Menntaskóli Borgarfjarðar

Menntaskóli Borgarfjarðar Menntaskóli Borgarfjarðar er 200 nemenda framhaldsskóli staðsettur í Borgarnesi. Meðalnámstími til stúdentsprófs er 3 ár.

Menntaskóli Borgarfjarðar er í Borgarnesi. Í skólanum er lögð áhersla á símat og leiðsagnarmat og formleg annarpróf eru engin. Við skólann eru fjölmargar námsleiðir í boði Náttúrufræðibraut, Félagsfræðabraut, Íþróttafræðibraut (náttúrufræði- eða félagsfræðasvið), Opin braut og Náttúrufræðibraut - búfræðisvið í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Þá eru við skólann starfsbraut og framhaldsskólabraut.

Sýrustigsmælingar – efnafræðin í daglegu lífiNemendur í efnafræði í MB fengu nýlega tækifæri til að kanna sýrustig (pH) ...
10/09/2026

Sýrustigsmælingar – efnafræðin í daglegu lífi
Nemendur í efnafræði í MB fengu nýlega tækifæri til að kanna sýrustig (pH) ýmissa vökva í verklegri efnafræði. Markmiðið var að tengja fræðin við efni sem við þekkjum úr daglegu lífi og sjá með eigin augum hvernig ólíkir vökvar geta haft mjög mismunandi sýrustig. Einnig að kynnast pH kvarðanum og kunna að vinna með pH strimla ofl.

Nemendur mældu sýrustig fjölbreyttra vökva, meðal annars í gosi, kaffi, uppþvottalegi, mjólk, ediki ofl. Niðurstöðurnar voru bornar saman og rætt hvað gæti skýrt muninn á þeim. Meðal annars var skoðað hvort vökvarnir væru súrir, hlutlausir eða basískir og hvernig mælingarnar samræmdust því sem búast mátti við út frá eiginleikum efnanna. Einnig var farið yfir áhrif mismunandi sýrustigs á tennur ofl.

Verkefnið gaf nemendum einnig tækifæri til að æfa sig í mælingum, skráningu niðurstaðna og vísindalegri hugsun. Verklegar æfingar gegna lykilhlutverki til þess að tengja efnafræðina við daglegt líf og sýna að efnafræði er allt í kringum okkur!

Hugsandi skólastofa Í stærðfræðiáföngum Menntaskóla Borgarfjarðar er í þróun Hugsandi skólastofa sem leið til að skapa v...
07/09/2026

Hugsandi skólastofa

Í stærðfræðiáföngum Menntaskóla Borgarfjarðar er í þróun Hugsandi skólastofa sem leið til að skapa virkara og fjölbreyttara námsumhverfi fyrir nemendur. Í Hugsandi skólastofu er áherslan ekki eingöngu á það að kennarinn miðli þekkingu og nemendur taki við henni. Þess í stað fá nemendur tækifæri til að hugsa sjálfir, ræða hugmyndir, prófa sig áfram, vinna saman og finna leiðir að lausnum.

Samvinna er stór hluti af Hugsandi skólastofu. Nemendur vinna saman að verkefnum, bera saman ólíkar leiðir og þurfa að útskýra hugsun sína fyrir öðrum.

Mjög áhugavert er að sjá hvernig nemendur komast að sömu niðurstöðu eftir ólíkum leiðum. Stundum kemur í ljós að leið sem einum nemanda fannst augljós hafði ekki hvarflað að öðrum.
Með þessu fá nemendur ekki aðeins tækifæri til að læra af kennaranum heldur einnig hver af öðrum.

Við í Menntaskóla Borgarfjarðar erum einstaklega stolt af því að tveir fyrrverandi nemendur skólans, Eyrún Freyja Andrad...
01/09/2026

Við í Menntaskóla Borgarfjarðar erum einstaklega stolt af því að tveir fyrrverandi nemendur skólans, Eyrún Freyja Andradóttir og Hugrún Hanna Guðrúnardóttir, eru í hópi þeirra 29 nemenda sem í ár hljóta styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands.
sjá nánar: https://menntaborg.is/frettir/tvaer-ur-mb-i-hopi-afreksnema-haskola-islands/

Minnum á fund með foreldrum og forráðamönnum nýnema hér í MB á morgun klukkan 20:00.
24/08/2026

Minnum á fund með foreldrum og forráðamönnum nýnema hér í MB á morgun klukkan 20:00.

Upphaf skóla.Það er alltaf sérstök gleði, ákveðið stress en mest þó tilhlökkun þegar að skólinn hefst að nýju eftir suma...
17/08/2026

Upphaf skóla.

Það er alltaf sérstök gleði, ákveðið stress en mest þó tilhlökkun þegar að skólinn hefst að nýju eftir sumarfrí.
Í morgunsárið komu nýnemar hingað í skólann, fengu örstutta kynningu á skólanum og hvað næstu dagar bera í skauti sér. Mikið magn upplýsinga sem misgott er að meðtaka fyrstu klukkutímana en við vissulega munum halda þeim við efnið. Eftir morgunmat hófst svo kennsla eftir stundaskrá.

Gleðin og eftirvæntingin fyrir upphafinu hefur þó verið enn meiri en hefðbundið er, þar sem að Nemendagarðar Menntaskóla Borgarfjarðar opnuðu nýja Nemendagarða í gær sunnudag. Það var einstök ánægja og frábær áfangi eð ná þessu á mettíma. Íbúðirnar eru í ”Húsi kynslóðanna” sem að Brákarhlíð fasteignafélag ehf er að byggja.

Stór dagur í MB í dag.

Skrifstofa MB hefur opnað eftir sumarfrí, hægt er að hafa samband við skólann með því að hringja eða senda tölvupóst. Ei...
07/08/2026

Skrifstofa MB hefur opnað eftir sumarfrí, hægt er að hafa samband við skólann með því að hringja eða senda tölvupóst. Eins væri bara gaman að sjá framan í eitt og eitt andlit.

Eins og fram kemur í skóladagatali hefst kennsla mánudaginn 17da ágúst. Nýnemar eiga að mæta á sal skólans klukkan 08:30, fá þar morgunhressingu, hitta umsjónarkennara og fá aðstoð við að skrá sig inn á kennslukerfi skólans. Við bendum nýnemum á að MJÖG mikilvægt er að hafa með sér tölvu og síma. Allir nemendur mæta svo í skólann samkvæmt stundaskrá klukkan 10:20 þennan mánudagsmorgun. Allir nemendur á Starfsbraut mæta í sína stofu klukkan 10:00.

Tekið verður á móti nemendum á nýja Nemendagarða MB milli 16:00 og 18:00 sunnudaginn 16da ágúst og allan mánudaginn 17da ágúst.

Flottur fulltrúi MB!
18/06/2026

Flottur fulltrúi MB!

Eyrún Freyja Andradóttir, nýstúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar var þess heiðurs aðnjótandi að taka þátt í hátíðarhöldunum á Austurvelli í tilefni af 82 ára afmæli lýðveldisins. Með henni í athöfninni var Daniel do Carmo Njarðarson, nýstúdent frá Fjölbrautaskólanu...

10/06/2026

Umsóknarfrestur rennur út í kvöld, 10. júní! ⏳✨

10/06/2026
Taktu stökkið inn í framtíðina!🌈 Umsóknarfrestur rennur út í kvöld, sjáumst við í MB í haust? 🎓
10/06/2026

Taktu stökkið inn í framtíðina!🌈
Umsóknarfrestur rennur út í kvöld, sjáumst við í MB í haust? 🎓

Address

Borgarnes
310

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 14:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Menntaskóli Borgarfjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Menntaskóli Borgarfjarðar:

Shortcuts

Share

Category