigðisstofnun, Miðjuna, Setrið og söfnin í bænum. Jafnrétti:
Við leggjum áherslu á skóla án aðgreiningar. Það þýðir að öll eigum við jafnan rétt. Jafnrétti er regnhlífarhugtak sem nær til aldurs, búsetu, fötlunar, kyns, kynhneigðar, litarháttar, lífsskoðana, menningar, stéttar, trúarbragða, tungumáls, ætternis og þjóðernis. Áhersla er lögð á að drengir og stúlkur eiga sem víðtækasta og jafnasta möguleika. Við leggjum áherslu á að við erum frábær eins og við erum. Við vinnum með jafnrétti m.a með því að hlusta og viðurkenna hvert annað. Við erum ekki alltaf sammála en það er allt í lagi. Við leggjum áherslu á vináttu og virðingu í samverustundum, umræðum, í söng og leik. Sköpun:
Í sköpun felst að búa til og gera eitthvað nýtt og öðruvísi en viðkomandi hefur gert áður og byggir þannig ofan á fyrri reynslu og þekkingu. Sköpun er að uppgötva, njóta, örva forfvitni og áhuga, virkja ímyndunarafl og leika með möguleika. Afrakstur sköpunar skiptir ekki meginmáli heldur ferlið sem á sér stað. Sköpun fléttast inn í allt starf Grænuvalla og ekki síst leikinn en við leggjum áherslu á að vinna með opinn verðlausan efnivið (ætti að heita verðmætan efnivið) í skapandi vinnu sem býður upp á marga möguleika. Ímyndunaraflið fer á flug í frjálsa leiknum bæði inni og úti. Tónlist skipar stóran sess i starfinu en allir nemendur fá að kynnast hljóðfærum, söng og dansi.
Áhersluþættir í starfi Grænuvalla
Á Grænuvöllum er stefna John Dewey en áhersla er lögð á að börnin læri í gegnum reynslu „learning by doing“. Betri grunnur- Bjartari framtíð er hreyfiþjálfun sem allir nemendur á Grænuvöllum fara í. Í sal leikskólans er sett upp kennslustund þar sem unnið er með alla nauðsynlega grunnhreyfifærni. Hver kennslustund byggir á 6-8 mismundandi stöðvum þar sem börnin fá tækifæri til að æfa færni í grófhreyfingum og í samhæfingu hreyfinga á mismunandi erfiðleikastigum. Við leggjum með því áherslu á snemmtæka íhlutun, þ.e. að draga úr frávikum í hreyfiþroska. Leikurinn er helsta nám- og þroskaleið barna á leikskólaaldri. Auk þess er leikurinn helsta tjáningarleið þeirra. Á Grænuvöllum gerum við leiknum hátt undir höfði og kennarar fylgjast með, taka þátt og leiðbeina eftir þörfum og eðli leikskins. Leikur fer fram inni og úti við fjölbreyttar aðstæður. Í leik þjálfast félagsfærni, þroski eykst og börnin upplifa og vinna með hinar ýmsu tilfinningar. Tónlist er í hávegum höfð en markmið með tónlistartímum er að vekja áhuga nemenda á tónlist. Börnin kynnast hljóðfærum og læra að umgangast þau. Þau kynnast fjölbreyttri tónlist og mismundandi hugtökum. Söngur fer fram á öllum deildum en elsti árgangur leikskólans sækir Tónlistarskólann heim einu sinni í viku allan veturinn. Í leikskólanum eru einnig sameiginlegar tónlistar- og söngstundir í sal undir stjórn kennara.
Útikennsla er skipulögð eftir aldri og þroska nemenda. Helstu markmið eru að fá fjölbreytta hreyfingu, öðrlast betri félagslega færni, skilning á náttúrunni og umhverfinu. Í útikennslu fær leikurinn byr undir báða vængi. Markviss málörvun er hugtak sem nær yfir allar markvissar aðgerðir til að efla málþroska barna. Allar deildir á Grænuvöllum nota markvissa málörvun í daglegu starfi. Lögð er rík áhersla á lestur, söng og þjálfun hljóðkerfisvitundar í gegnum leik. Tákn Með Tali er notað til að styðja við mál allra í leikskólanum. Það byggir á látbragði, svipbrigðum og táknum en það er alltaf notað með tali. Öll börn og allt starfsfólk Grænuvalla eiga sitt tákn.