18/09/2026
Það var vel mætt á málstofuna Allherjarvarnir: Gæti norræna módelið hentað Íslandi? sem Háskólinn á Bifröst stóð fyrir í Norræna húsinu í gær. Var sjónum beint að reynslu Norðurlandanna og hvort sú reynsla gæti nýst Íslandi. Málstofan var hluti af Jean Monnet Chair verkefninu Iceland’s Strategic Role in Arctic and European Security (ISARCEUR) við Háskólann á Bifröst. Var hún haldin í samstarfi við sendiráð Svíþjóðar og Finnlands á Íslandi.
Húsfyllir var á málstofuna Allherjarvarnir: Gæti norræna módelið hentað Íslandi? sem Háskólinn á Bifröst stóð fyrir í Norræna húsinu í gær. Málstofan var einnig í beinu streymi þar sem margir fylgdust með.