Hönnunarsafn Íslands

Hönnunarsafn Íslands Opið alla daga nema mánudaga 12-17 / Open daily from 12-17 except Mondays.

23/09/2026

Oriental Poppies—beginning again, letting go of past notions, and allowing each flower to tell its own story, from full bloom to the quiet remnants of its final petals.

Available now at
21.000kr.

Paper Flower Artist

22/09/2026

.einars

Við þurfum ekki að kvíða vetrinum því blómin munu halda áfram að springa út í safninu hjá Catherine Oxley sem pappírsbló...
21/09/2026

Við þurfum ekki að kvíða vetrinum því blómin munu halda áfram að springa út í safninu hjá Catherine Oxley sem pappírsblómameistara sem var að flytja inn í vinnustofudvöl. Eldblómin hennar Siggu Soffíu lífga líka heldur betur upp á tilveruna. Sem sagt allt í blóma 🌸🌼🌺um leið og gengið er inn á safnið þessa dagana.

Víðsjá kom í heimsókn á Hönnunarsafnið og tók viðtal við Kötlu Einarsdóttur um sýninguna Saumó.  Hægt er að hlusta á við...
11/09/2026

Víðsjá kom í heimsókn á Hönnunarsafnið og tók viðtal við Kötlu Einarsdóttur um sýninguna Saumó.

Hægt er að hlusta á viðtalið hér

Sýningin Saumó er hluti af sýningaröðinni Heimsókn á Hönnunarsafni Íslands og er viðfangsefnið hlutverk og form saumaklúbba nú á tímum. En á sýningunni upplifa gestir sig sem „flugu á vegg“ og fá að gægjast inn í ólíka klúbba. Katla Einarsdóttir, grafískur hönnuður, ...

Sigga Soffía Níelsdóttir hleypti fjölskyldudagskrá haustsins af stokkunum í Hönnunarsafni Íslands eins og henni einni er...
07/09/2026

Sigga Soffía Níelsdóttir hleypti fjölskyldudagskrá haustsins af stokkunum í Hönnunarsafni Íslands eins og henni einni er lagið með ELDBLÓMA JELLY! smiðju. Í smiðjunni fengu þátttakendur innsýn í matarhönnun á leikandi og litríkan hátt undir handleiðslu þeirra Siggu Soffíu og Örvars bakarameistara. Það var gaman að sjá kynslóðir mætast í einlægri gleði að fá loksins að leika sér með matinn (!) og fara á flug með æt blóm, matarsprey og demantaskurð. Það er einmitt svona sem við viljum hafa verkstæðið okkar - fullt af fólki að springa úr sköpunarkrafti!

Við þökkum öllum hjartanlega fyrir komuna og sjáumst að mánuði liðnum þegar taka við keflinu með næstu skapandi smiðju. Allar smiðjurnar okkar eru ókeypis og öllum opnar, sem hluti af menningardagskrá Garðabær.

Ljósmyndir: Marino Thorlacius

06/09/2026
Namminamm!!!Við keyrum af stað fjölskyldudagskrá vetrarins með pompi og prakt næstkomandi sunnudag, þann 6. september kl...
02/09/2026

Namminamm!!!

Við keyrum af stað fjölskyldudagskrá vetrarins með pompi og prakt næstkomandi sunnudag, þann 6. september kl 13.00 með viðburðinum:

ELDBLÓMA JELLY! I Skapandi sunnudagar fyrir fjölskyldur

Hönnuðurinn og dansarinn Sigríður Soffía Níelsdóttir leiðir fjölskyldur inn á lendur matar- og vöruhönnunar. Gestir gera sína eigin gómsætu Eldblóma mola til að taka með sér heim að smiðju lokinni. Kannski viltu skera þína eins og skínandi demanta eða kúlur? Við skreytum með ferskum blómum, ætu glimmeri og fáum aldrei þessu vant að leika okkur með matinn!

Þetta er fyrsta fjölskyldusmiðja vetrarins í Hönnunarsafni Íslands í röðinni Skapandi sunnudagar. Mánaðarlega opnum við glugga inn í ólíka króka og kima hönnunar og listhandverks. Smiðjurnar eru ávallt leiddar af fagfólki á sínu sviði. Viðburðirnir eru hluti af menningardagskrá Garðabæjar, aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

Velkomin á uppskeruhátíð föstudaginn 4. sept.  kl 16:00Miðað við afköst mætti halda að Thelma Björk hafi dvalið hér í sj...
01/09/2026

Velkomin á uppskeruhátíð
föstudaginn 4. sept. kl 16:00
Miðað við afköst mætti halda að Thelma Björk hafi dvalið hér í sjöunda veldi. Þetta verður því uppskeruhátíð með meiru.

Í vinnustofudvölinn í Hönnunarsafninu hefur Thelma aðallega unnið útsaum á stóla sem gerðir eru upp í samstarfi við Ásdísi Birgisdóttur bólstrara. Útsaumsaðferð Thelmu má líkja við DJ sem mixar saman tónlist frá ólíkum tímabilum og bætir við nýjum tónum svo úr verður nýtt og kraftmikið danslag.

Hægt er að versla verkin beint frá hönnuðinum. Stólarnir eru á verðbilinu 35,000 - 250,000 kr..

Ljósmynd: Studio Fræ

English

Welcome to the harvest celebration at 16:00 Friday 4th of Septemer.

Judging by her output, one might think that Thelma Björk has been in here in residence to the power of seven. This will therefore be a harvest celebration like no other.

During her residency at the Museum of Design and Applied Art, Thelma has primarily been embroidering chairs that are being restored in collaboration with upholsterer Ásdís Birgisdóttir. Thelma’s approach to embroidery can be compared to a DJ mixing music from different eras and adding new tunes, resulting in a fresh and vibrant composition.

The works is available for purchase directly from the designer. The chairs range in price from ISK 35,000 - 250,000.

Photo: Studio Fræ

Hjartans þakkir fyrir komuna á opnun sýningarinnar Saumó á laugardaginn.Gleði og gaman og svo mörg falleg "móment"Takk S...
31/08/2026

Hjartans þakkir fyrir komuna á opnun sýningarinnar Saumó á laugardaginn.
Gleði og gaman og svo mörg falleg "móment"
Takk Sunna Ben ljósmyndari fyrir að fanga þau.

Þið gjarnan hjálpa okkur að merkja myndirnar með því að setja nöfn viðkomandi í komment. Bestu þakkir

Address

Garðatorgi 1
Garðabær
210

Opening Hours

Tuesday 12:00 - 17:00
Wednesday 12:00 - 17:00
Thursday 12:00 - 17:00
Friday 12:00 - 17:00
Saturday 12:00 - 17:00
Sunday 12:00 - 17:00

Telephone

+3545121525

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hönnunarsafn Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Hönnunarsafn Íslands:

Shortcuts

Share