Valsárskóli Svalbarðsströnd

Valsárskóli Svalbarðsströnd Valsárskóli er grunnskóli á Svalbarðsströnd Skólahverfið liggur frá Veigastöðum í suðri til Garðsvíkur í norðri. Nýi grunnskólinn fékk nafnið Valsárskóli.

Valsárskóli er á Svalbarðsströnd í Suður-Þingeyjarsýslu, við austanverðan Eyjafjörð. Þaðan eru um 12 kílómetrar til Akureyrar. Valsárskóli byggir skólastefnu sína á uppbyggingarstefnunni þar sem lögð er áhersla á sterka sjálfsmynd nemenda, tjáningu og virðingu fyrir öðru fólki ásamt uppeldis til ábyrgðar. Gildi skólans eru: Umhyggja, virðing, metnaður og gleði. Grunnskólinn, Valsárskóli, er fámennur skóli með samkennslu nemenda. Nemendafjöldinn hefur sveiflast nokkuð frá um 80 í rúmlega 50 nemendur. Fjöldi stöðugilda breytist í takt við nemendafjöldann hverju sinni. Saga skólahalds á Svalbarðsströnd nær samkvæmt heimildum aftur til ársins 1902. Farskóli var rekinn frá því að fræðslulögin voru sett 1907 og fram til ársins 1922 þegar lokið var við byggingu samkomuhúss hreppsins sem nýtt var sem skólahús á vetrum til ársins 1970. Þá var skólahald flutt í nýtt skólahúsnæði en kennsla unglingastigs og íþróttakennsla fór fram á Hrafnagili í Eyjafirði og var nemendum ekið þangað daglega. Sundkennsla fór þó fram í sundlaug Svalbarðsstrandarhrepps sem byggð var 1931 og er svo enn. Svalbarðsstrandarhreppur tók þátt í uppbyggingu skólahúsnæðis á Hrafnagili en mikill hugur var í heimamönnum um byggingu íþróttahúss á heimastað og að grunnskólakennsla sveitarinnar færi öll fram á heimavettvangi. Árið 1995 var flutt í nýtt skólahúsnæði og íþróttahús. Stærstur hluti eldra húsnæðis var tekinn undir rekstur leikskólans Álfaborgar. Talsverð samvinna er á milli skólastiganna og aðstæður til þess góðar vegna nálægðar skólanna. Árið 2004 var tekin í notkun 420 fermetra viðbygging við skólann og árið 2005 voru verkmenntastofur í gamla skólahúnæðinu í Álfaborg endurgerðar ásamt skólaleikvelli með nýjum leiktækjum. Sparkvöllur við skólann var tekinn í notkun haustið 2008. Skólahúsnæðið telur alls um 1715 fermetra og hluti þess er jafnframt nýttur sem félagsaðstaða sveitarfélagsins.

https://skolar.svalbardsstrond.is/is/frettir/enginn-titill-22
26/11/2025

https://skolar.svalbardsstrond.is/is/frettir/enginn-titill-22

Bókmenntahátíð barnanna verður haldin í félagsheimilinu Laugarborg í Hrafnagilshverfi fimmtudaginn 4. desember 2025. Um er að ræða samvinnuverkefni fjögurra skóla á Norðurlandi; Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, Valsárskóla á Svalbarðseyri, Reykjahlíðarskóla og Stórutjarn...

Address

Vaðlabyggð 10
Akureyri
606

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Valsárskóli Svalbarðsströnd posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share