28/03/2023
Á skrifstofunni eru óskilamunir síðan úr skíðaferðinni. Skoðið myndina og athugið hvort þið þekkið þá :)
Álftanesskóli, grunnskóli.
28/03/2023
Á skrifstofunni eru óskilamunir síðan úr skíðaferðinni. Skoðið myndina og athugið hvort þið þekkið þá :)
23/03/2023
Hér sjái þið auglýsingar fyrir þemadaga í tilefni árshátíðarviku nemenda.
22/02/2023
Við í 10.bekk viljum minna á Öskudagsskemmtunina á morgun þann 22. Febrúar. ATH - tökum aðeins við pening, það verður ekki posi á svæðinu. Hlökkum til að sjá sem flesta!🤩
20/02/2023
Miðvikudaginn 22. febrúar er öskudagur og er sveigjanlegt skólastarf hjá nemendum þann dag.
Skóladagurinn hefst klukkan 9:00 og lýkur eftir hádegisverð. Nemendur í 10. bekk koma á mismunandi tímum í skólann en upplýsingar um þeirra viðveru fá þeir hjá umsjónarkennurum.
Skólinn er opinn frá klukkan 8:00 fyrir þá nemendur sem þurfa að koma fyrr, þeir mæta þá á bókasafnið. Á öskudag ætlum við að brjóta upp skólastarfið og gera okkur glaðan dag með ýmsum hætti. Gaman væri ef nemendur og starfsmenn kæmu í búningum eða furðufötum í tilefni dagsins.
Álftamýri frístundaheimili tekur við þeim börnum sem þar eru skráð eftir að skóla lýkur.
Vikuna 13. - 17. febrúar er vetrarleyfi í öllum grunnskólum Garðabæjar. Álftamýri frístundaheimili er opið þeim börnum sem hafa verið skráð sérstaklega þá vikuna.
Við vonum að nemendur og fjölskyldur þeirra hafi það gott í vetrarleyfinu og að nemendur mæti endurnærðir og hressir í skólann mánudaginn 20. febrúar skv. stundaskrá. Sá dagur er bolludagur og því mega nemendur koma með bollu í nesti.
Námsviðtöl 31. janúar
Þriðjudaginn 31. janúar eru námsviðtöl í Álftanesskóla. Frístundaheimilið Álftamýri er opið frá kl. 8:30 -16:30 fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir sérstaklega.
Við verðum með nemendaþing/skólaþing hér í Álftanesskóla miðvikudaginn 25. janúar í matsal skólans. Það væri frábært ef að einhverjir foreldrar væru tilbúnir til þess að koma og taka þátt með okkur.
Miðstigið, 5. - 7. bekkur verður með sitt þing kl. 8:30-9:30 og unglingastig, 8. - 10. bekkur kl. 10-11.
Nemendaráð hefur útbúið spurningar sem verða ræddar í 10-12 hópum og nemendur í nemendaráði eru einnig hópstjórar.
Að loknu nemendaþingi vinnur nemendaráð úr niðurstöðum sem verða kynntar fyrir skólasamfélaginu og unnið verður að úrbótum þar sem hægt er.
Síðast var haldið nemendaþing árið 2019 og það sem hefur áunnist síðan þá er m.a. eftirfarandi:
- samtal við Skólamat (oftar kjötsúpa, KFC kjúklingur, kjúklingur í karrý, samlokugrill f.nemendur)
- skápar á elsta stigi
- þrýstingur á endurnýjun skólalóðar og nú höfum við battavöll og körfuboltavöll. Fleiri leiktæki á leiðinni m.nýrri lóð.
- skólinn byrjar seinna á elsta stigi suma daga
Endilega sendið póst á [email protected] og látið mig vita ef þið sjáið ykkur fært að mæta. Það er velkomið að vera með báðum stigum en einnig hægt að koma bara kl. 8:30 eða kl. 10.
Miðvikudaginn 11. janúar er skipulagsdagur í grunnskólum Garðabæjar og nemendur mæta því ekki í skólann þann dag. Álftamýri frístundaheimili er opið fyrir þá nemendur sem eru þar skráðir.
20/12/2022
Jólakveðja
Starfsfólk Álftanesskóla sendir öllum foreldrum / forráðamönnum og nemendum sínar bestu jóla– og nýárs óskir. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Kennsla hefst að loknu jólaleyfi á nýju ári mánudaginn 2. janúar samkvæmt stundaskrá.
15/12/2022
Jólaskemmtanir
Mánudaginn 19. desember verður jólaskemmtun hjá unglingastigi kl. 19:30-21:30.
Jólaskemmtanir hjá 1. - 7. bekk verða þriðjudaginn 20. desember kl. 9:00-11:00 og mæta nemendur í heimastofur.
Nemendur í 4. bekk mæta kl. 8:30 til að undirbúa sýningu á helgileiknum sem hefst kl. 9:10 á sal skólans fyrir 1.-3. bekk.
Kl. 9:30 ganga 1.,3.,5. og 6. bekkur saman í kringum jólatréð.
Kl. 10:00 ganga 2., 4. og 7. bekkur saman í kringum jólatréð.
Tekið verður á móti nemendum sem þurfa að koma fyrr kl. 8:15 á bóksafninu.
Skóla lýkur kl. 11:00 og tekur Álftamýri frístundaheimili við þeim börnum sem þar eru skráð að skóladegi loknum.
Í dag 19. október kl. 16:30 efnir bæjarstjóri og Grunnstoð Garðabæjar til sameiginlegs viðburðar í Sveinatungu á Garðatogi 7. Tilefnið er að þakka þeim foreldrum sem tóku þátt í innleiðingu á svokölluðu foreldrarölti sl. vetur og vekja athygli á foreldraröltinu sem verður haldið áfram með á föstudagskvöldum í vetur og hvetja fleiri foreldra til þátttöku í því.
Grunnstoð átti frumkvæði að vakningu foreldraröltsins sl. vetur. Markmið þess er að efla samstarf og virkni foreldra til að verða sýnilegri og samstilltari þegar kemur að uppeldi og velferð barna þeirra og annarra barna í bæjarfélaginu, börnunum til heilla. Grunnstoð hefur að geyma fulltrúa í öllum grunnskólum bæjarins og er tilgangur hennar að efla rödd foreldra sem hagsmunahóps og sameina krafta þeirra til góðra verka í skólamálum.
Helena Rut Sigurðardóttir - sérkennslustjóri með master í Foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf verður með hugvekju með yfirskriftinni "hvað fæst út úr því að vera virkur foreldri og hvað fá aðrir út úr því?" Vonandi verður hugvekja ísbrjótur fyrir foreldrana að kynnast betur og undirbúa sig fyrir foreldrarölt vetrarins. Grunnstoð verður með örstutta kynningu á foreldraröltinu og sínu starfi. Í boði verða léttar veitingar og Eyþór Ingi mun syngja nokkur lög.
Grunnstoð vonast eftir góðri mætingu.
19/10/2022
Fimmtudaginn, 27. október, eru námsviðtöl í Álftanesskóla, opnað verður fyrir skráningar í viðtölin í gegnum Mentor í dag 19.október og opið verður fyrir skráningar til 24. október.
Föstudaginn 28. október er skipulagsdagur í grunnskólum Garðabæjar og því enginn skóli hjá nemendum þann dag.
Frístundaheimilið Álftamýri er opið á fimmtudaginn fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir en á föstudeginum er það lokað.
Athugið að námsviðtöl hjá nemendum í 1. og 9. bekk eru með öðrum hætti og sjá umsjónarkennarar um að vera í sambandi við forrráðamenn.
| Monday | 06:30 - 18:00 |
| Tuesday | 06:30 - 18:00 |
| Wednesday | 06:30 - 18:00 |
| Thursday | 06:30 - 18:00 |
| Friday | 06:30 - 18:00 |