Textílmiðstöð Íslands - Þekkingarsetur á Blönduósi

Textílmiðstöð Íslands er staðsett í fögru umhverfi við ósa Blöndu á Blönduósi í sögufrægri byggingu, Kvennaskólanum á Blönduósi. Textílmiðstöðin varð til vegna samþættingar Textílseturs Íslands (stofnað 2005) og Þekkingarsetursins á Blönduósi (stofnað 2012). Textílmiðstöðin hefur það meginmarkmið vera alþjóðleg miðstöð öflugrar rannsóknar- og þróunarstarfssemi í textílframleiðslu, textíllistum og handverki í textíl. Jafnframt sinnir Textílmiðstöðin því hlutverki að bjóða upp á aðstöðu fyrir háskólanám og fullorðinsfræðslu með aðgengi að fjarfundabúnaði og próftöku í samstarfi við aðila háskóla og símenntunarstöðva.

Í starfsemi Textílmiðstöðvarinnar er lögð áhersla á nýsköpunar-, þróunar- og samstarfsverkefni sem stuðla að atvinnuuppbygginu í tengslum við textíl, menningu og sögu svæðisins með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni. Í Kvennaskólanum er einnig rekin alþjóðleg listamiðstöð, Ós Textíllistamiðstöð, í samstarfi við Textílmiðstöðina.

Dagana 18.–20. september héldum við helgarnámskeið í stafrænum vefnaði fyrir lengra komna, undir leiðsögn Sarah Finkle o...
23/09/2026

Dagana 18.–20. september héldum við helgarnámskeið í stafrænum vefnaði fyrir lengra komna, undir leiðsögn Sarah Finkle og Alissu Estivariz. Námskeiðið byggir á TC2-námskeiðinu sem haldið var í vor.

//

Last weekend our lab team ran the TC2 digital weaving advanced course with 5 very dedicated participants! The focus of this course was to learn about structures for 3 weft gradient and colours mixing on a 1 warp system as well as a 2 warp system.

Each stripe is a trial and error and helps to learn how to read the patterns, understand the structure building and what is possible on a TC2 digital weaving loom. We had happy faces at the end and a bunch of new inspiration for our Lab Team, Alissa and Sarah.

Takk fyrir þátttökuna, Frida, Hedvig, Jasmijn, Amina and Thelma Kristín!

Það var gaman að taka á móti Kadi Kibberman og samstarfsfólki hennar frá textíldeild Listaháskóla Eistlands í Textílmiðs...
23/09/2026

Það var gaman að taka á móti Kadi Kibberman og samstarfsfólki hennar frá textíldeild Listaháskóla Eistlands í Textílmiðstöðinni föstudaginn 18. september. Í textíldeildinni mætast textílhönnun, list og rannsóknir, með áherslu á ný efni og tækni.

Gestirnir fengu kynningu á aðstöðu Textílmiðstöðvarinnar og heimsóttu einnig Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi.

Fyrir s*x árum tókum við á móti Kärt Ojavee en hún dvaldi hjá okkur sem lista- og fræðimaður í einn mánuð. Kärt er nú prófessor í textílhönnun við Listaháskóla Eistlands og því sérstaklega skemmtilegt að fá samstarfsfólk hennar úr deildinni í heimsókn.

Takk kærlega fyrir komuna :)

12/09/2026

👏👏👏

Skráning er nú opin fyrir þrjár vinnustofur (ókeypis) á vegum Tracks4Crafts sem fara fram á netinu í október.
04/09/2026

Skráning er nú opin fyrir þrjár vinnustofur (ókeypis) á vegum Tracks4Crafts sem fara fram á netinu í október.

Registration Now Open

Listamenn í Ós bjóða ykkur velkomin á sýninguna „August in Ós“ í Hillebrandtshúsi 📍 Hillebrandtshús, Blönduós🗓 26. ágúst...
25/08/2026

Listamenn í Ós bjóða ykkur velkomin á sýninguna „August in Ós“ í Hillebrandtshúsi

📍 Hillebrandtshús, Blönduós
🗓 26. ágúst (miðvikudagur| 16:00–19:00

24/08/2026

📣 Registration is now open for the Living Labs!

This October, join three interactive online sessions bringing together craftspeople, educators, makers, researchers and other stakeholders to explore and contribute to key Tracks4Crafts results.

🧵 1 October | 09:00–12:00
A connected learning journey across five dimensions of contemporary craft practice

💡 19 October | 09:00–12:00
Business Model Innovation for Crafters

💻 29 October | 09:00–12:00
Beyond Tools: Exploring the Roles of Digital Technologies in the Craft Ecosystem

You can register for one, two or all three sessions.

👉 Register here:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfW8aTW4GPXJZ4TSm6nY6ucVmL5sY_AMeit9620gEkbQPd1_Q/viewform

📖 Find out more:
https://tracks4crafts.eu/blog/n13-46/join-the-tracks4crafts-living-labs-this-october-906

Help us spread the word by sharing the opportunity with your networks.

,,Þetta snýst allt um snoðið!"Í síðustu viku kom í heimsókn dr. Sveinn Hallgrímsson, fyrrverandi skólastjóri á Hvanneyri...
23/07/2026

,,Þetta snýst allt um snoðið!"

Í síðustu viku kom í heimsókn dr. Sveinn Hallgrímsson, fyrrverandi skólastjóri á Hvanneyri og sérfræðingur í sauðfjárrækt og ull. Sveinn tók þátt í Ullarþoninu 2021 og skoðaði hvernig hægt væri að nýta snoð í voð. Ákveðið var að þróa hugmyndina aðeins áfram í TextílLabinu hjá okkur.

Snoðið er stutt (3-6sm) og að mestu leyti þel. Ljóst var að snoðið eitt og sér er kannski of stutt til að mynda sterka voð svo ákveðið var að gera tilraun með að blanda því saman við 3ja flokk sem að mestu leyti er ull af lærum. Lærullin er með lengsta togið og gæti komið sér vel að styrkja voðina með því.

Fengið var þvegið snoð og lærull frá Ullarþvottastöð Ístex. "Tilraunateymið", Sveinn Hallgrímsson, Jóhanna E. Pálmadóttir sérfræðingur í ull, ásamt starfsmönnum Textílmiðstöðvarinnar, Alissa Estivarez og Sarah Finkle undirbjuggu snoðið og lærullina fyrir kembingu og þæfingu í nálarþæfingarvélinni. Útbúnar var ýmsar blöndur af þessum tveimur flokkum og einnig voru flokkarnir kembdir/þæfðir hver fyrir sig.

Verkefnið er tilraunaverkefni sem haldið verður áfram með að rannsaka!

Listamenn í Ós bjóða ykkur velkomin á sýninguna „Ravel“ í Hillebrandtshúsi :)  📍 Hillebrandtshús, Blönduós🗓 26. júlí (su...
22/07/2026

Listamenn í Ós bjóða ykkur velkomin á sýninguna „Ravel“ í Hillebrandtshúsi :)

📍 Hillebrandtshús, Blönduós
🗓 26. júlí (sunnudagur)| 15:00–18:00

Það var okkur mikil ánægja að taka á móti ,,Iceland Field School" í Textílmiðstöðinni í fjórða sinn í júní 2026!Námskeið...
08/07/2026

Það var okkur mikil ánægja að taka á móti ,,Iceland Field School" í Textílmiðstöðinni í fjórða sinn í júní 2026!

Námskeiðið, sem dr. Kathleen Vaughan við Concordia-háskóla í Montréal í Kanada hefur þróað, er þverfaglegt háskólanámskeið þar sem nemendur dvelja hjá okkur allan júnímánuð og læra m.a. að vefa, lita og spinna ull. Þau kynnast einnig TextílLabinu og tækjum sem þar eru í boði ásamt því að vinna eigin verkefnum á vegum skólans t.d. á sviði menningarsögu og ferðamála. Skemmtilegt er að segja frá að Kathleen fékk hugmyndina eftir að hafa dvalið hjá okkur sem listamaður árið 2016.

Lokasýning og listamannaspjallið „Tog & Þel“ fóru fram á Rabarbarahátíð þann 27. júní 2026 í Hillebrandtshúsi á Blönduósi.

Við þökkum nemendum og Kathleen kærlega fyrir komuna!

18/06/2026

Myndbandakeppni á vegum Tracks4Crafts! 🎬
Umsóknarfrestur er 30. ágúst.

Address

Árbraut 31
Blönduós
540

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3544524030

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Textílmiðstöð Íslands - Þekkingarsetur á Blönduósi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Textílmiðstöð Íslands - Þekkingarsetur á Blönduósi:

Shortcuts

Share

Category