15/06/2026
Óskilamunir, gleymdir þú einhverju ? Vinsamlegast sækið á fimmtudag eða föstudag í þessari viku.
- Sjálfstæði - Ábyrgð - Virðing - Samhugur
http://grunnborg.is/
15/06/2026
Óskilamunir, gleymdir þú einhverju ? Vinsamlegast sækið á fimmtudag eða föstudag í þessari viku.
08/06/2026
Mánudaginn 8. júní fóru fram skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi við hátíðlega og gleðilega athöfn. Dagskráin hófst kl. 10:30 með skrúðgöngu nemenda og starfsfólks í fylgd lögreglu niður í Skallagrímsgarð. Þar tóku nemendur þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum leikjum og nutu samverunnar. 🎉
Að leikjum loknum var nemendum og starfsfólki boðið upp á pylsur áður en formleg dagskrá hófst. Þar voru flutt nokkur skemmtiatriði og vitnisburðarblöð afhent nemendum.🌭
Síðar um daginn fór fram útskrift 10. bekkjar við hátíðlega athöfn í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar voru útskriftarnemendur kvaddir og verðlaun veitt fyrir framúrskarandi námsárangur.🎓
Við óskum útskriftarnemendum okkar innilega til hamingju með áfangann og þökkum þeim fyrir samfylgdina. Megi framtíðin færa þeim fjölmörg tækifæri, ánægjulegar stundir og farsæld í þeim verkefnum sem fram undan eru. 🌺
Það var einstaklega ánægjulegt að sjá hve margir aðstandendur mættu og fögnuðu þessum mikilvæga degi með okkur. Við þökkum öllum sem komu að deginum fyrir þeirra framlag og óskum nemendum, fjölskyldum þeirra og starfsfólki gleðilegs sumars. ☀️
08/06/2026
Í síðastliðinni viku var kosin ný stjórn nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi. Fráfarandi stjórn eru þökkuð vel unnin störf í vetur. Nýju stjórnina, sem taka mun við í haust skipa: Heiðrún, formaður, Rakel María, varaformaður, Birta Mjöll, gjaldkeri, Svandís Svava, ritari og meðstjórnendurnir Brynjar Þór og Hekla Isabel.
04/06/2026
Skólaslit 8. júní 2026
Skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi verða mánudaginn 8. júní og eru þau eru tvískipt. Annars vegar eru skólaslit 1 – 9. bekkjar og hins vegar 10. bekkjar.
1 – 9. bekkur
Hefðbundin kennsla er frá kl. 8:10 – 10:30
Klukkan 10:30 ganga nemendur fylktu liði í Skallagrímsgarð. Þar fara nemendur í hópa eftir stigum/bekkjum og fara í skipulagða dagskrá.
Klukkan 12:30 eru nemendur komnir í sínar bekkjarraðir í Skallagrímsgarði og formleg skólaslit hefjast, þar sem fram fer stutt dagskrá og umsjónarkennarar afhenda vitnisburðarblöð.
Skólabílar fara á hefðbundnum tíma í skólann. Heimakstur er að lokinni athöfna ca. 13:15.
Hvetjum alla til að taka mið af veðri hvað klæðaburð varðar.
Um er að ræða 2 klst. útiveru.
10. bekkur.
Athöfnin fer fram Í Hjálmakletti og hefst kl. 17.00. Þar mæta nemendur og aðstandendur þeirra auk starfsfólks skólans.
02/06/2026
Síðasti dönsku tíminn hjá 10. bekk í gær. Samkvæmt hefðinni var opnuð ísbúð og nemendurnir þurftu að panta sér ís að sjálfsögðu á dönsku. Það er alltaf gaman að heyra hvað krakkarnir eru dugleg að tala dönskuna þegar á reynir.
29/05/2026
Í dag var hinn árlegi stigaleikur á unglingastigi. Liðin fóru víða um bæinn til að safna stigum meðan dómarar sátu og tóku við myndböndum til sönnunar á stigasöfnuninni. Pizzuveislu að leik loknum. Sigurvegarar voru lið 7 en lið 1 og 3 í næstefstu sætum.
27/05/2026
Í dag var ullarsokkafótbolti hjá unglingastiginu. Lið frá hverjum árgangi kepptu. Og áhorfendur í stúlku hvöttu sín lið.
27/05/2026
Stór hópur nemenda í 8., 9. og 10.bekk brá sér á ball í Röst á Hellissandi í kvöld. Óhætt að segja að hópurinn okkar hafi haldið uppi stuðinu og verið frábær fyrirmynd fyrir aðra.
21/05/2026
Nemendur sem tóku þátt í Erasmus námskeiði í vetur héldu kynningu á sal í dag. Þar kynntu þeir verkefnið sitt, ferðina til Tékklands, verkefnin þar og áskoranir. Nemendur voru í heild ánægðir með verkefnið, skemmtu sér vel í ferðinni og halda enn sambandi við tékknesku krakkana.
20/05/2026
Nemendur í 10.bekk funduðu með félögum í Rótarý seinnipartinn í dag. Þar kynntu nemendur verkefni sem þeir unnu um starfskynningar sem þeir fengu að mæta í á vegum Rótarý, nú í maí. Við erum þakklát Rótarý fyrir að veita nemendum okkar það tækifæri að fá innsýn í ólík störf í héraði. Það er dýrmætt veganesti fyrir þá sem nú eru að velja sér framhaldsnám með framtíðarstarf í huga.
| Monday | 08:00 - 16:00 |
| Tuesday | 08:00 - 16:00 |
| Wednesday | 08:00 - 16:00 |
| Thursday | 08:00 - 16:00 |
| Friday | 08:00 - 16:00 |