17/10/2025
Þann 15. október var uppbrotsdagur í skólanum, fjölgreindardagur og þemað að þessu sinni var hrekkjavaka. Hefðbundin stundatafla var lögð til hliðar og nemendum skipt í hópa þvert á árganga þannig að í hverjum hóp voru nemendur frá 1. og upp í 10. bekk. Elstu nemendur í hverjum hóp voru hópstjórar og báru ábyrgð á að nemendur í þeirra hóp væru á réttum stað. Unglingarnir stóðu sig sérstaklega vel og voru yngri nemendum frábær fyrirmynd. Nemendur fóru á alls 10 stöðvar og voru mismundi verkefni í gangi á hverjum stað. Dagurinn gekk ljómandi vel og langflestir nemendur og starfsmenn ánægðir með tilbreytinguna og skemmtu sér vel. Í lokin söfnuðust allir saman í íþróttasalnum þar sem heilsueflingarnefnd skólans veitti viðurkenningu fyrir verkefnið göngum í skólann en bæði starfsmenn og nemendur tóku þátt. Þá var veitt viðurkenning á hverju stigi fyrir ÍSÍ skólahlaupið sem fram fór í september.
Fjölgreindardagur – Hrekkjavökuþema
Þann 15. október var uppbrotsdagur í skólanum, fjölgreindardagur og þemað að þessu sinni var hrekkjavaka. Hefðbundin stundatafla var lögð til hliðar og nemendum skipt í hópa þvert á árganga þannig …
29/09/2025
Aðalfundur foreldrarfélags Oddeyrarskóla verður haldinn í matsal skólans fimmtudaginn 2. október klukkan 18:00 - 19:00.
24/09/2025
Nemendur í sjónlistum í Oddeyrarskóla fengu á dögunum heimsókn frá Kat Owens, listamanneskju, aktívista og kennara við Hartford háskóla í Connecticut í Bandaríkjunum. Kat rannsakar áhrif plastsmengunar á umhverfið og hefur skapað athyglisverð listaverk í þeim tilgangi að vekja athygli á málefninu.
Hún hefur unnið að því að búa til verk í fullri stærð af dýrum sem verða fyrir mestum skaða af völdum plastmengunar. Verkin eru unnin með þeirri tækni að sauma plast á striga. Núna vinnur Kat að mynd af langreyði sem mun verða rúmlega 25 metrar að lengd.
Í tengslum við þetta verkefni heimsótti hún nokkra skóla á Akureyri til að fá aðstoð nemenda. Nemendur Oddeyrarskóla tóku virkan þátt í verkefninu og höfðu gaman af þessari óvenjulegu listrænu upplifun.
Áhugasömum er bent á að nánari upplýsingar um verkefnið og önnur verk Kat Owens er að finna á vefsíðunni www.katowens.com. Hér má sjá fleiri myndir.
https://oddeyrarskoli.is/listakona-fra-bandarikjunum-heimsaekir-oddeyrarskola/
Listakona frá Bandaríkjunum heimsækir Oddeyrarskóla
Nemendur í sjónlistum í Oddeyrarskóla fengu á dögunum heimsókn frá Kat Owens, listamanneskju, aktívista og kennara við Hartford háskóla í Connecticut í Bandaríkjunum. Kat rannsakar áhrif plastsmeng…
12/09/2025
Í tilefni af árlegum degi læsis sem er 8. september, ákvað læsisnefnd skólans að fá nemendur til að skoða skrítin og skemmtileg orð.
Fáeinum dögum fyrir dag læsis voru nemendur beðnir um að safna og skrifa hjá sér orð sem þeim þóttu skrítin og skemmtileg. Jafnvel ræða við ættingja sína og spyrja þá um orð.
Á degi læsis sjálfan fengu nemendur svo miða þar sem þeir áttu að skrifa niður eitt orðanna sem þeir höfðu safnað og segja af hverju þeir völdu það. Miðarnir voru svo settir á vegg í kennslustofunni.
Ýmis skrítin og skemmtileg orð komu út úr þessari vinnu.
Dagur læsis 8.september
Í tilefni af árlegum degi læsis sem er 8. september, ákvað læsisnefnd skólans að fá nemendur til að skoða skrítin og skemmtileg orð. Fáeinum dögum fyrir dag læsis voru nemendur beðnir um að s…
05/06/2025
Skólaslit í Oddeyrarskóla verða sem hér segir föstudaginn 6. júní.
1. – 7. bekkur klukkan 9:00
Stutt dagskrá í sal skólans og síðan fylgja nemendur umsjónarkennurum í stofur.
8. – 10. bekkur kl. 14:30.
Mæting í sal skólans. Kaffi fyrir útskriftarnemendur, aðstandendur og starfsfólk á eftir.
Skólinn verður settur aftur að loknu sumarleyfi föstudaginn 22. ágúst 2025.
2. – 4. bekkur kl. 9:00
5. – 7. bekkur kl. 9:30
8. – 10. bekkur kl. 10:00
Forráðamenn nemenda sem hefja nám í 1. bekk verða boðaðir í viðtal ásamt nemendum 22. eða 25. ágúst en umsjónarkennari sendir bréf með upplýsingum um tímasetningu.
Skólaslit 6. júní
Skólaslit í Oddeyrarskóla verða sem hér segir. – 7. bekkur Stutt dagskrá í sal skólans og síðan fylgja nemendur umsjónarkennurum í stofur. 8. – 10. bekkur kl. 14:30. Mæting í sal skólan…
04/06/2025
Unicef hreyfingin fór fram í Oddeyrarskóla sl mánudag en þá hlupu nemendur skólans hring um hverfið eða hringinn kringum skólann. Markmiðið með hlaupinu var að safna áheitum til styrktar Unicef. Nemendur hafa væntanlega komið heim með kort sem búið var að setja límmiða í en þeir fengu límmiða fyrir hvern hring sem þeir hlupu.
Hér er hlekkur inn á styrktarsíðu skólans en foreldrar/forráðamenn eða aðrir velunnarar geta styrkt um einhverja upphæð. Það er ekkert lágmark og munum að margt smátt gerir eitt stórt
Oddeyrarskoli
UNICEF Hreyfingin er fræðslu- og fjáröflunarverkefni fyrir grunnskólabörn á Íslandi. Markmið þess er að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og virkja þau til samstöðu með jafnöldrum sínum víða um heim.
28/05/2025
Í dag miðvikudaginn 28. maí veittum við viðurkenningar fyrir lestrarátakið/keppnina Allir lesa vor 2025 í 1. – 7. bekk, sem stóð frá öðrum til sextánda maí. Langflestir nemendur stóðu sig afar vel og spenna lá í loftinu þegar úrslitin voru tilkynnt. 4. bekkur fékk viðurkenningu fyrir að hafa lesið samanlagt flestar mínútur, einnig fengu þeir nemendur sem lásu í 1000 mínútur eða meira bók að gjöf frá læsisteyminu. Við viljum hvetja alla til að lesa í sumarfríinu og bendum á Amtsbókasafnið til að nálgast skemmtilegar bækur í fríinu.
Viðurkenningar í lestrarátaki
Í dag miðvikudaginn 28. maí veittum við viðurkenningar fyrir lestrarátakið/keppnina Allir lesa vor 2025 í 1. – 7. bekk, sem stóð frá öðrum til sextánda maí. Langflestir nemendur stóðu sig afa…
27/05/2025
Í síðustu viku var haldin rýmingaræfing í skólanum þar sem farið var út um neyðarútganga. Yngsta stigið sem er á jarðhæð fór út um glugga og gekk það hratt og vel fyrir sig. Þegar allir voru komnir út var safnast saman á fótboltavellinum þar sem tryggt var að allir hefðu skilað sér. Þetta var svo skemmtilegt og gekk svo vel fyrir sig að ákveðið var að taka aðra umferð þannig að allir fóru inn í stofur og endurtóku leikinn. Krakkarnir voru hjálpsamir og tillitsamir og vel vakandi fyrir því að allir skiluðu sér út.
Næsta dag var rýmingaræfing fyrir mið- og unglingastig en þar þurfti að fara út um glugga og fara niður stiga frá annarri og þriðju hæð. Rýmingin sjálf gekk vel og að fjórum mínútum liðnum voru allir komnir út úr skólanum og söfnuðust saman á þaki bókasafns og tengigangs við íþróttahús. Það tók hins vegar lengri tíma að koma öllum niður á jörðina en þar þurfti að fara niður mjóan stiga og bara einn og einn í einu. Slökkviliðið tók þátt í æfingunni og kom með auka stiga en samtals tók það 16 mínútur frá því æfing hófst þar til allir höfðu safnast saman á fótboltavellinum.
Öryggistrúnaðarráð skólans fer yfir hvernig til tókst og safnar saman ábendingum frá starfsmönnum og nemendum.
Rýmingaræfing í Oddeyrarskóla
Í síðustu viku var haldin rýmingaræfing í skólanum þar sem farið var út um neyðarútganga. Yngsta stigið sem er á jarðhæð fór út um glugga og gekk það hratt og vel fyrir sig. Þegar allir voru komnir…
10/04/2025
https://oddeyrarskoli.is/enska-i-9-bekk/
Nemendur í 9. bekk hafa í enskutímum verið að vinna verkefni með þeim markmiðum að efla tungumálakunnáttu, menningarlæsi og skapandi hugsun.
Nemendurnir fengu að velja sér borgir af enskumælandi svæðum. Þau unnu síðan glærukynningar, veggspjöld og – það sem vakti hvað mesta athygli – smíðuðu líkön af þekktum kennileitum hverrar borgar. Má þar nefna Big Ben, Golden Gate brúna, Miami ströndina, og Hollywood skiltið.
Þetta verkefni er frábært dæmi um hvernig má sameina tungumálanám, sköpun og menningarlæsi á skemmtilegan hátt.
Enska í 9. bekk
Nemendur í 9. bekk hafa í enskutímum verið að vinna verkefni með þeim markmiðum að efla tungumálakunnáttu, menningarlæsi og skapandi hugsun. Nemendurnir fengu að velja sér borgir af enskumælandi sv…
27/03/2025
Við förum í Hlíðarfjall í dag :) Muna að klæða sig vel.
25/03/2025
Stefnt er á útivistardag í Hlíðarfjalli næsta fimmtudag. Dagskrá verður sem hér segir:
1. – 4. bekkur. Mæting í skóla kl. 08:10. Rútur í Hlíðarfjall kl. 09:00 og til baka kl.11:00.
5. – 7. bekkur. Mæting í skóla kl. 08:10. Rútur í Hlíðarfjall kl. 08:30 og til baka kl. 11:30 eða 12:00
8. – 10. bekkur. Mæting í skóla kl. 08:30. Rútur í Hlíðarfjall kl. 8:45 og til baka kl. 11:30 eða 12:00
Skóla lýkur að hádegisverði loknum en frístundarbörn sem skráð eru fara beint þangað.
Útivistardagur í Hlíðarfjalli fimmtudaginn 27. mars
Stefnt er á útivistardag í Hlíðarfjalli næsta fimmtudag. Dagskrá verður sem hér segir: 1. – 4. bekkur. Mæting í skóla kl. 08:10. Rútur í Hlíðarfjall kl. 09:00 og til baka kl.11:00. 5. –…