30/08/2019
Eftir 5 ára þjónustu sem umsjónarmaður Dreifnáms FNV á Hólmavík hef ég látið af störfum og horfið til annarra verkefna. Eftir situr þökk fyrir tímann og þakklæti fyrir að hafa kynnst öllu því góða fólki sem hefur verið viðloðandi skólann með einum eða öðrum hætti í öllu þessi ár. Alls hafa verið um 40 nemendur við nám í dreifnáminu frá því ég hóf störf árið 2014, auk fjölda annarra sem hafa fengið að nýta sér aðstöðuna til lærdóms og próftöku.
Við starfinu tekur Unnur Ólafsdóttir og mun hún leiða þessa mikilvægu námsleið inn í framtíðina. Í dag eru 7 nemendur við skólann, sumir að feta sín fyrstu skref og aðrir á lokametrunum. Það er mikilvægt að samfélagið hér á Ströndum hvetji þetta góða fólk áfram og haldi vel utan um það, bæði starfslið og nemendur :)
Takk kærlega fyrir mig, framtíðin er björt!
Eiríkur Valdimarsson