Miðstöð skólaþróunar HA

Miðstöð skólaþróunar HA

Share

Miðstöð skólaþróunar HA stuðlar að umbótum í skólastarfi og er farvegur þekkingar og þróunar út í daglegt skólastarf.

Markmið miðstöðvar skólaþróunar er að stuðla að umbótum í skólastarfi og vera farvegur þekkingar og þróunar út í hið daglega skólastarf. Meginviðfangsefni hennar lúta að ráðgjöf og fræðslu til starfandi kennara og skólastjóra við hvers kyns nýjungar á sviði skóla- og kennslumála. Hún stendur fyrir rannsóknum, stefnumótunarvinnu og mati á skólastarfi, heldur ráðstefnur, námskeið og fræðslufundi. In

02/06/2026

Vekjum athygli á þessu!!!

Samræðufélagar á Akureyri og í Reykjavík haust 2026 02/06/2026

Mig langar að benda á námskeið í Samræðufélögum á Akureyri og í Reykjavík í haust. Henta sérlega vel ÍSAT- og sérkennurum sem kenna fjöltyngdum nemendum í smærri hópum. Sjá hér:

Samræðufélagar á Akureyri og í Reykjavík haust 2026 Spennandi námskeið - fyrir ÍSAT kennara á öllum skólastigum! Í haust verða námskeið bæði í Reykjavík og á Akureyri.

Læsi til náms og yndis 06/05/2026

Málstofukall - Ráðstefnan Læsi til náms og yndis

Frestur til að senda inn ágrip er til 15. maí.

Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA) og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) standa fyrir læsisráðstefnunni Læsi til náms og yndis sem haldin verður við Háskólann á Akureyri laugardaginn 12. september 2026.

Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni verða Dr. Dominic Wyse, Pernille Ripp, Yrsa Þöll Gylfadóttir og Gunnar Theodór Eggertsson. Auk aðalerinda verða fjölbreyttar málstofur og umræður um læsi sem grunn að námi, þátttöku og ánægju í skólastarfi.

Við óskum eftir erindum á málstofur frá kennurum á öllum skólastigum, fræðafólki og öðrum áhugasömum um efni ráðstefnunnar.

Einkum er leitað eftir:
Kynningu á árangursríkum leiðum, aðferðum og verkfærum
Kynningu á vel heppnuðum þróunarverkefnum
Kynningu á nýlegum íslenskum og erlendum rannsóknum
Efni sem bíður upp á virka þátttöku gesta

Smellið hér til að senda inn málstofuerindi: https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/laesi-til-nams-og-yndis

Ráðstefnuteymi sendir svör fyrir 15. júní.

Læsi til náms og yndis Læsisráðstefna MSHA og MMS - Takið daginn frá

Opið fyrir umsóknir hjá MSHA! 04/05/2026

Opið fyrir umsóknir!

Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri styður skóla í markvissri þróunarvinnu. Við bjóðum heildstæða þjónustu sem byggir á rannsóknum og reynslu úr íslensku skólastarfi. Þjónustan er sniðin að þörfum hvers skóla, hvort sem um er að ræða styttri verkefni eða lengra samstarf.

Við leggjum áherslu á lausnir sem skila árangri.

Opið fyrir umsóknir hjá MSHA! Miðstöð skólaþróunar býður upp á heildstæðan stuðning við starfsþróun á flestum sviðum skólastarfs. Vel rannsakað starfsþróunarlíkan. Fræðsla, ráðgjöf og s

Læsi til náms og yndis 16/04/2026

MÁLSTOFUKALL - læsisráðstefnan Læsi til náms og yndis

Við óskum eftir erindum á málstofur frá kennurum á öllum skólastigum, fræðafólki og öðrum áhugasömum um efni ráðstefnunnar👇

Læsi til náms og yndis Læsisráðstefna MSHA og MMS - Takið daginn frá

Leikurinn í forgrunni í samstarfsverkefni innan leikskóla Múlaþings 15/04/2026

,,Teymisvinna stuðlar að betri lausnum á vandamálum. Þegar ólík sjónarmið og reynsla koma saman verða hugmyndir fjölbreyttari og liklegra er að finna skapandi lausnir. Starfsfólk sem finnur að framlag þess skiptir máli í teyminu upplifir meiri hvatningu og metnað til að standa sig vel. Þegar allri vinna saman að sameiginlegu markmiði eykst ánægja og vellíðan í starfi.“

Þróunarverkefnið „Með leikinn að leiðarljósi“ er samstarfsverkefni sjö leikskóla á Austurlandi og Miðstöðvar skólaþróunar. Verkefnið nær til alls starfsfólks og hefur haft jákvæð áhrif á daglegt starf, samvinnu og starfsánægju.

Leikurinn í forgrunni í samstarfsverkefni innan leikskóla Múlaþings Verkefnið er unnið í samstarfi allra s*x leikskólanna í Múlaþingi sem og leikskólans á Vopnafirði.

18/03/2026

Af hverju ná fáir íslenskir nemendur afburðaárangri í PISA?

• Rannsóknaniðurstöður eru ekki nýttar nægilega vel í skólastarfi
• Kennslan í skólum er oft of miðjumiðuð
• Nemendur fá ekki nægilega krefjandi verkefni
• Minna er unnið með texta og samræður en rannsóknir benda til að skili árangri
• Skortur á lesefni fyrir börn og unglinga

Rúnar Sigþórsson prófessor emeritus við HA og Gunnar Gíslason forstöðumaður Miðstöð skólaþróunar HA voru gestir í fyrsta þætti Kerfisins á RÚV. Við mælum svo sannarlega með hlustun með morgunbollanum ☕

Hlekkur á viðtal í athugasemd!

10/03/2026

Nýr þáttur af Kerfinu er kominn í loftið á Rás 1.

Gestir í þessum fyrsta þætti eru Gunnar Gíslason og Rúnar Sigþórsson. Umsjón er í höndum Guðrúnar Hálfdánardóttur.

Áhugavert samtal fyrir alla sem hafa áhuga á læsi og menntun barna.

Hægt er að hlusta á þáttinn hér:
https://www.ruv.is/utvarp/spila/kerfid/39168/blh401

Í dag klukkan 13 hóf göngu sína ný þáttaröð á Rás 1 sem kallast Kerfið 🔊
Þættirnir eru í umsjón Guðrúnar Hálfdánardóttur en í Kerfinu skoðar Guðrún menntamálin, betrun og biðlista frá ýmsum hliðum 🎙
Hér má hlusta á fyrsta þáttinn: https://www.ruv.is/utvarp/spila/kerfid/39168/blh401

Að verða læs fyrir lífið - Vísir 10/02/2026

Áhugaverð grein eftir Rúnar Sigþórsson sem birtist í Vísi.

„Að undanförnu hefur verið hávær umræða um hvernig bregðast eigi við hnignandi lesskilningi meðal íslenskra grunnskólanema. Þessi umræða hefur beinst einhliða að lestrarkennslu á yngsta stigi grunnskóla en skilað að mestu leyti auðu varðandi kennslu á miðstigi og unglingastigi. Þetta er í alla staði óheppilegt og ólíklegt til árangurs. Í þessari grein eru færð rök fyrir nauðsyn þess að koma umræðunni upp úr þessum hjólförum og beina sjónum að því sem hægt er – og þarf – að gera á mið- og unglingastigi“

Að verða læs fyrir lífið - Vísir Að undanförnu hefur verið hávær umræða um hvernig bregðast eigi við hnignandi lesskilningi meðal íslenskra grunnskólanema. Þessi umræða hefur beinst einhliða að lestrarkennslu á yngsta stigi grunnskóla en skilað að mestu leyti auðu varðandi kennslu á miðstigi og unglingastig...

Dagur leikskólans - ný vefsíða um barnaheimspeki 06/02/2026

Ný síða um barnaheimspeki og samræður í leikskólastarfi

Á Degi leikskólans opnar formlega ný vefsíða um barnaheimspeki unnin í samstarfi leikskólans Lundarsels Pálmholts og Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Vefsíðan er öllum opin og byggir á þróunarstarfi sem unnið hefur verið í leikskólanum um árabil.

Það er viðeigandi að opna síðuna á Degi leikskólans, 6. febrúar. Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur árlega og á rætur að rekja til ársins 1950, þegar frumkvöðlar í leikskólakennslu stofnuðu sín fyrstu samtök og lögðu grunn að faglegu leikskólastarfi á Íslandi.

Dagur leikskólans - ný vefsíða um barnaheimspeki Á vefsíðunni er barnaheimspeki kynnt sem leið til að efla gagnrýna hugsun og samræðuhæfni barna í leikskólastarfi. Áhersla er lögð á að skapa rými fyrir op

Want your school to be the top-listed School/college in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Sólborg V/Norðurslóð
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00