Þekkingarmiðlun - námskeið og fyrirlestrar

Þekkingarmiðlun - námskeið og fyrirlestrar Við sérhæfum okkur í því að miðla þekkingu með námskeiðum, þjálfun og fyrirlestrum.

Hver verður staða mín við starfslok?Fyrirlesturinn vekur upp margar spurningar sem gott er að skoða tímanlega og komast ...
02/09/2026

Hver verður staða mín við starfslok?

Fyrirlesturinn vekur upp margar spurningar sem gott er að skoða tímanlega og komast úr því að halda, sem veldur áhyggjum, yfir í að vita, sem veitir öryggi. Hann hentar þeim sem eru komnir yfir fimmtugt og stefna á að eiga áhyggjulaust ævikvöld.

Fyrirlesari: Guðmundur Ragnarsson er vélfræðingur og starfaði sem formaður VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna í tíu ár. Hann var stjórnarmaður í Gildi lífeyrisjóði í átta ár og sat í miðstjórn ASÍ í tíu ár. Hann rekur í dag GR ráðgjöf og veitir fólki persónulega ráðgjöf varðandi starfslok. Hann heldur einnig námskeið á vegum Þekkingarmiðlunar.

Námskeiðið er ókeypis. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Hvernig á að takast á við fjárhagslegar og félagslegar breytingar?

Frábær grein eftir Herdísi Pálu."Ef við ætlum að taka umræðu um framleiðni alvarlega þurfum við að taka umræðu um sí- og...
25/03/2026

Frábær grein eftir Herdísi Pálu.

"Ef við ætlum að taka umræðu um framleiðni alvarlega þurfum við að taka umræðu um sí- og endurmenntun jafn alvarlega. Hún er ekki eitthvað aukaatriði, hún er grunnforsenda."

„Ef við ætlum að taka umræðu um framleiðni alvarlega þurfum við að taka umræðu um sí- og endurmenntun jafn alvarlega.“

Um er að ræða hagnýta vinnustofu 26. mars kl. 9-12 sem hentar öllum sem vilja skilja betur fyrirbærið og ná að virkja kr...
16/03/2026

Um er að ræða hagnýta vinnustofu 26. mars kl. 9-12 sem hentar öllum sem vilja skilja betur fyrirbærið og ná að virkja kraftinn sem felst í streitunni.

Nýjustu streiturannsóknir sýna að við höfum stórlega vanmetið þau miklu jákvæðu áhrif sem streita getur haft á okkur. Í metsölubókinni The Upside of Stress eftir heilsusálfræðinginn PhD Kelly McGonigal við Stanford háskóla eru teknar saman fjölmargar rannsóknir sem varpa lj....

Á námskeiðinu verður farið yfir það hvernig eigi að ræða erfið starfsmannamál og færa slæm tíðindi. Bæði verður farið yf...
23/02/2026

Á námskeiðinu verður farið yfir það hvernig eigi að ræða erfið starfsmannamál og færa slæm tíðindi. Bæði verður farið yfir fræðilega umfjöllun um þessi erfiðu mál og æft hvernig best er að standa að þeim. Þátttakendur fá þjálfun í aðferðum við viðtalstækni sem skila sér í betri og uppbyggilegri viðtölum.

Það eru nokkur stjórnunarleg verkefni sem flestir stjórnendur eiga í erfiðleikum með að framkvæma. Annað þeirra er að ræða ófullnægjandi frammistöðu við starfsmenn og hitt er að færa slæm tíðindi eins og þegar starfsmaður fær ekki stöðuhækkun eða er sagt upp störfum. ...

"Varlega áætlað má gera ráð fyrir að um 10% af vinnutíma fólks fari í að skrolla samfélagsmiðla á dag.  Þetta hlutfall n...
18/02/2026

"Varlega áætlað má gera ráð fyrir að um 10% af vinnutíma fólks fari í að skrolla samfélagsmiðla á dag. Þetta hlutfall nær þó aðeins yfir notkun samfélagsmiðla í tölvum."

Hvað ert þú mikið á samfélagsmiðlum á vinnutíma, bæði í tölvunni og símanum?

Það hljómar kannski óraunverulega nú en þegar fyrstu samfélagsmiðlarnir komu á markaðinn veltu stjórnendur vinnustaða því margir fyrir sér hvort það ætti að banna notkun samfélagsmiðla á vinnutíma eða ekki.

Margir telja að spjall við ókunnugan verði vandræðalegt eða þreytandi, sérstaklega þegar við erum lúin eða einfaldlega e...
03/02/2026

Margir telja að spjall við ókunnugan verði vandræðalegt eða þreytandi, sérstaklega þegar við erum lúin eða einfaldlega ekki í stuði.

En rannsóknir sýna að við höfum rangt fyrir okkur.

Hefur þú einhvern tíma setið í almannarými, með heyrnartól í eyrunum og augun límd við símann, í þeirri von að enginn tali við þig? Þú ert líklega ekki ein/n um það.

Námskeiðið byggir á verkum Kim Cameron, prófessors við Háskólann í Michigan og stofnanda Center for Positive Organizatio...
29/01/2026

Námskeiðið byggir á verkum Kim Cameron, prófessors við Háskólann í Michigan og stofnanda Center for Positive Organizations. Hann er einn áhrifamesti frumkvöðull á sviði jákvæðrar forystu og hefur sett fram fjölmargar öflugar aðferðir í ritum sínum.

Námskeiðið er sniðið fyrir leiðtoga, stjórnendur og þátttakendur sem vilja styrkja forystuhæfni sína og byggja upp jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi sem elur af sér góða vinnu og árangur.

Jákvæð forysta hefur hlotið aukna athygli á síðustu árum þar sem margar áhugaverðar rannsóknir hafa leitt í ljós hvernig hægt er að nýta bestu aðferðir til að efla vinnustaði og starfsandann. Hugtakið jákvæð forysta byggir á rannsóknum sem einblína á jákvæð frávik, ....

Hér er frábær grein um veikindaréttinn."Það er ekki nóg að semja um réttindi. Við verðum einnig að fræða, setja réttindi...
27/01/2026

Hér er frábær grein um veikindaréttinn.

"Það er ekki nóg að semja um réttindi. Við verðum einnig að fræða, setja réttindin í samhengi og ræða þá ábyrgð sem þeim fylgir. Stéttarfélögin verða að styðja við félagsfólk í veikindum, en um leið sýna festu í því að hvetja fólk aftur til starfa. Með því að færa fókusinn frá passívri aðstoð yfir í virkni, endurkomu og ábyrgð styrkjum við bæði einstaklingana og kerfið í heild."

Hjá Visku stéttarfélagi er virkni og endurkoma kjarninn í allri ráðgjöf um veikindarétt á vinnumarkaði. Markmiðið er einfalt; að félagsfólk nýti réttinn með það fyrir augum að ná bata og komast aftur til virkrar þátttöku í lífi og starfi.

GLEÐIMAPPANGleðimappa í símanum er einfalt en áhrifaríkt verkfæri til að auka vellíðan, sérstaklega á dögum þegar sjálfs...
19/01/2026

GLEÐIMAPPAN

Gleðimappa í símanum er einfalt en áhrifaríkt verkfæri til að auka vellíðan, sérstaklega á dögum þegar sjálfstraustið vantar, orkan er lítil eða hugurinn sækir í efasemdir. Hún geymir skjáskot og myndir sem minna okkur annars vegar á það sem við höfum áorkað og hins vegar á að við erum elskuð, metin að verðleikum og að skiptum máli í lífi annarra.

Í möppuna má safna hlýlegum og hjartnæmum skilaboðum frá vinum, fjölskyldu og samstarfsfólki sem veita okkur styrk þegar við þurfum mest á honum að halda. Einnig er gott að geyma þar jákvæða endurgjöf og þakklætisorð sem minna okkur á þau áhrif sem við höfum, jafnvel þegar við sjálf eigum erfitt með að bera kennsl á þau.

Hægt er að búa til tvær gleðimöppur, eina fyrir vinnu og aðra fyrir einkalífið. Auk fallegra skilaboða má setja í möppuna myndir af dýrmætum minningum, áföngum sem náðst hafa, stórum sem smáum sigrum og augnablikum sem vöktu hlátur, hlýju eða stolti. Allt þetta getur orðið að öflugri áminningu um hver við erum og hvað við höfum þegar áorkað.

Þegar við erum ekki í stuði, finnum fyrir sjálfsefa eða þurfum einfaldlega á áminningu að halda, er gott að opna gleðimöppuna og leyfa henni að minna okkur á það sem skiptir máli.

Address

Sjávargata 29
Garðabær
225

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+3548922987

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Þekkingarmiðlun - námskeið og fyrirlestrar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Þekkingarmiðlun - námskeið og fyrirlestrar:

Shortcuts

Share