26/09/2026
Ari Brynjólfsson (1926–2013) varð stúdent frá MA árið 1948. Hann var eðlisfræðingur og átti langan og fjölbreyttan vísindaferil, einkum á sviði kjarn- og geislaeðlisfræði og hagnýtingar geislunar. Áhugi hans á eðlisfræði og raungreinum kviknaði í MA og tengsl hans við Akureyri og skólann voru alla tíð sterk.
Færri vita að Ari var líka efnilegur frjálsíþróttamaður á skólaárunum í MA. Hann setti t.a.m. skólamet í 3000 metra hlaupi árið 1947 þegar hann hljóp vegalengdina á 11:17,0 mínútum. Tólf árum síðar voru bestu frjálsíþróttaafrek skólans rifjuð upp í skólablaðinu. Metið hans Ara stóð enn árið 1959. Næstbesti tíminn var nokkuð langt frá tímanum hans Ara eða 11:39,2 mínútur. Íslandsmetið í greininni sumarið 1947 átti Óskar Jónsson í ÍR. Metið var 8:52,4 mínútur. Til gamans má geta þess að Ari setur skólametið á þeim tíma sem gjarnan hefur verið vísað til sem íslenska vorsins í frjálsum íþróttum. Nú er spurning hvort metið hans Ara frá árinu 1947 standi óhaggað árið 2026.
Aravaka – minningarmálþing um eðlisfræðinginn Ara Brynjólfsson fer fram á morgun sunnudaginn 27. september í Menntaskólanum á Akureyri í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli hans. Málþingið er opið öllum áhugasömum. Nánari upplýsingar um dagskrá og tímasetningar má finna á heimasíðu skólans.