Urriðaholtsskóli

Urriðaholtsskóli Upplýsinga og tilkynninga síða fyrir skólann

Þessa dagana eru nemendur í 6. og 7. bekk að læra um ýmsar lífverur sem er að finna í náttúru Íslands. Við byrjuðum á að...
18/09/2026

Þessa dagana eru nemendur í 6. og 7. bekk að læra um ýmsar lífverur sem er að finna í náttúru Íslands. Við byrjuðum á að skoða plöntur og sveppi og í vikunni var góða veðrið nýtt til að fara út í náttúrubingó við Maríuhella. Þar þurftu nemendur að finna sveppi, fléttur, birkitré og fleira. Þegar bingóinu var lokið fóru margir nemendur að kanna betur umhverfið og leita að berjum, sem fannst þónokkuð af.

Ólympíuhlaupið í UrriðaholtsskólaMiðvikudaginn 9. september fór Ólympíuhlaupið fram í Urriðaholtsskóla við frábærar aðst...
14/09/2026

Ólympíuhlaupið í Urriðaholtsskóla
Miðvikudaginn 9. september fór Ólympíuhlaupið fram í Urriðaholtsskóla við frábærar aðstæður. Hlaupið fór fram í kringum Urriðavatn og tóku alls 485 nemendur, frá 5 ára deild og upp í 10. bekk, þátt í hlaupinu. Með nemendum hlupu einnig starfsmenn skólans og nokkrir foreldrar, sem við viljum sérstaklega þakka fyrir góða þátttöku og stuðning.
Stemningin var frábær og nemendur sýndu mikinn dugnað, gleði og samstöðu. Samanlagt hlupu þátttakendur hvorki meira né minna en 1.764 kílómetra!
Við erum einstaklega stolt af öllum sem tóku þátt og þökkum nemendum, starfsfólki og foreldrum fyrir frábæran dag.

Athugið – breytt dagsetning!Dagskráin sem átti að fara fram 15. september hefur verið færð til þriðjudagsins 29. septemb...
10/09/2026

Athugið – breytt dagsetning!

Dagskráin sem átti að fara fram 15. september hefur verið færð til þriðjudagsins 29. september

Endilega takið eftirmiðdaginn frá.
Nánari upplýsingar koma í næstu viku.

Hlökkum til að sjá ykkur! 🍂

Hlökkum til að sjá ykkur.
08/09/2026

Hlökkum til að sjá ykkur.

Urriðaholtsskóli er símalaus skóli
31/08/2026

Urriðaholtsskóli er símalaus skóli

Skólasetning, námskynningar og fyrsti skóladagurinnKæru forsjáraðilar og nemendurNú líður að því að skóli hefjist aftur ...
13/08/2026

Skólasetning, námskynningar og fyrsti skóladagurinn

Kæru forsjáraðilar og nemendur

Nú líður að því að skóli hefjist aftur að loknu sumarleyfi. Skólasetning Urriðaholtsskóla er mánudaginn 24. ágúst og fyrsti skóladagur er 25. ágúst. Vinsamlegast athugið að 24. og 25. ágúst eru með breyttu sniði miðað við skóladagatal.

*Skólasetning, mánudaginn 24. ágúst

Tímasetningar á yngsta stigi, mæting á sal:
2. bekkur kl. 08:30 - 09:20
3. bekkur kl. 09:30 - 10:20
4. bekkur kl. 10:30 -11:20
1. bekkur kl. 13:00 - 14:00

Nemendur í 1. - 4. bekk fara með starfsmönnum og fá kynningu á sundaðstöðu og íþróttasal þar sem þau geta leikið og spjallað. Á meðan fá forsjáraðilar námskynningu sem teymin sjá um, að því loknu sækja forsjáraðilar börnin sín og deginum er lokið.

Tímasetningar á mið og unglingastigi, mæting á sal
5. bekkur kl. 08:30 -09:20
6. bekkur kl. 09:30 -10:20
7. bekkur kl. 10:30 -11:20
Unglingastig kl. 14:00 -15:00

Nemendur í 5. - 10. bekk fara síðan með foreldrum upp á heimasvæði, þar sem kennarar sjá um námskynninguna.

*Fyrsti skóladagurinn, þriðjudaginn 25. ágúst

Dagurinn er skertur að hluta samkvæmt skóladagatali. Mæting í skóla:
Yngsta stig kl. 09:00 inn á heimasvæði
Miðstig og unglingastig kl. 09:30 inn á heimasvæði

Á heimasíðu skólans má finna helstu upplýsingar um skólastarfið í Urriðaholtsskóla, https://urridaholtsskoli.is/ og við hvetjum ykkur til að fylgja okkur á fésbókinni https://www.facebook.com/Urridaholtsskoli. Einnig er hægt að hlaða niður rafrænu dagatali gegnum heimasíðu Garðabæjar Rafræn skóladagatöl – Garðabær

Ef þið hafið spurningar eða vangaveltur um skólastarfið ekki hika við að hafa samband við kennara eða stjórnendur. Við hlökkum til samstarfsins í vetur og að hitta ykkur og börnin á mánudaginn.

Með kveðju frá stjórnendum Urriðaholtsskóla,

Þorgerður Anna, Una Guðrún, Guðrún, Jónína Klara og Guðbjörg

Alþjóðlegi drulludagurinn haldinn hátíðlegur í Urriðaholtsskóla.Mánudaginn 29. júní var Alþjóðlegi drulludagurinn haldin...
30/06/2026

Alþjóðlegi drulludagurinn haldinn hátíðlegur í Urriðaholtsskóla.
Mánudaginn 29. júní var Alþjóðlegi drulludagurinn haldinn hátíðlegur í Urriðaholtsskóla við mikinn fögnuð barna og starfsfólks. Á hverju ári ríkir mikil tilhlökkun fyrir þessum skemmtilega degi og að þessu sinni brást veðrið ekki vonum okkar. Rigningin lét sjá sig og hjálpaði til við að magna upp drullugleðina enn frekar.
Starfsfólk á leikskólastigi hafði undirbúið daginn af kostgæfni og sett upp fjölbreyttar stöðvar á útisvæði skólans þar sem börnin gátu leikið sér, rannsakað og skapað í drullunni. Í hinu vinsæla drullueldhúsi voru útbúnar sannkallaðar eðal drullukræsingar og um alla lóð voru born í skapandi leik og samvinnu.
Listsköpun setti einnig svip sinn á daginn þar sem börnin nýttu drulluna á fjölbreyttan hátt til að skapa einstök og skemmtileg listaverk. Gleðin, forvitnin og leikurinn voru allsráðandi og dagurinn minnti okkur enn á mikilvægi útiveru, sköpunar og óhefts leiks í námi barna.
Við leyfum meðfylgjandi myndum að segja meira en mörg orð um þessa frábæru stund í skólastarfinu.

10. Júní skólaslit
03/06/2026

10. Júní skólaslit

Fimi boðhlaup í góða veðrinuEinn lestrarhópur í 1. bekk nýtti góða veðrið og skellti sér út í morgun í lestrarfimi boðhl...
03/06/2026

Fimi boðhlaup í góða veðrinu

Einn lestrarhópur í 1. bekk nýtti góða veðrið og skellti sér út í morgun í lestrarfimi boðhlaup.

Address

Vinastræti 1-3
Garðabær
210

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Urriðaholtsskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Urriðaholtsskóli:

Shortcuts

Share