Laut leikskóli

Laut leikskóli Facebooksíða Lautar

Bangsaspítalinn í LautUndanfarin ár hefur Foreldrafélagið okkar góða staðið fyrir Bangsaspítala ár hvert í október. Hugm...
03/11/2022

Bangsaspítalinn í Laut
Undanfarin ár hefur Foreldrafélagið okkar góða staðið fyrir Bangsaspítala ár hvert í október. Hugmyndin er að börnin komi með slasaðan bangsa að heiman sem er kannski fótbrotinn, með g*t á hausnum eða jafnvel handleggsbrotinn. Vaskir meðlimir úr Foreldrafélaginu mættu á svæðið íklæddir hvítum læknasloppum tilbúin til að taka á móti "sjúklingunum" .
Börnin sátu á " biðstofunni " og biðu eftir að kallað væri á þau, góð æfingi í þolinmæði 🙂 Síðan þurftu þau að segja "lækninum " hvað væri að bangsanum, hvað hann heitir og svona létt spjall. Börnin voru ánægð, allir bangsar fengu bót sinna meina og Foreldrafélagið stóð sig með prýði. Mögulega getur þetta líka hjálpað þeim börnum sem eru kannski smeyk við að hitta alvöru lækna 🙂 Færum Foreldrafélaginu okkar bestu þakkir fyrir framtakið 🙂

29/08/2022

Kæru foreldrar
Á morgun þriðjudaginn 30 ágúst lokar leikskólinn kl.15:00 vegna starfsmannafundar. Athugið að sækja þörf börnin fyrir kl.15:00

Kæru foreldrarVegna bráðaofnæmis nemanda fyrir hnetum eru öll matvæli sem mögulega kunna að innhalda hnetur bannaðar í l...
25/08/2022

Kæru foreldrar
Vegna bráðaofnæmis nemanda fyrir hnetum eru öll matvæli sem mögulega kunna að innhalda hnetur bannaðar í leikskólanum

Dear parents
Due to the student's allergy to nuts, all foods that may contain nuts are prohibited in the kindergarten

Drodzy rodzice
Ze względu na alergię ucznia na orzechy w przedszkolu zabronione są wszelkie pokarmy, które mogą zawierać orzechy

Kæru foreldrarEitthvað er síminn að stríða okkur , en svo virðist sem að aðalnúmerið okkar sé ekki virkt. Þið getið náð ...
17/08/2022

Kæru foreldrar
Eitthvað er síminn að stríða okkur , en svo virðist sem að aðalnúmerið okkar sé ekki virkt. Þið getið náð inn til okkar með því að hringja í 4201162 eða 8479859

12/08/2022

Bara að ítreka að fundurinn með nýjum foreldrum byrjar kl.13:00 í dag :) hlökkum til að sjá ykkur :)

Velkomin eftir gott sumarfrí : ) hér fyrir neðan er hægt að nálgast leikskóladag*talið okkar fyrir 2022-2023
10/08/2022

Velkomin eftir gott sumarfrí : ) hér fyrir neðan er hægt að nálgast leikskóladag*talið okkar fyrir 2022-2023

Á mánudaginn næsta hefst aðlögun nýrra barna en á föstudaginn 12 ágúst  kl.13:30 verður fundur með nýjum foreldrum. Vil benda ykkur á nálgast má leikskóladag*talið okkar fyrir 2022-2023 með því að smella hér

28/06/2022

Leikskólakennara vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík frá og með 10 ágúst.  Vinnutími frá kl. 08:00-16:00. Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og sambands íslenskra sveitarfélaga. Leikskólinn er fjögra deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða. Við ...

Klæðumst bláu á BLÁA DAGINN föstudaginn 1.apríl.Alþjóðlegi dagur einhverfunnar er á morgun föstudaginn 1. apríl  og hvet...
31/03/2022

Klæðumst bláu á BLÁA DAGINN föstudaginn 1.apríl.
Alþjóðlegi dagur einhverfunnar er á morgun föstudaginn 1. apríl og hvetjum við alla til að klæðast bláu og vekja þannig athygli á málefnum einhverfra barna en blái liturinn hefur fest sig í sessi sem litur einhverfunnar um heim allan.
Markmið blá dagsins er að vekja athygli á einhverfu og fá landsmenn alla til að sýna einhverfum stuðning sinn. Með aukinni vitund og þekkingu á einhverfu byggjum við upp samfélag sem er betur í stakk búið til að skilja þarfir einhverfra og virða framlag þeirra til samfélagsins.

Kæru foreldrar Þriðjudaginn 22.febrúar er skipulagsdagur í leikskólanum Laut og er þá leikskólinn lokaður.
17/02/2022

Kæru foreldrar

Þriðjudaginn 22.febrúar er skipulagsdagur í leikskólanum Laut og er þá leikskólinn lokaður.

06/02/2022

Tilkynning um röskun á skólahaldi mánudaginn 7. febrúar 2022
Í ljósi þess að gefin hefur verið út rauð viðvörun fyrir okkar landssvæði í nótt og snemma í fyrramálið verður upphafi skólastarfs í leikskólum seinkað til kl. 10:00. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að fylgjast vel með tilkynningum frá skólunum ef frekari röskun verður á skólastarfi.

16/01/2022

Kæru foreldrar
Nú rignir inn neikvæðum niðurstöðum og enn sem komið er ekkert jákvætt. Því mun leikskólinn opna í fyrramálið, hlökkum til að sjá ykkur 😊

13/01/2022

Kæru foreldrar
Upp hefur komið smit hjá starfsmanni og biðjum við ykkur um að sækja barnið ykkar nú þegar þar sem að leikskólinn mun loka, nánari upplýsingar má finna í tölvupósti og hvetjum við ykkur til þess að fylgjast vel með bæði hér og í tölvupósti
kveðja Fríða

Address

Laut 1
Grindavík
240

Opening Hours

Monday 07:45 - 16:15
Tuesday 07:45 - 16:15
Wednesday 07:45 - 16:15
Thursday 07:45 - 16:15
Friday 07:45 - 16:15

Telephone

+3544268396

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Laut leikskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Laut leikskóli:

Shortcuts

Share

Category