08/03/2026
SKRÁNING Á BIÐLISTA HAFIN Á [email protected]. Fjögurra daga námskeiðin 13. -16. og 27. - 30. apríl eru fullskipuð en eins og dæmin sanna verða yfirleitt afföll, oft síðustu dagana fyrir mætingu.
Hér eru helstu upplýsingar um námskeiðið:
*Námskeiðið fer fram í bjartri og rúmgóðri vinnustofu minni í miðbæ Garðabæjar.
*Skráning og fyrirspurnir á [email protected]
*Aðeins 7 nemendur, sem eru einir um afnot af rýminu á meðan námskeiðið varir. Fagleg, einstaklingsmiðuð kennsla í hlýlegu og rúmgóðu rými. 25 ára reynsla.
*NÁMSKEIÐIÐ ER FYRIR BYRJENDUR OG LENGRA KOMNA OG MYNDEFNI OG STÍLL EFTIR VALI HVERS OG EINS.
*Tímasetningar:
Mán – Fim. 10:00 – 16:00 +
*Trönur eru á staðnum, myndvarpi, lyktarlaus terpentína og olía. Nemendur koma með olíuliti, pensla og striga til að mála á. Tillögu að lágmarks innkaupum fá nemendur eftir skráningu.
Kaffi og te alla dagana er innifalið í námsskeiðsgjaldinu.
Nemendur vinna með eigin hugmyndir og fá aðstoð við að útfæra þær af eigin ljósmyndum og eða skissum sé þess óskað.
Innritun og fyrirspurnir með tölvupósti á [email protected]
* Verð: 75.000
*NÁMSLÝSING:
Á námskeiðinu er lagt upp með aðferðinni “að mála frá mögru upp í feitt”, aðferð sem hefur reynst vel til að forðast algeng mistök við olíumálun. Fleiri aðferðir reyndar, eins og tími og áhugi leyfir. *Teiknikunnáta óþörf.
Myndvarpi er notaður til að færa teikningu á strigann og minnka þannig undirbúningstímann og aðal áherslan er lögð á málverkið að nemandinn læri að mála með olíulitum á striga.
Fjallað verður um tæknileg atriði s.s. íblöndunarefni, grunna, efnasamsetningu lita og íblöndunarefna, hvaða efni henta áferð og yfirborði málverksins. Einnig er fræðsla um, blindramma, striga og annað undirlag, pensla og önnur verkfæri tengd málun.
Leitast er við að leggja grunn að því að nemendur öðlist færni, aukinn kjark, þor og þekkingu á myndlist, sem auk vinnunnar felst í að fletta inn í kennsluna dæmi og fróðleik úr listasögunni.