Barnabókasetur

Barnabókasetur Barnabókasetur er rannsóknasetur um barnabókmenntir og lestur barna við Háskólann á Akureyri.

05/06/2024

Sigurvegarar í eldri flokki Siljunnar 2024 eru í Brekkuskóla á Akureyri og gerðu þetta hrollvekjandi myndband um Drenginn með ljáinn eftir Ævar Þór Benediktsson

Höfundar myndbands eru Anton Dagur Björgvinsson, Anton Bjarni Bjarkason, Birkir Kári Helgason, Emilía Ingibjörg Guðjónsdóttir, Katrín Karlinna Sigmundsdóttir og Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir

Sigurvegarar í yngri flokki Siljunnar 2024 eru í Smáraskóla í Kópavogi og gerðu þetta flotta myndband um bókina Orri óst...
05/06/2024

Sigurvegarar í yngri flokki Siljunnar 2024 eru í Smáraskóla í Kópavogi og gerðu þetta flotta myndband um bókina Orri óstöðvandi - draumur Möggu Messi. Höfundur bókar er Bjarni Fritzson

Höfundar myndbands: Mariama Kristín Sörudóttir Conte, Ólöf Margrét Marvinsdóttir, Birta Guðrún Jónsdóttir, Lilja María Sigþórsdóttir, Emilía Ólöf Jónsdóttir, Sóley María Jóhannsdóttir, Gígja Aðalsteinsdóttir, Sara Mist Orradóttir

13/02/2024

Siljan 2024 er hafin - veggspjald með unglingabókum er á leið til viðtakenda en hér er tengill í pdf. útgáfu af því fyrir þau sem vilja prenta út. Veggspjaldið er tilvalið í kennslustofur á unglingastigi, skólasöfn, fatahengi, ganga og aðra staði í skólanum þar sem unglingar eru á ferli. Við vinnum út frá því að sýnileiki bóka auki áhuga á lestri :)
Bækur fyrir yngri hópinn eru á veggspjaldi fyrir Bókaverðlaun barnanna.

Siljan 2024 er komin í gang! Við losum um ártalahöftin en viljum þó sem fyrr beina sjónum krakkanna að nýmeti fyrir þeir...
12/02/2024

Siljan 2024 er komin í gang! Við losum um ártalahöftin en viljum þó sem fyrr beina sjónum krakkanna að nýmeti fyrir þeirra aldur. Yngri flokkurinn (5.-7. bekkur) hefur hingað til verið duglegri að skila inn en sá eldri (8.-10. bekkur) svo við viljum virkja unglingana með því að gera bækur fyrir þeirra aldur sýnilegri. Veggpjöld Siljunnar með öllum ungmennabókum sl. tveggja ára eru komin í dreifingu. Nýjustu barnabækurnar eru hins vegar á veggspjaldi fyrir Bókaverðlaun barnanna.

Siljan 2024 er samstarfsverkefni Barnabókaseturs og Borgarbókasafnsins í Reykjavík. Keppnin er opin öllum nemendum á landinu í 5.-10. bekk. Skila þarf myndböndum fyrir 30. apríl.

Sigurvegarar í eldri flokki Siljunnar 2023 komu úr Brekkuskóla á Akureyri. Þau tryggðu skólasafninu sínu 100.000 króna b...
20/06/2023

Sigurvegarar í eldri flokki Siljunnar 2023 komu úr Brekkuskóla á Akureyri. Þau tryggðu skólasafninu sínu 100.000 króna bókaúttekt fyrir myndband um bókina Dóttir hafsins eftir Kristínu Björgu Sigurvinsdóttur.

Til hamingju Anna Kristín, Anna Lóa, Auður Gná, Gabríel Birkir, Helga María, Kjartan Valur, Leó Már, Morta Viktoría, Neó, Pétur Friðrik, Ragnheiður Inga og Sváfnir.

Umsögn dómnefndar: Myndin í heild sinni er alveg framúrskarandi. Staðsetningar í tökum, hljóð, búningar, myndataka frábær. Allar hljóðbrellur juku á áhrif myndarinnar og handritið mjög gott sem gerði sögunni góð skil. Tónlistin passaði mjög vel við og klipping myndarinnar sem hvorutveggja jók á áhrif sögunnar.

Sigurvegari Siljunnar 2023.Sérstakar þakkir:Margrét Sóley MatthíasdóttirMinjasafn AkureyrarTónlist:Another love slowed and reverbed

Sigurvegarar í yngri flokki Siljunnar 2023 eru úr Selásskóla í Reykjavík: Lára Elmarsdóttir Van Pelt, Daníel Darri Andra...
13/06/2023

Sigurvegarar í yngri flokki Siljunnar 2023 eru úr Selásskóla í Reykjavík: Lára Elmarsdóttir Van Pelt, Daníel Darri Andrason, Kolbrún Ída Kristjánsdóttir og Dagný Vera Árnadóttir. Þau tryggðu skólasafninu sínu 100.000 króna bókaúttekt fyrir myndband um bókina Saman í liði eftir Kjartan Atla Kjartansson.

Umsögn dómnefndar: Handritið var gott og sögunni voru gerð góð skil. Myndatakan góð og margir staðir notaðir í tökum. Einnig var hugsað um búninga, góð kynning á persónum og klipping og eftirvinnsla góð. Lokaatriðið gott og gaf góða heildarmynd.

18/04/2023

Orðsending til þátttakenda í Siljunni / kennara sem nýta Siljuna: Innsendisíðan okkar fraus á versta tíma og því biðjum við þau sem ekki fengu viðbrögð við innsendu Siljumyndbandi að senda slóðina á það með tölvupósti til [email protected]
Við tökum á móti myndböndum til 30. apríl.

Þetta á að vera skýrt. Ef myndbandið komst til skila fékk sá sem sendi það svar. Ef ekkert svar kom þá lenti myndbandið í frostinu.

Endilega látið þetta berast til þeirra sem þið vitið að tóku þátt.

16/03/2023
Siljan 2023 er komin í gang! Skilafrestur myndbanda: 31. mars. Að vanda er myndbandasamkeppnin opin öllum krökkum í 5.-1...
16/02/2023

Siljan 2023 er komin í gang!
Skilafrestur myndbanda: 31. mars.

Að vanda er myndbandasamkeppnin opin öllum krökkum í 5.-10. bekk á landinu. Gera þarf myndband um barna- eða unglingabók sem kom út á íslensku á sl. tveimur árum, sjá nánar á www.barnabokasetur.is

Kennarar athugið: þessi lestrarhvetjandi keppni hentar sérlega vel sem skólaverkefni. Hér er tækifæri til að leyfa börnunum að skapa og túlka út frá bókum sem þau velja sér að lesa.

Barnabókasetur og Borgarbókasafnið standa saman að keppninni með liðsinni Bókmenntaborgarinnar.

https://borgarbokasafn.is/sites/default/files/siljan_lokaplakat_.jpg

Barnabókasetur og Borgarbókasafnið stóðu saman að myndbandasamkeppninni Siljunni í vetur en Mennta- og menningarmálaráðu...
14/06/2022

Barnabókasetur og Borgarbókasafnið stóðu saman að myndbandasamkeppninni Siljunni í vetur en Mennta- og menningarmálaráðuneytið (sem svo hét í haust) styrkti þetta árlega lestrarhvatningarverkefni. Við deilum hér frétt Bbs um úrslitin og þökkum fyrir frábær framlög frá hugmyndaríkum lestrarhestum um land allt

Myndbandasamkeppni Borgarbókasafnsins og Barnabókaseturs fyrir börn í 5. - 10. bekk.

Nemendur í Smáraskóla sigruðu í yngri flokki Siljunnar 2022 með þessu skemmtilega myndbandi um bókina Kalli breytist í K...
13/06/2022

Nemendur í Smáraskóla sigruðu í yngri flokki Siljunnar 2022 með þessu skemmtilega myndbandi um bókina Kalli breytist í Kjúkling eftir Sam Copeland, Guðni Kolbeinsson þýddi. Höfundar myndbandsins eru Snædís Arna Guðmundsdóttir, Sólveig Lára Davíðsdóttir og Sunna Sigurðardóttir. Með sigrinum tryggðu þær skólanum sínum 100.000 króna bókaúttekt fyrir skólasafnið.
Umsögn dómnefndar: „Hugmyndaríkur leikur að sjónarhornum í mynd sem nær að fanga ærslafullan anda sögunnar. Stórskemmtilegar brellur og ýmsar tæknilegar útfærslur sem gaman er að sjá og greinilega metnaður lagður í gerð myndbandsins. Sérstaklega gaman að sjá köttinn leika sitt hlutverk, en það er heilmikið verk af fá dýr til að taka þátt í myndbandagerð.“

Nemendur Þelamerkurskóla sigruðu í eldri flokki Siljunnar 2022 með þessu hrikalega flotta myndbandi um Fleiri hryllilega...
13/06/2022

Nemendur Þelamerkurskóla sigruðu í eldri flokki Siljunnar 2022 með þessu hrikalega flotta myndbandi um Fleiri hryllilega stuttar hrollvekjur eftir Ævar Þór Benediktsson. Höfundar myndbandsins eru Daníel Ingi Mazul, Stefán Karl Ingvarsson, Dagur Karl Stefánsson, Jónatan Smári Guðmundsson og Ólafur Dagur Jónsson. Með sigrinum tryggðu þeir skólanum sínum 100.000 króna bókaúttekt fyrir skólasafnið.
Mat dómnefndar: „Sannkallað skuggaspil, rammað inn með frásögn sögumanns þar sem tæknibrellur vekja ugg í brjósti. Skemmtileg leikstjórn, vel mótaðir karakterar, lesturinn virkilega góður og myndbandið allt vel heppnað og krípí.“

Address

Akureyri
600

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Barnabókasetur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category