Hofsstaðaskóli

Hofsstaðaskóli Hér verða birtar fréttir og tilkynningar sem einnig eru birtar á vef skólans http://www.hofssta

Á Facebook síðu Hofsstaðaskóla verða birtar fréttir, tilkynningar og myndir sem einnig eru birtar á vef Hofsstaðaskóla www.hofsstadaskoli.is

UMFERÐARÖRYGGI - FERÐAVENJURGóðan daginn, þetta erindi hefur þegar verið sent í mentor en við viljum fá miklu fleiri svö...
21/09/2026

UMFERÐARÖRYGGI - FERÐAVENJUR
Góðan daginn, þetta erindi hefur þegar verið sent í mentor en við viljum fá miklu fleiri svör og tillögur!

Garðabær vinnur nú að endurskoðun umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið. Einn mikilvægur þáttur í þeirri vinnu er að framkvæma ferðavenjukönnun meðal skólabarna, þar sem aflað er upplýsinga um gönguleiðir þeirra í skólann og ferðavenjur. Niðurstöður könnunarinnar verða nýttar til að greina hvort og hvar þörf sé á frekari aðgerðum sem stuðla að auknu umferðaröryggi skólabarna og jafnframt annarra íbúa sveitarfélagsins. Könnunin er stafræn, fer fram á netinu og er lögð fyrir nemendur í 3., 6. og 9. Bekk á skólatíma.

Í könnuninni svara nemendur fyrst nokkrum spurningum um hvernig þeir komu í skólann þennan dag og hvernig þeir koma í skólann vanalega. Að því loknu sjá þeir loftmynd af Garðabæ þar sem staðsetning grunnskóla kemur fram og eru beðnir um að teikna sína göngu- eða hjólaleið í skólann.

Samhliða þessu er verið að efna til stafræns íbúasamráðs, þar sem íbúum gefst tækifæri til að koma á framfæri sínum ábendingum. Við leitum eftir upplýsingum frá ykkur um þá hættustaði sem þið upplifið í umferðinni, ásamt því að staðsetja þá á korti.

Ábendingagáttin verður opin til 25. september nk. í gegnum eftirfarandi hlekk https://www.gardabaer.is/frettir/aukid-umferdaroryggi-i-gardabae

Láttu í þér heyra – þú þekkir þitt nærumhverfi best!

Garðabær vinnur nú að endurskoðun umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið. Markmið hennar er að móta aðgerðaráætlun sem stuðlar að auknu öryggi, fækkun slysa og betri lífsgæðum fyrir íbúa og aðra vegfarendur.

Áhugavert námskeið fyrir foreldra.
10/09/2026

Áhugavert námskeið fyrir foreldra.

23/08/2026

Dagatöl leik- og grunnskóla Garðabæjar eru aðgengileg fyrir dagatöl á Google, Apple eða Microsoft Outlook.

13/08/2026

Skólasetning Hofsstaðaskóla 2026

Nemendum og forráðafólki er boðið á skólasetningu mánudaginn 24. ágúst. Haustfundur samhliða skólasetningu. Umsjónarkennarar taka á móti nemendum og forráðafólki í bekkjarstofum. Farið verður yfir ýmis atriði varðandi áherslur í skólastarfinu, skólareglur, skólabrag og samstarf heimila og skóla.

Nemendur fá öll námsgögn í skólanum. 5. – 7. bekkur þarf að koma með pennaveski.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst og frístundaheimilið Regnboginn opnar.

Tímasetning Árgangur Stofur
9.00 - 12.00* 1. bekkur 204, 205, 207, 208
9.00 - 10.00 2. bekkur 209, 210, 211
10.00 - 11.00 3. bekkur 108, 109, 110
11.00 - 12.00 4. bekkur 220, 221, 222, 223
12.00 - 13.00 5. bekkur 113, 111, 219
13.00 - 14.00 6. bekkur 105, 106, 107
14.00 - 15.00 7. bekkur 120, 121, 122, 123

*Forráðafólk í 1. bekk fær fundarboð frá umsjónarkennurum.

Fræðslufundur um lestur og haustfundur með forráðafólki í 1. bekk verður fimmtudaginn 3. september kl. 17:00. – 18:40.

Skráning í hádegismat hjá Skólamat www.skolamatur.is hefst 20. ágúst.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Kveðja starfsfólk Hofsstaðaskóla

Kæra forráðafólk í HofsstaðaskólaNýtt skólastarf er í undirbúningi og gengur vel. Sú breyting verður gerð að skóli hefst...
27/07/2026

Kæra forráðafólk í Hofsstaðaskóla
Nýtt skólastarf er í undirbúningi og gengur vel. Sú breyting verður gerð að skóli hefst kl. 8.20 á morgnana í stað 8.30 eins og verið hefur.
Þetta er gert til þess að reyna að samræma skólalok nemenda í grunnskólum Garðabæjar og skipulag íþrótta- og tómstundastarfs. Stundatöflur nemenda færast fram um 10 mínútur.
Afar mikilvægt er að láta okkur vita ef breytingar verða á skólavist barnanna ykkar t.d. ef flutningar eru framundan. Vinsamlega sendið erindi á hskoli@hofsstadaskoli ef það á við um ykkur. Skrifstofa skólans opnar 4. ágúst kl. 10.00
Sumarfrístund fyrir 1. bekkinga hefst 14. ágúst og fyrir 2. bekk 17. ágúst. og er frá kl. 9.00-16.00. Skráningu lauk í júní.
Hlökkum til að hitta ykkur á skólasetningu og haustfundi mánudaginn 24. ágúst. Kennsla hefst þriðjudaginn 25. ágúst skv. stundaskrá.
f.h. stjórnenda og starfsfólks
Hafdís Bára, skólastjóri

Tölur frá því í gær yfir skil á bokasafnsbókum.
09/06/2026

Tölur frá því í gær yfir skil á bokasafnsbókum.

Skólaslit 2026Skólaslit verða í Hofsstaðaskóla miðvikudaginn 10. júní. Nemendur mæta í samveru á sal og fara síðan í bek...
08/06/2026

Skólaslit 2026

Skólaslit verða í Hofsstaðaskóla miðvikudaginn 10. júní. Nemendur mæta í samveru á sal og fara síðan í bekkjarstofur með umsjónarkennurum. Forráðafólk er velkomið með á skólaslitin.
• Kl. 9.00 1. og 2. bekkur
• Kl. 10.00 3. og 4. bekkur
• Kl. 11.00 5. og 6. bekkur
• Kl. 12.00 7. bekkur

Hentugt er að koma gangandi í skólann þennan dag ef kostur er eða nota bílastæðin við FG þar sem er nóg pláss.

Minnum á að fara vel yfir heima hvort þar séu bækur af bókasafni skólans eða námsbækur og koma með þær í skólann. Enn vantar mikið af bókum!

Ítrekum mikilvægi þess að láta vita ef breytingar verða á skólavist nemenda næsta skólaár.

Skólastarf hefst á nýju skólaári með skólasetningu mánudaginn 24. ágúst.

Starfsfólk og stjórnendur Hofsstaðaskóla þakka fyrir samstarfið á skólaárinu sem er að líða og senda bestu kveðjur um ánægjulegt sumarleyfi.

Minnum á bókasafnsbækur sem þarf að skila. Á myndinni má sjá hversu mörgum bókum hver árgangur á eftir að skila inn í da...
03/06/2026

Minnum á bókasafnsbækur sem þarf að skila. Á myndinni má sjá hversu mörgum bókum hver árgangur á eftir að skila inn í dag.

Kennarar óskast á okkar góða vinnustað. Sjá nánar á vefsíðu Garðabæjar/laus störf og á ráðningarvefnum Alfreð. Hver vill...
27/05/2026

Kennarar óskast á okkar góða vinnustað. Sjá nánar á vefsíðu Garðabæjar/laus störf og á ráðningarvefnum Alfreð. Hver vill ekki vinna á svona vinnustað:

Skólaslit 2026Skólaslit verða í Hofsstaðaskóla miðvikudaginn 10. júní. Nemendur mæta í samveru á sal og fara síðan í bek...
26/05/2026

Skólaslit 2026

Skólaslit verða í Hofsstaðaskóla miðvikudaginn 10. júní. Nemendur mæta í samveru á sal og fara síðan í bekkjarstofur með umsjónarkennurum. Forráðafólk er velkomið með á skólaslitin.

• Kl. 9.00 1. og 2. bekkur
• Kl. 10.00 3. og 4. bekkur
• Kl. 11.00 5. og 6. bekkur
• Kl. 12.00 7. bekkur

Address

Skólabraut
Garðabær
210

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:30
Tuesday 08:00 - 15:30
Wednesday 08:00 - 15:30
Thursday 08:00 - 15:30
Friday 08:00 - 15:00

Telephone

590-8100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hofsstaðaskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share