18/09/2026
Nemendur skólastiganna vinna saman
Þann 17. september síðastliðinn lögðu nýnemar úr FSN hönd á plóg í Grundarfirði ásamt nemendum í leik- og grunnskóla Grundarfjarðarbæjar.Tilefnið var Gróðurvika í Grundarfirði í tengslum við Dag íslenskrar náttúru.
Þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi sett strik í reikninginn á sjálfum Degi íslenskrar náttúru,16. september, var veðrið betra daginn eftir og Leikskólabörn, grunnskólabörn og nýnemar FSN unnu saman að því að koma plöntum fyrir í moldinni.Útbúin voru tvö ný gróðurbeð á lóð Leikskólans Sólvalla sem nú hafa verið fyllt af fjölæringum, runnum og haustlaukum.
Verkefnið snýst ekki eingöngu um fegrun bæjarins heldur einnig um að efla líffræðilegan fjölbreytileika og skapa skjól, en leik- og grunnskóli bæjarins eru jafnframt Grænfánaskólar.
Það er ánægjulegt að þetta er annar viðburðurinn í þessum mánuði sem að nemendur í FSN taka þátt í viðburðum með öðrum skólastigum í Grundarfirði en fyrir stuttu tókum við þátt í Litahlaupinu með Grunnskóla Grundarfjarðar.
Myndirnar tók Tómas Freyr Kristjánsson