Kennaradeild Háskólans á Akureyri

Kennaradeild Háskólans á Akureyri Nám í kennaradeild miðar að því að mennta kennara til starfa í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum eða á öðrum sviðum menntamála.

Kennarar gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki. Þeir starfa flestir við kennslu en menntunin nýtist einnig vel í öðrum störfum, innan menntakerfisins sem á almennum vinnumarkaði. Markmiðið er að veita þeim örugga þekkingu á undirstöðuþáttum starfsins svo þeir geti tekist á hendur þau hlutverk sem það leggur þeim á herðar. Þeir eiga jafnframt að vera færir um að þróa og móta skóla sem lærdómssamfélag, iðka rannsóknir eða stunda frekara nám.

Vorhefti TUM - Tímarits um uppeldi og menntun árið 2026 er nú komið út. Í ritinu eru 7 ritrýndar greinar. Hægt er að nál...
05/08/2026

Vorhefti TUM - Tímarits um uppeldi og menntun árið 2026 er nú komið út.
Í ritinu eru 7 ritrýndar greinar. Hægt er að nálgast vefútgáfu ritsins og allar greinarnar í opnum aðgangi hér á vefnum: https://tum.hi.is/

-Aðgengi, sköpun og þátttaka barna: listahillan sem opnaði möguleika - Þóra Lilja Kristjánsdóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir

-Frásagnir leikskólakennaranema af þróun inngildandi starfshátta í fjölmenningarlegu leikskólastarfi - Hrönn Pálmadóttir, Kristín Karlsdóttir, Renata Emilsson Pesková, Arna H. Jónsdóttir

-„Ætli þetta sé ekki örugglega prentvilla?“: orðræða leikskólafólks á samfélagsmiðlum á tímum Covid - Anna Elísa Hreiðarsdóttir

-Gamlir draumar eða umbreytandi menntun - Ólafur Páll Jónsson

-„Það er bara fjallað um hið neikvæða, ekki allt það frábæra starf sem unnið er“: viðhorf leikskólakennaranema til fjölmiðlaumfjöllunar um leikskólastarf - Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, Svava Björg Mörk, Samuli Ranta

-Jákvæð vinnustaðamenning í leikskóla: forysta, samskipti, samstarf og skipulag - Inga Birna Sigurðardóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir

-Sýn leikskólabarna á þátttöku í ærslaleik - Atli Sævar Ágústsson, Sara Margrét Ólafsdóttir

Prentuð útgáfa mun berast áskrifendum í júlímánuði.
Hlekkur á tímaritið í athugasemd ⤵

Innilega til hamingju með greinarnar kæru höfundar.

Timarit um uppeldi og menntun er fræðilegt tímarit á sviði menntavísinda, gefið út í samstarfi Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri og Félags um menntarannsóknir. Tímaritið varð til árið 2016 með samruna tveggja eldri tímari...

Ný grein eftir Sigríði Margréti Sigurðardóttur um það hvernig börn af erlendum uppruna upplifa sig í íslensku samfélagi.
26/03/2026

Ný grein eftir Sigríði Margréti Sigurðardóttur um það hvernig börn af erlendum uppruna upplifa sig í íslensku samfélagi.

This article employs a case-study approach to explore how immigrant populations, particularly children and youth, develop a sense of belonging within Icelandic ...

05/03/2026

Innilega til hamingju Brynhildur Þórarinsdóttir, dósent við Kennaradeild Háskólans á Akureyri, með Fjöruverðlaunin í flokki barna- og unglingabókmennta fyrir bókina Silfurgengið ❤

Dómnefnd Fjöruverðlaunanna hrósaði sögunni fyrir einlægni og spennu, auk þess sem hún varpar ljósi á það sem breytist og það sem helst alltaf eins.

Við hjá Háskólanum á Akureyri erum afar stolt af Brynhildi og óskum henni hjartanlega til hamingju með þennan glæsilega árangur. ✨📚

Ítarlegri umfjöllun um Fjöruverðlaunin má nálgast í hlekk í athugasemd.

19/02/2026

🎓 Stóru norrænu rannsóknarverkefni lokið!

Eftir sjö ára starf er Quality in Nordic Teaching (QUINT) nú formlega lokið – eitt stærsta norræna rannsóknarverkefni á sviði menntunar, með þátttöku fræðafólks frá öllum Norðurlöndunum og einstökum gögnum úr kennslustofum.

Fræðafólk frá Kennaradeild Háskólans á Akureyri tók virkan þátt og niðurstöðurnar varpa mikilvægu ljósi á gæði kennslu, stuðning við nemendur og inngildingu í norrænum skólum.

📌 Lesið meira og skoðið lokaskýrslu í hlekk í athugasemd.

Bland í poka - Málþing kennaradeildar Háskólans á AkureyriÁrlegt málþing kennaradeildar Háskólans á Akureyri hefur að þe...
04/02/2026

Bland í poka - Málþing kennaradeildar Háskólans á Akureyri
Árlegt málþing kennaradeildar Háskólans á Akureyri hefur að þessu sinni yfirskriftina Bland í poka. Málþingið er haldið í fjórtánda sinn og er dagskráin venju fremur fjölbreytt. Núverandi og fyrrverandi starfsfólk Kennaradeildar kemur saman til að heiðra leikskólakennara og starfsfólk leikskóla á þessum merkisdegi 6. febrúar og tilgangurinn að gefa ögn til baka til leikskólasamfélagsins.
Máþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Dagskráin fer fram í Facebook hópnum Leikur og leikskólastarf líkt og undanfarin ár og þar verða settir inn tenglar á upptökur með erindunum og tenglar verða opnar frá kl. 8.00-22.00 þennan dag. Takið daginn frá og njótið.

Og aðeins meira um læsi
29/01/2026

Og aðeins meira um læsi

Í umræðu um kennsluaðferðina Byrjendalæsi kemur hvað eftir annað fram sá misskilningur að börnum sé ekki kennd lestrartæknin, þ.e. að þekkja stafi og hljóð þeirra og æfa fimi í lestri, með nægilega markvissum hætti.

Rúnar Sigþórsson skrifar um læsi
27/01/2026

Rúnar Sigþórsson skrifar um læsi

Nýr mennta- og barnamálaráðherra fór mikinn í Kastljósi RÚV í 13. janúar, meðal annars um finnsku leiðina í lestrarkennslu.

Hér er innlegg í umræðuna um Byrjendalæsið.
27/01/2026

Hér er innlegg í umræðuna um Byrjendalæsið.

Það er ekkert sem bendir til þess að börn sem læra að lesa í Byrjendalæsisskólum standi ver að vígi í lestri en önnur börn eða að það orsaki fall í lesskilningi á unglingastigi.

Address

Norðurslóð 2
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3544608000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kennaradeild Háskólans á Akureyri posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share