Læsi krefst fagmennsku en ekki skyndi- og töfralausna
Ummæli nýs barna - og menntamálaráðherra um menntamál hefur valdið mikilli ólgu og óánægju í skólasamfélaginu.
Sú óánægja snýst ekki um andstöðu við breytingar heldur um síendurtekna tilhneigingu til að einfalda flókin viðfangsefni og setja fram lausnir sem hvorki byggja á fagþekkingu né rannsóknum.
Læsi er grundvallarforsenda alls náms, sjálfstæðrar hugsunar og virkrar þátttöku í samfélaginu. Kennsla í læsi er þó hvorki einföld né sjálfgefin. Hún byggir á flóknu samspili málþroska, kennslufræði, mats og íhlutunar. Rannsóknir sýna með skýrum hætti að árangur í læsi næst ekki með skyndiaðgerðum, átaksverkefnum eða hugmyndum sem kynntar eru sem „nýjar lausnir“ án þess að byggja á þekkingu og gögnum.
Það sem skilar raunverulegum árangri er markviss og skipulögð kennsla sem byggir á gagnreyndum og vel rannsökuðum kennsluaðferðum. Slík kennsla er skýr, kerfisbundin og stigvaxandi, byggir á stöðugu mati á framförum nemenda og krefst þess að kennarar hafi aðgang að faglegri þekkingu og stuðningi. Framfarir í læsi byggja á skipulagðri kennslu sem styðst við fagþekkingu og rannsóknir.
Það eru engar töfralausnir í að kenna læsi!
Að bæta læsi krefst samfelldrar, vandaðrar kennslu sem byggir á gagnreyndum og vel rannsökuðum kennsluaðferðum, fagþekkingu og rannsóknum – ekki pólitískum skyndilausnum.
Lesum betur
Lesum betur sér um kennslu og þjálfun í lestri. Einnig erum við með ráðgjöf til foreldra, nemenda og skóla.
Bjóðum upp á lestrargreiningar fyrir einstaklinga, skóla og sveitarfélög.
23/12/2025
Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þakka samfylgdina og samstarfið á árinu sem er að líða
Kær kveðja
Sædís
Alþjóðlegur dagur læsis er í dag 8.september. Til hamingju með hann
07/09/2025
Góð grein hjá Auði um hvernig við getum stutt við lesskilning.
Við getum öll stutt við lesskilning barna - Gleðilegan dag læsis - Vísir Félag læsisfræðinga á Íslandi (FLÍS) fagnar um þessar mundir fimm ára afmæli. Félagið var stofnað með þá hugsjón að tengja saman fólk með menntun í læsisfræðum og skapa vettvang til að efla þekkingu og umræðu um læsi á Íslandi. Félagið er einnig aðili að evrópskum...
Ertu í erfiðleikum með lestur, grunar þig að þú sért með lesblindu? Vantar þig vottorð fyrir skólann eða Hljóðbókasafnið.
Ég býð upp á lestrargreiningu með LOGOS lestrargreiningartækinu. Hafðu samband við mig ef þig vantar aðstoð
[email protected]
Áhguaverð grein um hvernig slakur lesskilningur getur heftað skilning á samfélagslegri umræðu. En lesskilningur er grundvöllur fyrir virka þátttöku í samfélaginu, án hans geta einstaklingar ekki tekið upplýstar ákvarðanir í lýðræðislegu samfélagi.
30/06/2025
Áhugaverð grein
Orðaforði og lesskilningur hjá börnum með íslensku sem annað mál - Áhrif aldurs við komuna til Íslands | Netla Orðaforði og lesskilningur hjá börnum með íslensku sem annað mál - Áhrif aldurs við komuna til Íslands Höfundar Sigríður Ólafsdóttir Freyja Birgisdóttir Hrafnhildur Ragnarsdóttir Steingrímur Skúlason Lykilorð: orðaforði, lesskilningur, læsi, tvítyngi, aldur Útdráttur Ranns...
30/06/2025
Sjö málstofur í kjölfar PISA en lítið hefur gerst Dósent við menntavísindasvið Háskóla Íslands veltir því fyrir sér hverju þær sjö málstofur sem haldnar voru í kjölfar PISA-könnunarinnar 2022 hafi skilað. Margt mikilvægt hafi komið þar fram en menntayfirvöld hafa ekki brugðist við.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Túngata 3
Eyrarbakki
820