04/06/2024
🌟 Vertu með í 12 vikna hugarfars - ferðalagi á netinu! 🌟
Ég er spennt yfir því að geta boðið þér í sérstakt 12 vikna ferðalag sem hefst 11. júní n.k. (eftir mikla eftirspurn).
Þetta er samvera í gegnum netið á Zoom og er fyrir þær sem hafa upplifað þær öflugu umbreytingar sem fylgja því að fá mína innsýn og tillögur til þess að breyta hugsunum sínum, orðum og tilfinningum.
Allt sem þarf er að hafa kjark til að læra að deila þeiim upphátt, orða það sem maður er virkilega að meina og fá þar með mína innsýn (og annara) inn í það hvað virkilega liggur að baki og hvernig má hugsa hlutina með öðrum hætti.
Í þessum tímum eru AHA augnablikin almennt mjög mörg!
Á næstu 12 vikum munum við hittast á netinu tvisvar í mánuði í klukkutíma lotum, þar sem ég mun leiðbeina þeim sem óska eftir því, í gegnum æfingar, hugsanamynstur og tilfinningar ásamt því að deila dáleiðsluupptökum sem geta haft í för með sér varanlegar breytingar og mun meiri innri ró og sjálfsöryggöryggi.
Þessi verkfæri munu hjálpa til við að endurforrita undirmeðvitundina, breyta orku þinni og ná betri árangri. Þetta vita þær sem hafa áður verið á þessum námskeiðum.
Þú munt líka hafa aðgang að stuðningi á WhatsApp hópspjalli í vikunni á milli net-símtalana til þess að tryggja að allir komist að neð sínar spurningar. (Gæti breyst í FB hóp ef það hentar flestum frekar).
Þetta er staðurinn til að spyrja spurninga, deila innsýn og tengjast einstaklingum á sama ferðalagi, þ.e. þeim sem hafa einskæran áhuga á persónulegri þroskagöngu og að betrumbæta líf sitt.
Þetta er frábært tækifæri til að losna frá gömlum mynstrum, greina hugarfar og t.d. sigrast á þeirri hugsun og hegðun sem við berum ekki kennsl á hjá okkur sjálfum en öðrum þykir jafnvel svo áberandi og heftandi fyrir okkur. Allt gert svo þú getir breytt út af vananum og náð þeim árangri sem þú vilt ná.
Ef við gerum engar breytingar, þá breytist útkoman ekkert.
Svo má vera að þú teljir þig ekki þurfa að gera neinar breytingar, en þig langi samt sem áður í þetta áhugaverða hópspjall sem myndast og þá mögnuðu orku sem því fylgir!
Kynningarverð fyrir allt þetta, aðeins 22000 kr á mánuði! (Þrír mánuðir samtals).
Ekki missa af þessu tækifæri til að umbreyta hugarfarinu og lífinu í kjölfarið.
Skrifaðu athugasemd hér fyrir neðan eða sendu mér skilaboð ef þú ert reiðubúin að vera með í hópi sem mun samanstanda af konum sem allar ætla sér að halda einbeitingunni í sumar, setja sér markmið og/eða óska eftir innsæi og stuðningi frá okkur hinum. (Allt í fullum trúnaði að sjálfsögðu).
Námskeiðið hefst á Zoom þann 11. júní kl 20. (Ekki hafa áhyggjur af því að komast ekki í hóptímana, þeir verða teknir upp og aðgengilegir í mánuð eftir að námskeiði lýkur. Dáleiðslu upptökur fylgja með til eignar - fyrir þátttakendur eingöngu).
Takmarkaður fjöldi og lágmarksfjöldi 5 konur í hópnum til þess að námskeið hefjist. (Pssst, það má bjóða vinkonu ef hún hefur sama áhuga á því að skoða sitt hugarfar og bæta).
Við skulum leggja af stað í þessa ferð saman! 🚀