UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur

UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur Ungmennafélag Grindavíkur

09/09/2026

Svavar Sigurðsson, fyrrum formaður hjá Knattspyrnudeild Grindavíkur UMFG, féll frá þann 31. ágúst síðastliðinn, 87 ára að aldri. Ungmennafélag Grindavíkur sendir aðstandendum og vinum Svavars okkar innstu samúðarkveðjur.

Svavar var formaður deildarinnar 1994-1996 sem voru stór ár í sögu grindvískrar knattspyrnu en vorið 1994 tryggði Grindavík sér sæti í efstu deild karla í fyrsta sinn og spilaði einnig til úrslita í bikarnum.

Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildarinnar til marga ára, minnist Svavars á Faceboook síðu sinni og fengum við góðfúslegt leyfi til að endurbirta þá kveðju hér.

Svavar Sigurðsson, minning.

Þegar ég flutti til Grindavíkur 1974 vakti athygli mína hvað margir stuðningsmenn Akranes í fótbolta bjuggu í Grindavík. Síðar kom í ljós að nokkrir brottfluttir Skagamenn bjuggu í Grindavík og höfðu mikinn áhuga á fótbolta, t.d. Sigurður G. Ólafsson og Gylfi Halldórsson.

Uppúr 1990 flutti Svavar Sigurðsson til Grindavíkur og tók við starfi bankastjóra Landsbankans í Grindavík. Þar hófust okkar kynni sem áttu eftir að endast fram að andláti Svavars. Það kom fljótt í ljós áhugi Svavars á fótbolta og var hann kominn í stjórn Knattspyrnudeildar UMFG fljótlega eftir að hann flutti til Grindavíkur, sem var mikil lyftistöng fyrir Grindavík. Bróðir Svavars, Gunnar Sigurðsson fyrrum formaður ÍA var mín helsta fyrirmynd þegar ÍA vann alla titla á Íslandi.

Svavar var einstakur maður með hlýtt hjarta. Hann var formaður Knattspyrnudeildar UMFG 1994 þegar Grindavík fór upp í efstu deild og í bikarúrslit á móti KR. Hann fór í öll störf sem biðu stjórnarmanna tengd deildinni, tyrfa fótboltavelli og ógleymdum ferðum í Reykjvík til að afla fjár fyrir deildina. Við fórum ótal ferðir saman til Reykjavíkur, byrjuðum daginn snemma i kaffi uppúr 07:30 á Kaffivagninum á Granda og enduðum ávalt daginn í Laugardalslaug með því að synda 1000 metra.

Þing KSÍ á þessum árum voru skemmtileg, það skapaðist hefð hjá okkur í Grindavík að fara með alla stjórnarmenn á 3gja daga KSÍ-þing og makar okkar komu eina nótt. Eftirminnilegasta þing KSÍ var haldið 1994 á Höfn í Hornafirði þar sem okkar maður fór á kostum ásamt fleirri fulltrúum KSÍ.

Eftir að Svavar flutti frá Grindavík héldum við sambandi okkar áfram og ég heimsótti hann reglulega uppá Akranes og síðar í Hveragerði þar sem hann bjó síðustu árin.

Margar minningar koma upp í hugann.

Ógleymanleg ferð leikmanna, þjálfara og stjórnar ásamt mökum til Dublin 1994, gistingu á Hvanneyri í Borgarfirði fyrir leik við Akranes 1991 sem Grindavik vann 0-1 og Skagamenn með besta lið þá á Íslandi. Svavar spurði Gunnar bróðir sinn fyrir leik- er Skaginn ekki með sitt besta lið !

Ég gæti haldið áfram að rifja upp skemmtilegar sögur af ferðalagi okkar i gegnum lífið, ég mun sakna hans og sé hann brosandi eins og hann var alltaf þegar við hittumst. Ótal símtöl okkar byrjuðu ávalt hjá mínum kæra vin, blessaður maður.

Ég votta fjölskyldu Svavars mína innilegustu samúð.

Guð blessi minningu Svavars Sigurðssonar.

Það kom óvænt babb í bátinn á síðustu stundu sem tókst ekki að leysa úr. Grindavík Ultra mun því ekki fara fram næstu he...
28/08/2026

Það kom óvænt babb í bátinn á síðustu stundu sem tókst ekki að leysa úr. Grindavík Ultra mun því ekki fara fram næstu helgi.

Sjá yfirlýsingu í fyrstu athugasemd.

ATH! Uppfærður fundartími!Aðalfundur UMFG verður 16. júníAðalfundur Ungmennafélags Grindavíkur fyrir starfsárið 2025 fer...
09/06/2026

ATH! Uppfærður fundartími!

Aðalfundur UMFG verður 16. júní

Aðalfundur Ungmennafélags Grindavíkur fyrir starfsárið 2025 fer fram þriðjudaginn 16. júní næstkomandi í Gjánni. Fundurinn hefst kl. 20:00 (uppfærður fundartími).

Dagskrá fundarins:
Aðalfundir fyrir deildir UMFG
Hefðbundin aðalfundarstörf aðalstjórnar UMFG

Hvetjum alla sem vilja taka þátt í starfinu til að mæta. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Stjórn UMFG

Við Grindvíkingar erum margfaldir Íslandsmeistarar þessa dagana en þrjú gull komu í hús hjá grindvískum júdóköppum. Þau ...
01/06/2026

Við Grindvíkingar erum margfaldir Íslandsmeistarar þessa dagana en þrjú gull komu í hús hjá grindvískum júdóköppum. Þau Krista Líf Sigurðardóttir, Haukur Hersir Einarsson og Arnar Einarsson urðu öll Íslandsmeistarar. Krista í U15 -57kg flokki stúlkna, Haukur Hersir í U13 -46kg drengja og Arnar í U15 -81kg drengja.

Þá eigum við einn kappa til, Ara Einarsson, sem keppti ekki í U18 vegna meiðsla en hann keppir í haust á Íslandsmóti fullorðinna þrátt fyrir ungan aldur.

Bræðurnir eru í fremstu röð júdómanna á Íslandi. Ari er að fara á Norðurlandamótið í júní en hann vann til bronsverðlauna á Opna danska meistaramótinu og þar voru yfir 900 keppendur frá yfir 20 löndum.

Undanfarnar vikur hafa Grindvíkingar fagnað ófáum Íslandsmeistaratitlum í körfubolta. Sá stóri hefur auðvitað átt hug og...
29/05/2026

Undanfarnar vikur hafa Grindvíkingar fagnað ófáum Íslandsmeistaratitlum í körfubolta. Sá stóri hefur auðvitað átt hug og hjörtu allra Grindvíkinga en ungir og efnilegir iðkendur frá Grindavík hafa líka verið að gera það gott með öðrum liðum og óskum við þeim öllum innilega til hamingju með árangurinn!

Ps. Við fengum þessar myndir sendar og mögulega eru einhverjar meistarar að gleymast! Við hvetjum Grindvíkinga til að senda okkur myndir og upplýsingar ef svo er.

Það er nú ekki amalegt að vinna bæði Keflavík og Njarðvík sama daginn! Hér eru mörkin úr bikarleiknum hjá strákunum í gæ...
07/04/2026

Það er nú ekki amalegt að vinna bæði Keflavík og Njarðvík sama daginn! Hér eru mörkin úr bikarleiknum hjá strákunum í gær.

Allir á völlinn á morgun! Það er hægt að vera bara allan daginn á völlunum, er það ekki fín leið til að verja síðasta de...
05/04/2026

Allir á völlinn á morgun! Það er hægt að vera bara allan daginn á völlunum, er það ekki fín leið til að verja síðasta deginum í páskafríi?

Ath breyttur leikvöllur, verður inni.
Nágranna slagur á mánudag kl 13:00.
Grindavík-Keflavík í Mjólkurbikar karla.
Knatthúsi Hauka.
Miðasala á stubb.
https://stubb.is/events/n54Ndb

Boðið verður uppá einstaklingsæfingar í körfubolta í páskafríinu í Grindavík. Æfingarnar verða á skírdag og föstudaginn ...
31/03/2026

Boðið verður uppá einstaklingsæfingar í körfubolta í páskafríinu í Grindavík. Æfingarnar verða á skírdag og föstudaginn langa, kl. 10:30-11:30. Æfingarnar eru fyrir 7. bekk og eldri. Þjálfari verður Jóhann Árni.

Það þarf ekki að skrá sig og kostar ekkert, bara mæta. Íþróttahúsið verður mikið opið um páskana og hvetjum við alla til að koma í heimsókn og nýta sér aðstöðuna á opnunartíma.

Dagskráin í íþróttahúsinu yfir páskana:

Miðvikudagur 1. apríl: Opið kl. 16:00–20:00
Grindavík – Njarðvík (8-liða úrslit Bónus deildar karla) kl. 19:00

Skírdagur 2. apríl: Opið kl. 16:00–20:00

Föstudagurinn langi 3. apríl: Opið kl. 16:00–20:00

Laugardagur 4. apríl: Opið kl. 12:00–17:00
Grindavík – Valur (8-liða úrslit Bónus deildar kvenna) kl. 16:00

Páskadagur 5. apríl: Opið kl. 12:00–17:00

Annar í páskum 6. apríl: Opið kl. 12:00–17:00

(Við gerum ráð fyrir að það verði ca svona gott veður í Grindavík yfir páskana. Veðurspá birt án ábyrgðar eða athugunar.)

Það verður íþróttaskóli í boði fyrir leikskólaaldur á skírdag. Enginn kostnaður, engin skráning, ekkert vesen. Bara mæta...
31/03/2026

Það verður íþróttaskóli í boði fyrir leikskólaaldur á skírdag. Enginn kostnaður, engin skráning, ekkert vesen. Bara mæta og hafa gaman!

Grindavík á tvo fulltrúa í U-19 ára landsliði Íslands sem tekur nú þátt í æfingamóti í Portúgal, þá Helga Hafstein Jóhan...
29/03/2026

Grindavík á tvo fulltrúa í U-19 ára landsliði Íslands sem tekur nú þátt í æfingamóti í Portúgal, þá Helga Hafstein Jóhannsson og Eystein Rúnarsson.

Ísland mætir þar Bandaríkjunum, Portúgal og Marokkó dagana 24. mars – 1. apríl.

Address

Grindavík

Opening Hours

Monday 14:00 - 17:00
Tuesday 14:00 - 17:00
Wednesday 14:00 - 17:00
Thursday 14:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur:

Shortcuts

Share