28/08/2026
💡Vissir þú að dagskólanemum í ME stendur til boða að sækja um AFS skiptinám á 85% styrk til Evrópu 2x á hverju skólaári? 🌍 🍂Haustdvöl🍂 í 3 mánuði eða ❄️vetrardvöl❄️ í 5 mánuði.
🫵 Ef þig langar að eiga möguleika á vetrardvöld frá janúar/febrúar 2027 þá er fyrsta skrefið að sækja um fyrir 10. september 2026, kl.23:59.
🤝 Samstarf ME og AFS og Erasmus+ skólastyrkurinn veitir ómetanleg tækifæri fyrir ME-inga á aldrinum 16-18 ára. Þú ættir að sækja um ef þig langar til að prófa að búa í öðru landi í Evrópu og upplifa hvernig það er að vera unglingur þar, læra nýtt tungumál, upplifa nýja menningu, verða hluti af fósturfjölskyldu og fara í nýjan skóla. Þú getur sótt um ef þú ert dagskólanemandi í ME á aldrinum 16-18 ára og hefur áhuga á skiptinámi.
🗓️❄️ Skiptinámið með vetrarbrottför hefst í janúar/febrúar 2027 og stendur yfir í 5 mánuði.
Styrkurinn greiðir fyrir 85% af heildarkostnaði vegna skiptinámsins. Til upplýsingar er 15% kostnaðarhluti tæpar 300.000 kr.
Það eru mörg lönd í Evrópu sem taka á móti nemendum í Erasmus + skiptinám, t.d. Belgía, Ungverjaland, Slóvakía, Tékkland, Tyrkland, Þýskaland og fleiri lönd. Það er EKKI hægt að velja sér land og þeir nemendur sem að vilja fara “hvert sem er” ganga fyrir.
Athugið að sérstök áhersla er lögð á að veita nemum með færri tækifæri á að fara í skiptinám pláss. Búseta í strjálbýli eða takmörkuð fjárráð falla meðal annars þar undir, en tekið er á móti öllum umsóknum, svo ekki hika við að sækja um.
Umsóknir, þar sem fjölskyldur umsækjenda geta hýst erlendan skiptinema á meðan á skiptinámi umsækjanda stendur, ganga fyrir öðrum umsóknum.
Allar nánari upplýsingar veitir Nanna náms- og starfsráðgjafi
Umsóknartengil má finna í frétt um skiptinámið á www.me.is