RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri er sjálfstæð eining innan Háskólans á Akureyri (HA) sem stundar þjónusturannsóknir. Við notum bæði eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir og tökum að okkur verkefni á öllum stigum rannsókna, allt frá því að hanna þær frá grunni til þess að framkvæma afmarkaðan hluta svo sem gerð spurningalista, gagnaúrvinnslu eða skýrsluskrif. Einnig veitum við ráðgjöf um rannsóknir og stöndum fyrir námskeiðum fyrirlestrum og ráðstefnum. Starfsmenn okkar hafa fjölbreyttan bakgrunn svo sem landafræði, félagsfræði, sálfræði, menntunarvísindi, kynjafræði, stjórnmálafræði, þróunarfræði, ónæmisfræði, líftækni, matvælafræði, mannauðsfræði, bókasafns-og upplýsingafræði. fengist við rannsóknir sem varða: jafnlaunakannanir, jafnrétti, menntamál, ferðamál, byggðarannsóknir, rannsóknir á samhæfingu atvinnu og heimilislífs; ungmenni á norðurslóðum, samfélagsáhrif jarðganga og virkjana, netávana, loftslags- og umhverfismál, sauðfjárrækt, samgöngubætur, skólamál og þróunarmál.