26/09/2024
Frá árinu 2021 hafa grunnskólarnir í Breiðholti innleitt verklag sem kennt er við CR - Collaborative response, frá Kanada. Hjá okkur hefur það gengið undir nöfnunum Gagnvirkt samstarf eða Lausnaleit, eftir því hvaða hluta þess við tölum um hverju sinni. Það hefur verið mér gefandi að fylgjast með stjórnendum, kennurum og öðru starfsfólki skólanna innleiða verklagið, hvernig þau læra á það og líka hvernig þau læra af því.
Á Menntakviku á morgun mun ég segja frá áfangamati á innleiðingunni þar sem litið er á þátt stjórnenda í innleiðingunni og hvort og hvernig verklagið m.a. eflir þá í að veita kennslufræðilega forystu.
Svo er líka margt góðra erinda á Menntakviku. Það er frítt inn, bæði á staðinn og í streymi á Zoom.
👉 Dagská menntakviku á morgun: https://menntakvika.hi.is/dagskramenntakviku2024/
👉 Lausnaleit í grunnskólum Breiðholts: "Meira en samtal yfir brauðristinni ..." https://virtual.oxfordabstracts.com/event/37215/submission/67
Opnunarmálstofa Menntakviku Fer fram fimmtudaginn 26. september kl 13:00- 14:30 í hátíðarsal aðalbyggingu Háskóla Íslands. Sjá dagskrá og streymi Dagskrá Menntakviku Málstofur Menntakviku fara fram fimmtudaginn 26. og föstudaginn 27. september 2024. Dagskrá Ágripabók 2024 Ágripabó...