Allt er gott 🤍 andleg einkaþjálfun – Íris Fönn
Ég heiti Íris Fönn og er andlegur einkaþjálfari, lauk því námi 2022, útskrifaðist sem ÍAK einkaþjálfari 2010 og er einnig hársnyrtimeistari og hef starfað við það í rúm 20 ár.
Ég er 4 barna móðir og á dásamlegan eiginmann sem hefur gengið í gegnum súrt og sætt með mér síðustu árin, hann er minn klettur og það er agljörlega ómetanlegt. Mig langar mjög mikið til að hjálpa þér að finna gleðina, hamingjuna, þakklætið, draumana þína, vera sterkari þú, hafa meira sjálfstraust, standa með þér, yfrigefa fortíðina, hugsa ekki um álit annara og umfram allt frelsið sem fylgir þessu öllu því það er dásamleg tilfinning að vera sterk andlega og líða vel.
Ástæðan fyrir að ég fór í andlega einkaþjálfun var minn eigin hugur, fólk var farið að taka of mikið pláss í mínum huga, ég hafði endalausar áhyggjur, vaknaði alla morgna með kvíðahnút í maganum, sagði ég eitthvað vitlaust núna eða gerði ég eitthvað rangt og svo framvegis þannig að líf mitt var farið að stjórnast út frá öðrðu fólki. Ég var alltaf að reyna að þóknast og hafa alla góða þar til einn daginn að ég g*t ekki meir og nennti þessu ekki lengur því þetta var að gjörsamlega að klára mig. Ég var ekki lengur að lifa MÍNU lífi, hver átti þá að lifa mínu lífi ef ég var ekki að því? Einnig var ég með mjög þungan bakpoka á bakinu fullan af neikvæðum tilfinningum sem ég hafði ekki unnið úr eftir erfitt samaband meðal annars og ég hlóð bara ofan í pokann meira og meira og beit svo bara á jaxlinn. Er það gott, nei alls ekki. Það leiddi til þess að ég var alltaf í þóknunar hlutverki og vonast til að öllum líki vel við mig, gera allt fyrir alla, lítið sjálfsmat, óörugg, meðvirk, brotin, alltaf að reyna að sanna mig, fékk ansi oft að heyra hvað ég væri óheppin og ég fór að trúa því. Ég átti mér enga drauma lengur því ég var að lifa fyrir aðra en mig, ég ofhugsaði allt og var meistari í að rakka sjálfa mig niður.
Í dag líður mér svo vel, þvílíkar breytingar sem urðu á mér og mínu lífi á rúmu ári er eiginlega ótrúlegt. Ég er frjáls og enginn að taka pláss í mínu höfði lengur, ég stend með sjálfri mér, mér er alveg sama hvað öðrum finnst um mig það er þeirra vandamál ekki mitt, ég vel fólkið í kringum mig og kýs að eyða ekki mínum tíma í þá sem draga mig niður, ég er mjög sjálfsörugg, á fullt, fullt af draumum og margir hafa nú þegar ræst. Ég var til dæmis svakalega flughrædd en í dag er ekki vottur af því. Ég er ótrulega heppin, ég tek áhættur og hætt að ofhugsa hlutina, ég er að lifa mínu lífi sem er dásamlegt því ég elska að vera ég og ég elska mig nákvæmlega eins og ég er. Ég er svo stolt af sjálfri mér því ég stend uppi sem sigurvegari með kreppta hnefa og hendur upp í loft og öskra sigur öskrið. Ef ég g*t allt þetta og miklu meira þá getur þú það líka 🤍
Langar þig að ná tökum á þinni líðan? Andleg einkaþjálfun er 12 mánaða þjálfun með alls konar skemmtileg verkefni, viðtöl og vikuskýrlsur. Jú, það má líkja þessu við líkamsrækt það tekur tíma fyrir líkamann að koma sér í form og við erum alls konar í laginu og það er eins með andlega þáttinn við erum á misjöfnum stað þar líka og þetta tekur allt tíma og er svo vel þess virði get ég sagt þér. Góðir hlutir gerast hægt en við viljum líka gera þetta að lífsstíl hvernig við hugsum. Langar þig að elska sjálfa/sjálfan þig meira? Hvernig heldur þú að heimurinn væri ef allir myndu elska sjálfa/sjálfan sig meira? Endilega heyrðu í mér ef þig langar að koma þér í þitt allra besta andlega form og líða vel, ég veit að ég get hjálpað þér. Ef þú vilt vita meira um andlega einkaþjálfun hjá mér sendu mér þá línu á [email protected]