15/03/2016
Í dag byrjuðu þemadagar hjá okkur í skólanum með yfirskriftinni "Heimabyggðin okkar"
Þemað í dag var jarðfræði / náttúran.
Byrjuðum við daginn á að gera ýmis verkefni sem tengist sveitinni okkar. Kom svo Christa frá Breiðdalssetri og fræddi okkur um jarðfræðina hér í kring.
Eftir hádegi fór 7. - 9. bekkur í fyrirtækjakynningu á Hótel Bláfell sem endaði svo með áskorun um hver byggi til bestu samlokuna.
Fannst krökkunum það mjög skemmtilegt og allir fóru glaðir heim :)
Takk kærlega fyrir okku Breiðdalssetur og Hótel Bláfell :)