Klifið

Klifið Skapandi námskeið fyrir börn og fullorðna. Vertu með http://www.klifid.is Námskeiðin eru fyrir alla, óháð menntun. Við tökum vel á móti öllum.

Um starfsemina:

Klifið er hugsjónafélag sem er ekki rekið í hagnaðarskyni (non-profit association). Hlutverk og markmið:

Hlutverk Klifsins er að efla og hvetja einstaklinga til að tileinka sér skapandi hugsun og trú á eigin getu og þannig þróa með sér hæfni til þess að mæta þörfum framtíðarinnar. Markmið Klifsins er að bjóða upp á fjölbreytt og skapandi námskeið fyrir börn jafnt sem fullorðna sem auðga líf fólks. Námskeiðin snúa að tækni og vísindum, myndlist, tónlist, listdansi, leiklist og sjálfsrækt. Hugmyndafræði:
Hugmyndafræði Klifsins byggir á hönnunarhugsun, eflandi kennslufræði nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar og kenningum um hæfniþróun. Við leggjum okkur fram við að virkja sköpunarkraft og ímyndunarafl hvers og eins til að efla trú einstaklingsins á eigin getu. Klifið leggur sig fram við að bjóða upp á fræðslu við hæfi ólíkra hópa, fræðslu sem vekur áhuga, og auðgar líf fólks á öllum aldri. í Klifinu er áhersla lögð á samvinnu og samstarf við nærsamfélagið við að þróa eigin leiðir í takt við umhverfi og samfélag. Leiðbeinendur
Klifið er framsækið fræðslusetur og leggur mikið upp úr því að fá til sín sérfræðinga á sínu sviði tl þess að leiðbeina á námskeiðum. Í Klifinu þróum við eigin hugmyndir og gerum tilraunir í samstarfi við leiðbeinendur, fagfélög, menntastofnanir og Háskóla. Við setjum upp smiðjur og námskeið, gerum tilraunir með nýtt námsefni, prófum nýjar nálganir í kennslu, gerum rannsóknir, hönnum námskeið og námsefni. Klifsnámskeið í þínu nærumhverfi? Námskeið á vegum Klifsins hafa verið haldin víða um land vegna eftirspurnar í fleiri sveitarfélögum en í Garðabæ. Hægt er að hafa samband við okkur á skrifstofunni í síma 565 0600 eða senda okkur tölvupóst á [email protected] og spyrja nánar út í þessi mál.

Trommunámskeið fyrir börn og fullorðna hefjast í næstu viku! Það var að losna eitt pláss þriðjudaga kl 17:45 - 18.15 👇
09/09/2026

Trommunámskeið fyrir börn og fullorðna hefjast í næstu viku! Það var að losna eitt pláss þriðjudaga kl 17:45 - 18.15 👇

Aðaláhersla er lögð á að námið sé fjölbreytt og skemmtilegt og að áhugasviði hvers nemanda verði sinnt af gaumgæfni ásamt því að veita nemendum á byrjun...

29/06/2026

Takk kærlega fyrir æðislega æðislega viku!!

Í næstu viku verðum við með:
Teikning og blönduðu tækni
Skapandi sumarfjör
Myndlist og teikning

Hún Sjöfn okkar mun vera með myndlistar- og teikninámskeið hjá okkur í sumar, annað árið í röð. Hún er alveg einstakt ei...
25/06/2026

Hún Sjöfn okkar mun vera með myndlistar- og teikninámskeið hjá okkur í sumar, annað árið í röð.
Hún er alveg einstakt eintak af kennara og hefur mikla ástríðu fyrir myndlist og bókarskriftum. Þar sem hún leggur nú stund á doktorsnám í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands og hefur samhliða því myndskreytt bækur. Ekki nóg með það, hefur hún einnig gefið út skáldsögur og ljóðabækur.

Sjöfn er einstaklega flink í að efla sköpunargáfu barnanna og hjálpa þeim að túlka eigin hugmyndir á pappír, með kennslu á undirstöðuatriðum í teikningu og hönnun persóna.

Sjöfn mun kenna eftirfarandi námskeið í sumar:

Teikning og blönduð tækni, 9–12 ára
Myndlist og teikning, 6–9 ára

🧑‍🎨🎨
25/06/2026

🧑‍🎨🎨

Okkar yndislega Sigga verður með skapandi sumarsöngnámskeiðin okkar sem fara fram í næstu viku!Sigríður Halla er söngkon...
24/06/2026

Okkar yndislega Sigga verður með skapandi sumarsöngnámskeiðin okkar sem fara fram í næstu viku!

Sigríður Halla er söngkona og sviðslistakona með mikla ástríðu fyrir tónlist, sköpun og því að gefa börnum rými til að tjá sig. Hún lærði leiklist við Copenhagen International School of Performing Arts í Kaupmannahöfn í Danmörku og hefur jafnframt stundað söng- og kórnám við Domus Vox í Reykjavík.
Hún hefur komið fram bæði í söng og leikhúsi, meðal annars í uppsetningu Jónsmessunæturdraums í Tjarnarbíói. Sigga hefur einnig mikla reynslu af því að vinna með börnum.

Á námskeiðunum verður lögð áhersla á sönggleði, sjálfstraust, rytma, leik og sköpun. Börnin fá að prófa sig áfram í öruggu og skemmtilegu umhverfi þar sem röddin, hugmyndaflugið og gleðin fá að njóta sín.
Sigga mun kenna eftir farandi námskeið í sumar:

Skapandi sumarsöngur 6-9 ára
Skapandi sumarsöngur 8-11 ára

24/06/2026

Miklir hæfileikar hér á ferð á myndasögunámskeiðinu okkar!🤩

23/06/2026

Fyrsta vikan í Klifinu kláraðist í seinustu viku! Mikið fjör og gleði

Í næstu viku verðum við með námskeiðin:
- Skapandi sumarsöngur 6-9 ára, 8-11 ára
- Teikning og blönduð tækni 9-12 ára
- Skapandi sumarfjör 6-9 ára

Skráning á klifid.is🌼

Í næstu viku hefjast námskeiðin Skapandi sumarsöngur fyrir bæði 6-9 ára og 8-11 ára.  Við eigum örfá pláss laus fyrir áh...
22/06/2026

Í næstu viku hefjast námskeiðin Skapandi sumarsöngur fyrir bæði 6-9 ára og 8-11 ára. Við eigum örfá pláss laus fyrir áhugasama söngfugla https://www.klifid.is/namskeid/skapandi-sumarsongur
Umsagnir frá foreldrum:
🌸 Gaman að örva ímyndunarafl, hún var ánægð með æfingar og leikina
🌸 Hún fékk að blómstra og njóta sín í því sem henni finnst skemmtilegt
🌸 Eflir sjàlfstraust
🌸 Hvað var tekið vel á móti öllum á morgnana
🌸 Ekki of þungt- allir gátu ráðið við það
🌸 Hvað það er skemmtilegt og skapandi og reynir á sköpunargáfu og sviðsframkomu barna.

Skapandi sumarsöngur er sumarnámskeið fyrir söngelska krakka sem vilja syngja sig í gegnum sumarið. Söngnámskeiðið er hugsað eins og leikjanámskeið með áherslu á söng, leiklist, framkomu og sjálfan sköpunarkraftinn. Hver dagur hefur sitt þema en það eru tvær klukkutíma smiðj...

Í sumar bjóðum við upp á hið sívinsæla Skapandi sumarfjör sem  er leikja- og listasmiðja fyrir börn á aldrinum 5–11 ára,...
14/06/2026

Í sumar bjóðum við upp á hið sívinsæla Skapandi sumarfjör sem er leikja- og listasmiðja fyrir börn á aldrinum 5–11 ára, þar sem börnin fá að leysa eigin sköpunarkraft úr læðingi í gegnum, myndlist, leiklist, dans, tónlist, útiveru og fjölbreytta leiki. https://www.klifid.is/namskeid/skapandi-sumarfjor

Leiðbeinendur námskeiðsins í sumar eru þær Ninja Kristín Logadóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir, Elísabet Harðardóttir og Rannveig Edda Aspelund. Þær eru allar úr Garðabænum, nemendur í Verzlunarskóla Íslands og eru einstaklega skemmtilegar, skapandi og peppaðar fyrir sumrinu.

Þetta verður þriðja sumarið þeirra Hrafnhildar og Ninju í Skapandi sumarfjöri. Ninja hefur þó verið tengd námskeiðinu frá unga aldri. Hún er mjög hugmyndarík, skapandi og drífandi. Ninja er einnig í Nemendamótsnefnd Versló, þar sem hún tekur þátt í að setja upp stærsta menntaskólasöngleik landsins.

Rannveig Edda er mjög spennt fyrir sínu fyrsta sumri í Klifinu. Hún hefur tekið þátt í alls konar skapandi verkefnum, æft dans frá þriggja ára aldri og er alltaf að föndra eitthvað skemmtilegt. Rannveig er einnig með sína eigin skartgripalínu, BYREA, þar sem hún hannar og býr til skart sjálf.

Hrafnhildur er mikill reynslubolti og þekkir námskeiðið inn og út. Hún er skapandi, flink og einfaldlega frábær með börnum. Hrafnhildur elskar útiveru, sveitina og hestana sína, Hrafndísi og Drottningu. Hún var líka í dansi þegar hún var yngri og hefur mjög gaman af föndri og skapandi starfi.

Elísabet hefur mikla reynslu af öðrum námskeiðum og kemur inn með mikla gleði og jákvæðni. Hún er dugleg, hress og algjör gleðipinni. Elísabet æfði bæði dans og körfubolta þegar hún var yngri, elskar að ferðast og skoða nýja staði og bjó meðal annars í Víetnam þegar hún var yngri. Hún hefur gaman af leikjum, útiveru og er mjög spennt fyrir sumrinu í Klifinu.

Við erum ótrúlega heppin að hafa þær með okkur í sumar og hlökkum mikið til að taka á móti börnunum í Skapandi sumarfjöri!

Í sumar fáum við aftur til okkar hina frábæru Ísold Davíðsdóttir  sem mun kenna á námskeiðunum Skapað með Procreate og M...
13/06/2026

Í sumar fáum við aftur til okkar hina frábæru Ísold Davíðsdóttir sem mun kenna á námskeiðunum Skapað með Procreate og Myndasögugerð.
Ísold er sannkallað hæfileikabúnt, uppeldis- og menntunarfræðingur, kennari og myndasöguhöfundur. Hún hefur gefið út eigin bækur, tekið þátt í fjölbreyttum myndasöguverkefnum og bæði skrifað og teiknað barnabækur.
Á námskeiðunum leiðir Ísold börnin inn í skapandi heim persónusköpunar og myndasögugerðar. Þar fá þátttakendur að prófa sig áfram, þróa eigin hugmyndir og skapa myndir og sögur.
Ísold mun kenna á eftirfarandi námskeiðum í sumar:

Skapað með Procreate fyrir 9–12 ára
Myndasögugerð fyrir 6–9 ára
Myndasögugerð fyrir 9–12 ára

https://www.klifid.is/namskeid/myndasogugerd
https://www.klifid.is/namskeid/procreate

Address

Garðatorg 7
Garðabær
210

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Klifið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Klifið:

Shortcuts

Share

Category