Djúpavogsskóli

Djúpavogsskóli Þessi síða er hugsuð sem upplýsingasíða fyrir faglegt starf og viðburði á vegum skólans.

Hans og Bergmann, gestakennarar í innleiðingu stafrænnar tækni. Miðvikudaginn 8. október koma þeir Hans og Bergmann, ges...
07/10/2025

Hans og Bergmann, gestakennarar í innleiðingu stafrænnar tækni.

Miðvikudaginn 8. október koma þeir Hans og Bergmann, gestakennarar í stafrænni tækni og höfundar Viskubrunnur.net hvar hægt er að nýta gervigreind til aðstoðar við skipulag kennslu o.fl.
Hans og Bergmann hafa umsjón með innleiðingu stafrænnar tækni hjá Múlaþingi og fara m.a. í skólaheimsóknir í alla skóla í Múlaþingi.

https://www.djupavogsskoli.is/post/hans-og-bergmann-gestakennarar-stafrænnar-t

Djúpavogsskóli heimsækir ,,Kjarval á Austurlandi" og Tækniminjasafn AusturlandsNemendur Djúpavogsskóla í 4. - 7. bekk vo...
08/09/2025

Djúpavogsskóli heimsækir ,,Kjarval á Austurlandi" og Tækniminjasafn Austurlands

Nemendur Djúpavogsskóla í 4. - 7. bekk voru boðin á sýninguna ,,Kjarval á Austurlandi" á vegum Skaftfells á Seyðisfirði og í ,,Tækniminjasafn Austurlands" á Seyðisfirði.
Þó ferðin hafi verið, vegna veðurs, aðeins lengri í tíma en var áætlað, var hún bæði skemmtileg og fróðleg, margt að sjá og gleðin og sköpunin lék á alls oddi. Skemmtilegar ferðir eru ávallt gott hópefli.
Nemendur stóðu sig vel, sungu hressilega á leiðinni og voru almennt til fyrirmyndar.
Nemendur kíktu til að mynda á fallbyssuna úr El Grillo og fannst hún áhugaverð.

https://www.djupavogsskoli.is/post/djúpavogsskóli-heimsækir-kjarval-á-austurlandi-og-tækniminjasafn-austurlands

Hafragrauturinn vinsæll í DjúpavogsskólaÞað hafa verið huggulegar morgunstundirnar hjá Danielu, þar sem nemendur og star...
08/09/2025

Hafragrauturinn vinsæll í Djúpavogsskóla

Það hafa verið huggulegar morgunstundirnar hjá Danielu, þar sem nemendur og starfsfólk fá sér hafragraut, á þessum fyrstu skólavikum ársins í Djúpavogsskóla.
Foreldrar og aðstandendur eru hjartanlega velkomin að kíkja við í notalegu morgunstundirnar hvenær sem tækifæri gefst til.

https://www.djupavogsskoli.is/post/hafragrauturinn-vinsæll-í-djúpavogsskóla

Ars Longa Dagur Djúpavogsskóla 2025Var haldinn fyrsta eiginlega skóladaginn, þriðjudaginn 26. ágúst, sem er nú haldinn þ...
03/09/2025

Ars Longa Dagur Djúpavogsskóla 2025

Var haldinn fyrsta eiginlega skóladaginn, þriðjudaginn 26. ágúst, sem er nú haldinn þriðja árið í röð.
Á þessum góða degi er frábært samstarf milli Ars Longa og Djúpavogsskóla, þar sem öllum nemendum Djúpavogsskóla, ásamt starfsfólki, er boðið á sérstaka nemendasýningu, þar sem umsjónarmaður safnsins, Þór Vigfússon, opnar safnið sérstaklega þennan dag fyrir nemendur Djúpavogsskóla.

Sýning sumarsins er falleg sýning og ber yfirskriftina ,,Undir lággróðrinum" / ,,The Undergrowth" sem vísar í tengingu manneskjunnar og náttúrunnar og hve mikils virði hún er. Eins og yfirskriftin ber með sér er lögð áhersla á lággróður, rætur, jarðveg og fleira áhugavert, hugvekjandi og innblásandi í sýningunni.

Í ár var lögð áhersla á að leggja inn orðin ,,lággróður" og ,,ígrundun" í orðaforða nemenda og vinna áfram með þau í skòlastarfinu auk þess sem listkennarar leggja áherslu á að vinna í kjölfarið með upplifun og innblástur nemenda af sýningunni 💚

https://www.djupavogsskoli.is/post/ars-longa-dagur-djúpavogsskóla-2025

Fuglasýning yngsta stigs í LöngubúðSamvinnuverkefni á yngsta stigiNemendur yngsta stigs enduðu veturinn á því að vinna s...
11/06/2025

Fuglasýning yngsta stigs í Löngubúð
Samvinnuverkefni á yngsta stigi
Nemendur yngsta stigs enduðu veturinn á því að vinna sameiginlegt fuglaverkefni, sem nú hefur verið sett upp í Löngubúð til sýningar.
Nemendum var skipt upp í 6 hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk einn fugl sem þau unnu verkefni út frá og hjálpuðust að við að finna upplýsingar um fuglana bæði á netinu og í bókum. Við fórum svo öll saman út á sanda þar sem hóparnir fóru í fuglatalningu og fuglaskoðun sem gekk mjög vel þrátt fyrir að veðrið hefði nú ekki verið að vinna með okkur. Hóparnir enduðu svo á því að gera fuglinn sinn úr pappamassa og gera upplýsinga skilti um hann. Við fengum svo leyfi til þess að setja upp sýningu í Löngubúð og verða fuglarnir þar í allt sumar.
Við hvetjum ykkur til þess að kíkja við og skoða sýninguna þeirra.
Takk fyrir veturinn.
Kennarar á yngsta stigi.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Djúpavogsskóla: https://www.djupavogsskoli.is/post/fuglasýning-yngsta-stigs-í-löngubúð-í-sumar

Nemenda-Hlaðvarp DjúpavogsskólaÁ Vordögum hafa nemendur Djúpavogsskóla verið að prufa og æfa sig í að gera Hlaðvarp. Ung...
04/06/2025

Nemenda-Hlaðvarp Djúpavogsskóla

Á Vordögum hafa nemendur Djúpavogsskóla verið að prufa og æfa sig í að gera Hlaðvarp.
Unga fólkið kann taktana vel, eru mjög fljót að tileinka sér tæknina, og kunna eiginlega betur á hlaðvörp heldur en starfsfólk.

Við hlökkum til að heyra meira frá Nemenda-Hlaðvarpi Djúpavogsskóla í framtíðinni.
Sjánánar á heimasíðu Djúpavogsskóla: https://www.djupavogsskoli.is/post/nemenda-hlaðvarp-djúpavogsskóla

Address

Varða 6
Djúpivogur
765

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Djúpavogsskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category