Hjallastefnan

Hjallastefnan Hjallastefnan er kærleiksmiðuð og skapandi lýðræðisstefna

Hjallastefnan heldur úti hlaðvarpi, Hjallastefnan heima, en það er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Hjallastefnan er félag á sviði uppeldis og menntunar sem starfrækir 18 skóla með tæplega 2000 nemendur og tæplega 500 starfsmenn. Meðal lykilhugtaka eru virðing, agi, sjálfstraust, öryggi, hjálpsemi, víðsýni, hreinskiptni, gleði, umhyggja, kærleikur, kraftur og frumkvæði.

Við óskum Hraunborg til hamingju með 20 ára afmælið og fórum aðeins yfir farin vegSumarið 2006 hafði Rúnólfur Ágústsson,...
28/08/2026

Við óskum Hraunborg til hamingju með 20 ára afmælið og fórum aðeins yfir farin veg

Sumarið 2006 hafði Rúnólfur Ágústsson, þáverandi rektor Háskólans á Bifröst, samband við Margréti Pálu höfund og eiganda Hjallastefnunnar og óskaði eftir fundi um mögulega samvinnu Hjallastefnunnar og háskólans. Afstaða Margrét Pála var frá upphafi skýr og réðist alfarið af eðli samstarfsins, hún hafði engan áhuga á að Hjallastefnan tæki einfaldlega yfir rekstur leikskólans á staðnum, þar sem foreldrar hefðu þá ekkert raunverulegt val, en væri hins vegar spennt fyrir samstarfi um menntun, þjálfun starfsfólks eða jafnvel leikskólakennaranám.
-----
Á fundinum kom í ljós að fulltrúar Bifrastar vildu bæði samstarf um menntun og að Hjallastefnan tæki við leikskólanum, sem hafði átt í erfiðleikum með mönnun og rekstur. Það skilyrði var sett að foreldrar yrðu fyrst spurðir hvað þeir vildu.
-----
Á foreldrafundi sem í kjölfarið var boðað til kom fram að foreldrarnir höfðu aldrei áður haft neitt val um leikskóla fyrir börnin sín, starfsemin hafði einfaldlega verið rekin með hefðbundnum hætti, misvel eftir aðstæðum. Foreldrarnir tóku sig saman og könnuðu vilja sín á milli.

Niðurstaðan var afgerandi: Öll vildu þau að Hjallastefnan kæmi á Bifröst.
-----
Hjallastefnan tók við rekstri Hraunborgar þann 1. ágúst 2006, í kjölfar þess að foreldrar höfðu sjálfir tekið afstöðu til málsins. Samstarfið við sveitarfélagið og háskólann hefur alla tíð verið gott. Á þessum tíma var háskólaþorpið í miklum blóma og leikskólinn þjónaði yfir 80 börnum og foreldrum þeirra. Nemendafjöldi skólans hefur síðan þá endurspeglað þróun Háskólans og eftir því sem námið færðist í auknum mæli yfir í fjarnám og búseta háskólanema á staðnum dróst saman, fækkaði börnum á Hraunborg jafnt og þétt. Árið 2016, tíu árum eftir að Hjallastefnan tók við rekstrinum, voru þau orðin 34 talsins, og í dag stunda um 15 börn nám við skólann.
-----
Flutt í nýtt húsnæði eftir tæpa tvo áratugi á Bifröst

Þrátt fyrir að börnum hafi fækkað verulega og aðbúnaðar skólans á Bifröst þannig að finna þyrfti honum nýtt húsnæði var enginn áhugi á að slíta samstarfið við Hjallastefnuna, þvert á móti vildu foreldrar og sveitarstjórnarfólk finna leið til að halda skólastarfinu áfram undir hennar merkjum. Þegar framtíðarsýn skólamála á svæðinu var rædd kom í ljós að húsnæði grunnskólans á Varmalandi gæti vel rúmað leikskóla án þess að ráðast þyrfti í nýbyggingu og að samlegð leik- og grunnskóla á sama stað myndi styrkja skólastarfið í heild. Haustið 2024 flutti skólinn frá Bifröst í ný uppgert húsnæði grunnskólans á Varmalandi, þar sem haldið var upp á afmæli skólans á dögunum.

Skólastýra Hraunborgar er Pálína Jörgensdóttir, hún hefur starfið við skólann frá árinu 2009 en haldið í stjórnartaumana frá árinu 2018.
-----
Við óskum skólanum innilega til hamingju með árin 20!

Falleg frétt frá Hjallastefnuleikskólanum Ásum í Garðabæ  ❤️💙Hópur leikskólabarna heimsótti níræða harmonikkuleikarann S...
27/08/2026

Falleg frétt frá Hjallastefnuleikskólanum Ásum í Garðabæ ❤️💙
Hópur leikskólabarna heimsótti níræða harmonikkuleikarann Sigurð Hannesson í vikunni.

Hópur leikskólabarna af Hjallastefnuleikskólanum Ásum í Garðabæ heimsótti níræða harmonikkuleikarann Sigurð Hannesson í vikunni.

Hjallastefnan og Reitir hafa undirritað viljayfirlýsingu um þróun og uppbyggingu nýs leik- og grunnskóla við Nauthólsveg...
04/06/2026

Hjallastefnan og Reitir hafa undirritað viljayfirlýsingu um þróun og uppbyggingu nýs leik- og grunnskóla við Nauthólsveg í Reykjavík. „Það er eins og alheimurinn hafi ákveðið þetta fyrir okkur,“ segir stofnandi Hjallastefnunnar.

Af þessu tilefni komu Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi Hjallastefnunnar, og Guðni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Reita, saman í dag ásamt stórum hópi skólabarna úr skólunum tveimur til þess að fagna áformunum.

Áformin um að reisa skólunum varanleg heimkynni marka endalok margra ára húsnæðisvanda en frá árinu 2022 hafa skólarnir verið á hrakhólum eftir að þeir misstu eldra húsnæði sitt undir stúdentagarða Háskólans í Reykjavík. Fyrirhugað er að framkvæmdir hefjist árið 2027.

Hjallastefnan og Reitir hafa undirritað viljayfirlýsingu um þróun og uppbyggingu nýs leik- og grunnskóla við Nauthólsveg í Reykjavík.

Leikur að tónum á leikskólanum Litlu Ásar 🎼🎶🎵Á Hjallastefnuleikskólanum Litlu Ásum, sem stendur við Vífilsstaði í Garðab...
16/01/2026

Leikur að tónum á leikskólanum Litlu Ásar 🎼🎶🎵

Á Hjallastefnuleikskólanum Litlu Ásum, sem stendur við Vífilsstaði í Garðabæ hefur að undanförnu verið boðið upp á dásamlega nýjung fyrir lestu börnin á leikskólanum. En elstu börnum skólans hefur verið boðið upp á tónlistarsamspil þar sem fiðlan er í öndvegi, hvorki meira né minna. Hjörleifur Valsson fiðluleikari hefur að undanförnu unnið að því að þróa norrænt afbrigði af tónlistarkennsluaðferð sem upprunalega kemur frá Venesúela og hefur verið kölluð El Sistema. En höfundur kennsluaðferðarinnar, José Antonio Abreu, vildi samþætta tónlistarkennsluaðferð og félagsleg gildi.
—
Aðferðin byggir á því að öll taka þátt og allir þátttakendur læri hver af öðrum, læri saman. 🫶🏽
—
Verkefnið á Litlu Ásum kallast “Leikur að tónum” og hefur vakið mikla lukku meðal barna. Börnin koma spennt á fund við Hjörleif í skólanum tvisvar í viku og læra saman í 35-40 mínútur, áhersla er lögð á samhæfingu og að öll geti tekið þátt í sameiginlegri sköpun.
—
Börnin hafa auk þess fræðst um takt, hljóm, samhæfingu og samhljóm – allt í gegnum það skapa í sameiningu. 🤍

Leikur að tónum á leikskólanum Litlu Ásar 🎼🎶🎵Á Hjallastefnuleikskólanum Litlu Ásum, sem stendur við Vífilsstaði í Garðab...
16/01/2026

Leikur að tónum á leikskólanum Litlu Ásar 🎼🎶🎵

Á Hjallastefnuleikskólanum Litlu Ásum, sem stendur við Vífilsstaði í Garðabæ hefur að undanförnu verið boðið upp á dásamlega nýjung fyrir lestu börnin á leikskólanum. En elstu börnum skólans hefur verið boðið upp á tónlistarsamspil þar sem fiðlan er í öndvegi, hvorki meira né minna. Hjörleifur Valsson fiðluleikari hefur að undanförnu unnið að því að þróa norrænt afbrigði af tónlistarkennsluaðferð sem upprunalega kemur frá Venesúela og hefur verið kölluð El Sistema. En höfundur kennsluaðferðarinnar, José Antonio Abreu, vildi samþætta tónlistarkennsluaðferð og félagsleg gildi.
---
Aðferðin byggir á því að öll taka þátt og allir þátttakendur læri hver af öðrum, læri saman. 🫶🏽
---
Verkefnið á Litlu Ásum kallast "Leikur að tónum" og hefur vakið mikla lukku meðal barna. Börnin koma spennt á fund við Hjörleif í skólanum tvisvar í viku og læra saman í 35-40 mínútur, áhersla er lögð á samhæfingu og að öll geti tekið þátt í sameiginlegri sköpun.
---
Börnin hafa auk þess fræðst um takt, hljóm, samhæfingu og samhljóm – allt í gegnum það skapa í sameiningu.

Systurskóli Hjallastefnunnar - Leikskólinn Gimli orðin UNESCO skóli
06/01/2026

Systurskóli Hjallastefnunnar - Leikskólinn Gimli orðin UNESCO skóli

Leikskólinn Gimli í Reykjanesbæ hefur hlotið formlega viðurkenningu sem UNESCO-skóli og er þar með fyrsti leikskólinn á Suðurnesjum og annar á Íslandi sem gengur til liðs við alþjóðlegt skólanet Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Viðurkenningin er mikilvægur áfangi...

Gleðilega og kærleiksríka jólahátíð 🎄❤️Megi jólin færa ykkur kærleika og ró í faðmi allra þeirra sem standa ykkur næst. ...
22/12/2025

Gleðilega og kærleiksríka jólahátíð 🎄❤️
Megi jólin færa ykkur kærleika og ró í faðmi allra þeirra sem standa ykkur næst. Við erum þakklát fyrir samfylgdina á árinu. 🙏
Hjallastefnan

Viltu bætast í okkar frábæra hóp? Leikskólinn Hraunborg leitar að starfsfólki 💛
07/11/2025

Viltu bætast í okkar frábæra hóp? Leikskólinn Hraunborg leitar að starfsfólki 💛

Viltu bætast í okkar frábæra hóp? Hjallastefnu leikskólinn Hraunborg á Varmalandi leitar að öflugum leikskólakennara/leiðbeinanda til starfa í 50-100 % stöðu. Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstakling sem til í að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði o...

Address

Vífilsstaðavegi 123
Garðabær
210

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00

Telephone

+3545557020

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hjallastefnan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Hjallastefnan:

Shortcuts

Share

Category