10/12/2019
Bréf barst undirirritaðri, fyrrverandi formanni Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla í dag, frá forseta Íslands. Það er þakkarbréf fyrir heimildir um Bessastaðaskóla sem bárust forsetaembættinu á dögunum um skólahaldið og áhrif skólans á íslenska menningu. Skólinn var húsa á Bessastöðum á fyrri helmingi 19. aldar (1805-1846).
Bréfið er svohljóðandi:
Bssastöðum, 4. október 2019
Kæra Ásdís
Ég þakka þér kærlega fyrir þá góðu sendingu sem barst hingað á Bessastaði fyrir skemmstu, merkilegar heimildir um sögu Bessastaðaskóla, staðarins hér, og lífið hér á Álftanesi á fyrri tíð. Ég kann svo sannarlega vel að meta þann hlýhug sem býr að baki. Enn fremur er þarna að finna dýrmæt gögn sem styðjast má við þegar semja þarf ávörp og ræður.
Félag um sögu Bessastaðaskóla skapaði þarfan vettvang fyrir rannsóknir sem lúta að merkum þætti þjóðsögunnar. Um það geta fróðleiksfúsir áheyrendur á viðburðum félagsins vitnað í áranna rás. Gott er að vita til þess að þau erindi, sem haldin hafa verið á vegum þess, megi einnig finna á Landsbókasafni - Þjóðarbókhlöðu og sömuleiðis á Þjóðskjalasafni Íslands með tíð og tíma.
Ég færi þér sérstakar þakkir fyrir atbeina þinn og forystu í þágu þessa góða málstaðar og óska þér alls velfarnaðar.
Með góðri kveðju,
Guðni Th. Jóhannesson