05/05/2026
Frétt um háskólalestina á Egilstöðum í síðustu viku!
Húsfyllir á Opnu vísindahúsi Háskólalestarinnar á Egilsstöðum | haskolalestin.hi.is
Opið vísindahús Háskólalestar Háskóla Íslands sem haldið var í Egilsstaðaskóla miðvikudaginn 30. apríl tókst með eindæmum vel. Fjöldi fólks á öllum aldri lagði leið sína í skólann þar sem boðið var upp á lifandi, fjölbreytta og skemmtilega miðlun á vísindum, tækni ...
30/04/2026
Starfsfólk Rannsóknaseturs HÍ á Breiðdalsvík tók þátt í Háskólalestinni á Egilsstöðum í vikunni. Það var margt hægt að bralla á opnu húsi í gær. Á myndinni er María Helga Guðmundsdóttir að leiðbeina upprennandi vísindamönnum um undraheim steinraríkisins.
02/04/2026
Hér er umfjöllun frá Náttúrufræðistofnun um dulítinn styrk sem María Helga Guðmundsdóttir verkefnisstjóri, og Bjarni Gautason forstöðumaður, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík fengu úr Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar fyrir skömmu.
Styrkur til rannsókna á gasríkum leirsteini í Breiðhillusetlögunum
Styrkur úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar hefur verið veittur til rannsókna á gasríkum leirsteini í Breiðhillusyrpunni.
20/03/2026
Ársskýrsla Stofnunar rannsóknasetra 2025 er komin út!
Ársskýrsla Stofnunar rannsóknasetra 2025 er komin út og er aðgengileg á vef stofnunarinnar. Þar er fjallað um starfsemi og helstu viðfangsefni setranna; rannsóknir sem spanna vítt svið og fjalla bæði um náttúru og samfélag - lífríki hafsins, umhverfi og landnýtingu, hvali, fiska og fugla, auk rannsókna á ferðamálum, bókmenntum, sagnfræði, fornleifafræði, þjóðfræði og jarðfræði. Í skýrslunni er stuttlega sagt frá einu völdu verkefni hjá hverju setri, auk almennra upplýsinga. Krækjur í fyrirsögnum og neðanmáls vísa á síður einstakra setra og rannsakenda í IRIS, Rannsóknagátt Háskóla Íslands, einnig eru krækjur á Facebook-síður setranna. Skýrsluna prýðir fjöldi fallegra ljósmynda; forsíðumyndina tók Þorvarður Árnason.
05/03/2026
Á morgun minnumst við jarðfræðingsins dr. Geoerge Patrick Leonard Walker í tilefni 100 afmælis hans, 2. mars sl.
Opið hús frá klukkan 14-16 - Heitt á könnunni og pönnsur með! Verið öll velkomin ☕️❤️
02/03/2026
(English Below).
Í dag eru liðin 100 ár frá fæðingu jarðfræðingsins George Patrick Leonard Walker. George Walker er sennilega einn merkasti og áhrifamesti eldfjallafræðingur 20 aldar. Íslendingar nutu góðs af því að snemma á ferlinum kom dr. Walker til Íslands og hóf að kortleggja jarðlagastaflann á Austfjörðum. Fyrsta heimsókn dr. Walkers var síðsumars 1954 en þá ferðaðist hann vítt og breitt um landið til að kynna sér jarðfræði landsins. Næstu sumur á eftir (1955-1960) dvaldi hann langdvölum á Austfjörðum við rannsóknir á bergrunni landsins. Sú aðferðafræði sem dr. Walker þróaði er enn þann dag í dag notuð, svo gott sem óbreytt, af íslenskum jarðvísindamönnum. Segja má að Walker hafi með rannsóknum sínum fært okkur lykil að jarðsögu landsins. Fyrstu árin var dr. Walker mikið til einn í rannsóknarferðum sínum en síðar kom hann með stúdenta með sér sem margir hverjir unnu einnig mjög markverðar rannsóknir á jarðfræði landsins. Rannsóknir Walkers voru mikilvægt framlag til þeirrar vísindabyltingar sem varð í jarðvísindum á sjöunda áratug síðustu aldar, en þá tók flekakenningin á sig þá mynd sem við þekkjum í dag.
Fjöldi greina hefur verið skrifaður um Walker ævi hans og rannsóknir á Íslandi og víðar. Það er ekki rúm til að tilgreina það allt í stuttri færslu á Facebook. Áhugasömum er bent á heimasíður Rannsóknaseturs HÍ á Breiðdalsvík (https://hi.is/rannsoknaseturbreiddalsvik) og heimasíðu Breiðdalsseturs (https://breiddalssetur.is/index.php/is/walker)
Til að heiðra minningu Walkers verður eitt og annað á dagskrá hjá okkur á Breiðdalsvík. Við byrjum með opið hús nk. föstudag (6. mars, frá kl. 14:00 til 16:00) en þá gefst Breiðdælingum og velunnurum Breiðdalsseturs tækifæri til að skoða Gamla kaupfélagið og þann safnkost sem tengist dr. Walker í þessu fallega húsi. Heitt verður á könnunni og eitthvað smotterí með kaffinu. Síðar á árinu verður haldin ráðstefna á Breiðdalsvík til að heiðra minningu Walkers. Meira um það síðar.
Today marks 100 years since the birth of geologist George Patrick Leonard Walker. George Walker is probably one of the most significant and influential volcanologists of the 20th century. Icelanders benefited from the fact that early in his career, Dr. Walker came to Iceland and began mapping the stratigraphy of the East Fjords. Dr. Walker's first visit was in the late summer of 1954, when he traveled far and wide to study the country's geology. In the following summers (1955-1960), he spent extended periods in the East Fjords researching the country's bedrock. The methodology that Dr. Walker developed is still used, more or less unchanged, by Icelandic geologists to this day. It can be said that Walker's research has given us a key to the country's geological history. In his early years, Dr. Walker traveled largely alone on his research trips, but later he brought students with him, many of whom also contributed significantly to the country's geology and on the World stage. Walker's research was an important contribution to the scientific revolution that occurred in the Earth Sciences in the 1960s, when the concept of Plate Tectonics took on the form we know today.
A number of articles have been written about Walker's life and research in Iceland and elsewhere. There is not enough space to list it all in a short Facebook post. Those interested are referred to the websites of the Research Center of the University of Iceland in Breiðdalsvík (https://hi.is/rannsoknaseturbreiddalsvik) and the website of Breiðdalssetur (https://breiddalssetur.is/index.php/is/walker)
To honor Walker's memory, there will be a few things on the agenda at our Breiðdalsvík office. We will start with an open house this Friday (March 6th, from 14:00 to 16:00) to provide the local residents and well-wishers of Breiðdalssetur the opportunity to visit “Gamla kaupfélagið” (e. the old COOP) to view the collection associated with Dr. Walker original work in this beautiful building. There will be hot drinks on offer along with some snacks. Later in the year, a conference will be held in Breiðdalsvík to honor Walker's memory. More on that later.
23/12/2025
Út er komið Surtsey Research 16, fullt af fróðleik úr rannsóknum á náttúru þessarar einstöku eyjar. Meðal höfunda að þessu sinni er María Helga Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri á rannsóknasetrinu, sem skrifar ásamt Lovísu Ásbjörnsdóttur og Kristjáni Jónassyni hjá Náttúrufræðistofnun um jarðföll á mörkum hrauns og móbergs í Austurbunka. Greinarnar eru allar aðgengilegar á vef Surtseyjarfélagsins!
Surtseyjarfélagið hefur gefið út ritið Surtsey Research 16. Í því eru níu greinar eftir 24 höfunda frá s*x þjóðlöndum. Þar á meðal eru starfsmenn Náttúrufræðistofnunar, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands og Grasagarðsins.
Sjá frétt á vef Náttúrufræðistofnunar:
https://www.natt.is/is/frettir/2025/12/nytt-rit-um-nyjustu-rannsoknir-i-surtsey
02/12/2025
Við minnum á þennan fræðslufund á morgun!
Hlýtt heimili - Fræðsla um varmadælur og styrki | Fjarðabyggð
Austurbrú, Búnaðarsamband Austurlands og Eygló bjóða íbúa Austurlands velkomna á fundi víða um fjórðunginn þar sem fjallað verður um varmadælur og aðra valkosti í húsh*tun, auk þeirra styrkmöguleika sem standa til boða fyrir heimili sem vilja spara orku og lækka rekstrarkostn...
25/11/2025
María Helga Guðmundsdóttir starfsmaður Rannsóknaseturs HÍ á Breiðdalsvík og starfsmaður Náttúrufræðistofnun (ef.) flytur erindi sem nefnist "Uppbygging stafrænna innviða fyrir borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar" á Hrafnaþingi á morgun.
26. nóvember 2025. María Helga Guðmundsdóttir: Uppbygging stafrænna innviða fyrir borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar
María Helga Guðmundsdóttir jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun flytur erindið „Uppbygging stafrænna innviða fyrir borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar“ á Hrafnaþingi sem haldið verður á netinu 26. nóvember 2025 kl. 15:15.