Sjálandsskóli

Sjálandsskóli Fréttir og upplýsingar úr starfi skólans

Undankeppni Sjálandsskóla fyrir Stóru upplestrarkeppnina fór fram föstudaginn 5. apríl 2024. Þátttakendur voru tíu talsi...
05/04/2024

Undankeppni Sjálandsskóla fyrir Stóru upplestrarkeppnina fór fram föstudaginn 5. apríl 2024. Þátttakendur voru tíu talsins og lásu þeir úr sögunni „Víti í Vestmannaeyjum: Fótboltasagan mikla“ eftir Gunnar Helgason og ljóð að eigin vali. Stóðu nemendur sig með stakri prýði og ánægjulegt var að sjá hversu mikla vinnu nemendur lögðu í undirbúning fyrir þessa keppni og metnað þeirra.

Fulltrúar Sjálandsskóla árið 2024 eru Íris Ásta Magnúsdóttir, Þóra Karen Jónsdóttir og Emil Freyr Guðjónsson er varamaður liðsins.

Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar verður haldin í sal Sjálandsskóla fimmtudaginn 18. apríl þar sem fulltrúar allra skóla Garðabæjar keppa.

04/04/2024

Verðlaun veitt í Greindu betur

Verðlaunaafhending fór fram í gær í undankeppni Evrópsku tölfræðikeppninnar. Keppnin heitir Greindu betur og er á vegum Hagstofu Íslands. Verðlaunin veitti Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri.
Keppnin er þverfaglegt tilraunaverkefni sem ætlað er að veita unglingum á aldrinum 14 til 18 ára tækifæri til þess að efla hæfni sína í því að nýta upplýsingar á ábyrgan, skapandi og gagnrýninn hátt og getu sína til þess að taka upplýstar ákvarðanir.
Fyrsta sætið í yngri flokknum hlaut liðið Goðar frá Sjálandsskóla með verkefnið Tekjur á Íslandi. Í því liði voru Þorkell Gauti H Dungal, Matthías Þór Ólafsson og Róbert Kári Jónsson, nemendur í 10. bekk. Þeir hafa þar með tryggt sér þátttökurétt í Evrópsku tölfræðikeppninni.
Í öðru sæti var liðið Ernirnir einnig frá Sjálandsskóla með verkefnið Greining á ferðamennsku hér á landi. Í því liði voru Egill Dofri Agnarsson og Birkir Snær Ólafsson, einnig nemendur í 10. bekk.
Liðstjóri liðanna var Arngerður Jónsdóttir, náttúrufræðikennari unglingadeildar Sjálandsskóla.
Þetta er frábær árangur hjá þessum nemendum í unglingadeild Sjálandsskóla, að ná fyrsta og öðru sæti, sérstaklega þar sem þetta er keppni á landsvísu. Þeir eru sér og skólanum til mikils sóma og erum við mjög stolt af þeim.

Blár dagur á morgun.  Mætum í bláum fötum og sýnum með því íslenska handbolta landsliðinu stuðning.
15/01/2024

Blár dagur á morgun. Mætum í bláum fötum og sýnum með því íslenska handbolta landsliðinu stuðning.

28/11/2023

Jólaföndur á morgun. Mætum í jólapeysu
🧑‍🎄🎅

Þessi úlpa tapaðist í skólanum á föstudag. Hún er í stærð 164 og  merkt JBP. Nánari uppl.á skrifstofu skólans
20/11/2023

Þessi úlpa tapaðist í skólanum á föstudag. Hún er í stærð 164 og merkt JBP. Nánari uppl.á skrifstofu skólans

19/10/2023

Bleikur dagur á morgun 👚
20.október

Forvarnarvika Garðabæjar
06/10/2023

Forvarnarvika Garðabæjar

14/09/2023

Símkerfi skólans liggur niðri. Tölvudeild er að vinna að viðgerð

Address

Langalína 8
Garðabær
210

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sjálandsskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Sjálandsskóli:

Shortcuts

Share