Gerðaskóli

Gerðaskóli Gerdaskóli í Garðinum stofnaður 1872

Samskiptadagur 30. september 2026
23/09/2026

Samskiptadagur 30. september 2026

Mikilvæg skilaboð frá lögreglunni.
22/09/2026

Mikilvæg skilaboð frá lögreglunni.

Foreldrar – vitið þið hversu hratt hjólin hjá krökkunum ykkar komast?
Okkur langar að vekja athygli foreldra hér á Suðurnesjum á þróun sem veldur okkur verulegum áhyggjum.
Við erum að sjá sífellt öflugri rafmagnshjól og rafmagnskrossara í notkun hjá börnum og ungmennum, allt niður í 11 ára gömul eins og dæmi eru um hjá kollegum okkar í Reykjavík. Sum þessara tækja eru gríðarlega kraftmikil og geta náð mjög miklum hraða – jafnvel allt að 100 km/klst. Þá er í sumum tilfellum tiltölulega einfalt að breyta stillingum tækjanna þannig að þau fari mun hraðar en þau voru stillt á við kaup.
Þetta er ekki bara vandamál annars staðar á landinu. Við erum að sjá þessa þróun hér á Suðurnesjum líka.
Við lögreglumenn sjáum börn og ungmenni á öflugum rafmagnstækjum í umferðinni, á göngustígum og á svæðum þar sem gangandi vegfarendur og önnur börn eiga leið um. Þegar hraðinn er orðinn mikill geta augnabliks mistök haft mjög alvarlegar afleiðingar.
Það er líka mikilvægt að foreldrar geri sér grein fyrir því að þegar um er að ræða tæki sem fara hraðar en 25 km/klst. geta gilt aðrar reglur um tækið, skráningu þess, hvar heimilt er að aka því og hvaða réttindi ökumaður þarf að hafa. Það er því ekki þannig að barn megi einfaldlega aka öflugu rafmagnshjóli eða rafmagnskrossara á göngustígum eða í almennri umferð vegna þess að tækið gengur fyrir rafmagni.
Þarna bera foreldrar mikla ábyrgð.
Við þurfum að vita hvaða tæki við erum að kaupa handa börnunum okkar, hversu hratt þau komast og hvort búið sé að breyta þeim. Foreldrar ættu sjálfir að prófa tækin, skoða stillingar þeirra og ganga úr skugga um að börnin geti ekki einfaldlega tekið hraðatakmarkanir af. Börn hafa í raun ekkert erindi í umferðina að gera á þessum tækjum og ráða bara alls ekki við þennan hraða.
Við hvetjum foreldra á Suðurnesjum til að skoða þetta hjá sér og taka samtalið við börnin sín.
Við eigum ekki að þurfa alvarlegt slys til að vakna til vitundar um þetta.
Þetta snýst ekki um að taka skemmtunina frá krökkunum. Þetta snýst um að þau komi heil heim – og að aðrir vegfarendur geri það líka. Á svæðinu okkar er sérstök braut sem er frábær fyrir svona hjól og erum við nokkuð viss um að þeir sem sjá um þessa braut við Seltjörn fagni því að fá þessi ungmenni þangað til æfinga og aksturs.
Tölum við börnin okkar. Setjum þeim mörk. Fylgjumst með.
Það er miklu betra að taka erfiða umræðu við barnið sitt í dag en að þurfa að takast á við afleiðingar alvarlegs slyss á morgun.

Skertur nemendadagur og útinámsdagur :)
16/09/2026

Skertur nemendadagur og útinámsdagur :)

18. september útinámsdagur :)
11/09/2026

18. september útinámsdagur :)

Við í Gerðaskóla höfum orðið viðskila við heyrnartól sem fara í útlán. Nokkur virðast hafa farið á flakk og ekki skilað ...
11/09/2026

Við í Gerðaskóla höfum orðið viðskila við heyrnartól sem fara í útlán. Nokkur virðast hafa farið á flakk og ekki skilað sér aftur. Leynist nokkuð svona heyrnartól heima hjá þér?

Í dag hélt Magnús Orri, starfsmaður skólans, kynningu fyrir nemendur í 1. bekk um Tourette heilkenni, sem hann sjálfur e...
10/09/2026

Í dag hélt Magnús Orri, starfsmaður skólans, kynningu fyrir nemendur í 1. bekk um Tourette heilkenni, sem hann sjálfur er með.

Magnús sagði krökkunum frá því á einfaldan og skemmtilegan hátt hvað Tourette er, hvernig kækir geta birst og hvernig það er að lifa með heilkenninu í daglegu lífi.

Nemendurnir voru áhugasamir, hlustuðu vel og fengu tækifæri til að spyrja spurninga.

Svona fræðsla skiptir miklu máli. Með aukinni þekkingu og opnum samtölum getum við stuðlað að meiri skilningi, virðingu og umburðarlyndi gagnvart því að við erum öll ólík.

Takk fyrir 1.bekkur

Foreldrafundir 6.-10. bekkur 🙂
09/09/2026

Foreldrafundir 6.-10. bekkur 🙂

Foreldrafundir 1.-5.bekkur :)
08/09/2026

Foreldrafundir 1.-5.bekkur :)

Þessi lyklakippa fannst á bílaplaninu við Gerðaskóla - hægt er að nálgast hana hjá ritara skólans :)
28/08/2026

Þessi lyklakippa fannst á bílaplaninu við Gerðaskóla - hægt er að nálgast hana hjá ritara skólans :)

Best í flestu á morgun :)
03/06/2026

Best í flestu á morgun :)

Address

Garðbraut 90
Garður
250

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3544253050

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gerðaskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Gerðaskóli:

Shortcuts

Share