26/09/2026
Það var mjög hátíðleg athöfn í gær þegar 19 rafvirkjar og fjórir rafeindavirkjar fengu afhent sveinsbréf í Hofi. Sannarlega glæsilegur hópur af efnilegu fólki sem á framtíðina fyrir sér. Við á rafdeild VMA erum eðlilega mjög stolt af okkar fólki og óskum því alls hins besta í störfum og námi í framtíðinni. Okkur þykir sérstaklega gaman að greina frá því að í gær fékk Ómar Magni Halldórsson afhent sveinsbréf, en hann er yngsti nemandi frá upphafi sem hefur fengið afhent sveinsbréf í rafvirkjun. Vel gert!