15/09/2026
Ólympíuhlaup ÍSÍ
Ólympíuhlaup ÍSÍ, áður Norræna skólahlaupið, hefur verið fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla allt frá 1984 þegar það fór fyrst fram.
Þátttaka skólanna hefur verið bæði góð og almenn í gegnum árin ognáði algjöru hámarki í fyrra þegar yfir 100 grunnskólar á landinu tóku þátt.
Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er fyrst og fremst verið að leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að
betri heilsu og líðan.
Í gær, miðvikudaginn 9. september, fór Ólympíuhlaup ÍSÍ fram í Glerárskóla.
Nemendur í 5. – 10. bekk hlupu skólahringinn sem er um 2,6 km langur og nemendur í 1. – 4. bekk hlupu styttri skólahringinn sem er um 1,7 km langur.
Veittar voru viðurkenningar á mið- og unglingastigi fyrir efstu þrjú sætin. Að þessu sinni voru eftirfarandi nemendur hlutskarpastir:
8. – 10. b. – drengir
1. Edrien Zeg (9. b.)
2. Adrien Zues (10. b.)
3. Jóel Orri (10. b.)
8. – 10. b. – stúlkur
1. Lydia Björk (9.b.)
2. Maísól Anna (9.b.)
3. Maríanna (8.b.)
5. – 7. b. – drengir
1. Nadir (6.b.)
2. Óðinn Helgi (5.b.)
3. S. Eysteinn (6.b.)
5. – 7. b. – stúlkur
1. Elísa Dagný (7.b.)
2. Bergþóra (5.b.)
3. Julietta (7.b.)