16/04/2026
Hvað er betra á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl milli klukkan 14:00 og 17:00 en ilmurinn og bragðið af nýbökuðum vöfflum, og vor í lofti í Fnjóskadal.
Kvenfélag Fnjóskdæla verður með Vöfflukaffi í Skógum, til styrktar endurnýjun á þaki hússins.
Sama góða verðið, fullorðnir 1000 kr/ börn 500 kr, vafflan, ábót 500 krónur, kaffi 500 kr. Enginn posi.