21/09/2026
Í lok síðustu viku fór ég með fyrsta árs nemendur mína í fyrirtækja heimsóknir en þessar heimsóknir eru liður í námi skólans og mjög mikilvægar til þess að nemendur sjái og upplifi hvernig fiskvinnslan virkar frá fyrstu hendi. Þetta haustið byrjuðum við í Grindavík og hófum daginn í Einhamri Seafood en það starfrækir fiskvinnslu í Grindavík þar sem framleiddar eru þorsk- og ýsuafurðir úr besta mögulega hráefni sem völ er á. Ferskleiki afurða eru aðalsmerki Einhamar Seafood. Helstu markaðssvæði félagsins eru Bandaríkin, Bretland og mið-Evrópa.
Einhamar Seafood var stofnað árið 2003 af þeim heiðurshjónum Stefáni Kristjánssyni og konu hans Helenu Söndru Antonsdóttur og er í dag meðal öflugustu ferskfiskframleiðenda á Íslandi. Stefán eða Stebbi í Einhamri eins og flestir þekktu hann lést á síðasta ári langt fyrir aldur fram og ekki bara var hann mikill missir fyrir fjölskyldu sína heldur var okkur Grindvíkingum öllum mikill harmdauði. Stebbi og þau hjónin bæði og fyrirtækið tóku virkan þátt í og stuðluðu að framþróun samfélagsins í sínu nærumhverfi með því að styðja við góð málefni s.s. á sviði íþrótta, björgunar og menningarmála. Við í Fisktækniskólanum nutum svo sannarlega rausnar þeirra og örlætis.
En eins og alltaf þá heldur lífið áfram frá fyrir áföll og þannig er það hjá þessu öfluga fyrirtæki sem rekið er áfram af Söndru og syni hennar Smára sem njóta fulltingis frábærra starfsmanna með Öldu Agnesi framkvæmdastjóra fremsta í flokki.
Næst leið okkar í Vísi/Síldarvinnslan þar sem við heimsóttum allar þrjár starfstöðvar fyrirtækisins í Grindavík. Vísir er rótgróið, kröftugt og framsækið íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki þar sem öll áhersla er lögð á ábyrgar veiðar, hátæknivinnslu og vörugæði. Fyrirtækið býr yfir góðum skipaflota útbúnum til línuveiða og rekur saltfiskvinnslu og frystihús í Grindavík.
Afurðir Vísis/Síldarvinnslunnar eru fjölbreyttar, unnar úr fyrsta flokks hráefni, og framleiddar fyrir breiðan hóp kröfuharðra viðskiptavina vítt og breitt um heiminn. Vísir hefur í yfir 60 ár notið mikillar gæfu og haft á að skipa metnaðarfullu og tryggu starfsfólki – mannauður fyrirtækisins er því lykillinn að farsælum rekstri þess.
Nemendur okkar voru leiddir í gegnum allar vinnslurnar og sáu framleiðslu á söltuðum fiski, frystum og ferskum og eins sáu þau starfsfólk sem vann við að slægja fisk og það sem var merkilegast við þessar heimsóknir að allir nemendur fyrir utan einn voru að koma inn í fiskvinnslur í fyrsta skipti á ævinni.
En eins og máltækið segir „Einhvern tímann er allt fyrst“ og voru nemendur mjög ánægðir með þessa heimsókn í þessi 2 fyrirtæki sem hafa stundað sína starfsemi í Grindavík nánast allan tímann eftir 10. nóv 2023. Þau voru einungis fjarverandi í nokkra mánuði og má segja um þau bæði eins og segir í ljóðinu góða „Römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til“.
Í Vísi hittum við nokkra af fyrrum nemendum okkar þá Emanúel Ebuka, Dusan Goransson og Alla Kazulis sem hafa unað og gera enn hag sínum vel hjá þessu magnaða fyrirtæki.
Hafi þessi góðu fyrirtæki og starfsfólk þeirra þökk fyrir góðar móttökur.