12/04/2026
Hólastaður í Hjaltadal er einn merkasti sögustaður landsins, þar sem nær órofin samfella skólahalds nær frá tímum Jóns Ögmundarsonar til dagsins í dag. Rannsóknir benda til að búseta á svæðinu sé eldri en stofnun biskupsstólsins árið 1104. Á Hólum var um aldir miðstöð valds og menningar; þar starfaði Jón Arason biskup, þar var fyrsta prentsmiðja landsins reist og Guðbrandsbiblía prentuð undir stjórn Guðbrands Þorlákssonar.
Enn í dag er staðurinn lifandi; þar situr vígslubiskup og þar fer fram háskólastarf. Þessi einstaka samfella frá miðöldum til samtímans gerir Hóla að ómetanlegum minjastað.
Því vekur það miklar áhyggjur að áform eru um breytingar á starfsemi og sölu mikilvægra eigna. Slíkt ógnar bæði heildarsvip staðarins og þeirri djúpu merkingu sem hann hefur fyrir þjóðina. Það er átakanlegt að ríkið hafi látið hús og umhverfi drabbast niður þrátt fyrir augljóst varðveislugildi.
Hólar eru einn helgasti staður landsins, vagga kirkju, mennta og menningarsögu. Ríkið ber ábyrgð á að standa vörð um staðinn áður en það verður um seinan.
Við hvetjum alla til að láta sig málið varða og skrifa undir yfirlýsingu til stuðnings vernd Hóla á eftirfarandi slóð, þar sem settar eru fram skýrar kröfur til stjórnvalda.
https://island.is/undirskriftalistar/e78fbbfe-6b03-4427-9669-8c129bcde7dd?fbclid=IwY2xjawRIW4dleHRuA2FlbQIxMABicmlkETBPTUNLbWlwQWpJSTlmc0Jac3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHtXhiNIAFTf06XrMMxyz6LrSrqSffKWhY_nkVO0t-XGqZUln9mrQhTtgt_nk_aem_aAWNVZhIPJWjZpL1oL-k5g
Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar getur fólk og fyrirtæki fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu hjá opinberum aðilum á einum stað í gegnum eina gátt.