09/04/2026
🎧 Nýr þáttur af Forysta & samskipti er mættur í loftið og sá er svo sannarlega bæði skemmtilegur og innihaldsríkur!
🌟Að þessu sinni ræðir Sigurður Ragnarsson, forseti Viðskiptadeildar og stjórnenda- og forystuþjálfari, við Olgu Ýr Björgvinsdóttur, forstöðumann rannsónarstofa hjá líftæknifyrirtækinu Artic Therapeutics um leiðtogastíla, öflugt teymisstarf og… hvort gæðastjórnun geti verið sexý!
✨Olga Ýr fer meðal annars yfir rannsóknir, reynslu og bestu ráðin - með innblæstri frá Brené Brown og Simon Sinek
👇 Hlekkir á þáttinn (YouTube & Spotify) í athugasemdum!
06/03/2026
🌟 Skemmtileg saga mæðgna sem fóru saman í gegnum framhaldsnám í stjórnun við Viðskiptadeild! 🤩
🎓 Við tökum vel á móti nýjum stúdentum og erum með opið fyrir umsóknir á unak.is til 5. júní 🎓
Taktu stökkið, við hlökkum til að sjá þig í haust! 🥳
💕 Mæðgurnar Fríða Freydís og Ásta Birna brautskráðust saman úr stjórnun frá Háskólanum á Akureyri á Vetrarbrautskráningarhátíð háskólans sem var haldin í Hátíðarsal háskólans 14. febrúar.
🎓 Mæðgunum fannst námsfyrirkomulagið við HA frábært í grunnnáminu og því langaði þær báðar að skoða framhaldsnám við háskólann.
📚 „Námskeiðin voru áhugaverð og okkur þótti báðum einnig mikill kostur að námið væri byggt upp sem fjarnám samhliða vinnu,“ segir Fríða Freydís.
📊 „Námið verður skemmtilegra þegar maður upplifir strax notagildi þess,“ segir Ásta Birna.
👉 Nánari upplýsingar í frétt (hlekkur í athugasemd).
10/12/2025
Edda Björgvinsdóttir: Húmor er lífsins nauðsynlegur, líka á vinnustöðum - Fólk sem mengunarvaldar í vinnunni, ,,gleðibankinn“ okkar og freki kallinn… hvað finnst Eddu fyndið og hver eru hennar uppáhaldshlutverk?
🎧 Nýr þáttur af Forysta & samskipti er mættur í loftið og sá er svo sannarlega bæði skemmtilegur og innihaldsríkur!
✨ Að þessu sinni ræðir Sigurður Ragnarsson, forseti Viðskiptadeildar og stjórnenda- og forystuþjálfari, við einn allra ástsælasta gleðigjafa landsins: Eddu Björgvinsdóttur. Edda er ekki bara leikari, leikstjóri og skemmtikraftur – hún er einnig með meistaragráðu í menningarstjórnun og diplómu í jákvæðri sálfræði og sálgæslu. Hún veit því allt um samskipti, tilfinningar og húmor.
Í þættinum ræða þau m.a.:
▫️ Af hverju húmor skiptir sköpum á vinnustöðum
▫️ Hvernig húmor getur bætt samskipti, minnkað streitu og hjálpað okkur í krísu
▫️ „Mengunarvalda“ á vinnustöðum – eins og slúður og neikvæðni
▫️ Reglurnar sem Edda vill sjá á öllum vinnustöðum
▫️ „Gleðibankann“ og hvernig við getum safnað inn á hann daglega
▫️ Hvernig velja á rétta stjórnendur – og hvers vegna tilfinningagreind er lykillinn
▫️ „Freka kallinn“ (sem getur verið hvaða einstaklingur sem skortir tilfinningagreind – ekki bara karl!)
Að sjálfsögðu er líka farið yfir nokkrar af bestu perlum Eddu í gegnum tíðina: uppáhaldshlutverk, hvað henni finnst fyndið og hversu lík hún er Stellu í orlofi… og já, hún segir líka frá Felix og Klöru 😉
👇 Hlekkir á þáttinn (YouTube & Spotify) í athugasemdum!
17/11/2025
✨ Nýtt ár – ný tækifæri! ✨ Viðskiptadeild HA hefur opnað fyrir umsóknir í framhaldsnámi í stjórnun á vormisseri.
📅 Umsóknarfrestur: 1. desember
⚠️ Athugið: Ekki verður opið fyrir umsóknir í aðrar námsleiðir á vormisseri.
Framhaldsnám í stjórnun er fyrir þau sem vilja efla sig sem stjórnendur og leiðtogar – óháð bakgrunni. Sveigjanlegt 100% fjarnám sem hentar vel með vinnu og lífi.
Ef stjórnun, samskipti, forysta, gervigreind, nýsköpun eða verkefnastjórnun vekur áhuga þinn… þá gæti þetta verið næsta skrefið! 🚀
👉 Sótt er um í umsóknargátt HA
👇 Nánari upplýsingar í frétt í athugasemd
28/06/2025
Hvers vegna eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að iðka faglega forystu?
Nýr þáttur af hlaðvarpinu Forysta og samskipti er kominn í loftið en umsjónarmaður er Sigurður Ragnarsson forseti Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri (HA) og stjórnenda- og forystuþjálfari. Gestur Sigurðar í þættinum er er Haraldur Daði Ragnarsson, stofnandi og einn af eigendum markaðsstofunnar Manhattan Marketing og lektor við Háskólann á Bifröst, stjórnunarráðgjafi og einn fremsti sérfræðingur landsins í forystufræðum, stefnumótun, breytingastjórnun og í stjórnun viðskiptatengsla (CRM). Hann hefur kennt við nánast alla háskóla landsins, stjórnunar, forystu- og markaðsnámskeið, þar á meðal við Háskólann á Akureyri. Haraldur hefur einnig víðtæka reynslu úr atvinnulífinu.
Í þættinum er sérstaklega rætt um og áhersla á faglega eða árangursríka forystu og hvers vegna fleiri stjórnendur og leiðtogar eru ekki að nýta sér hana. Það er komið inná ótal þætti sem tengjast þessu eins og forystu í teymum og hvað einkennir afburðagott forystufólk. Haraldur fjallar einnig um viðhorfið ,,ég á þetta… ég má þetta” sem hann telur alltof algengt, og einnig að stór hluti stjórnenda á Íslandi geti gert mun betur til að vera starfi sínu vaxnir og sýni í verki alvöru umhyggju fyrir auðlindinni sem starfsfólkið er. Einnig deilir Haraldur með okkur og segir frá nokkrum stjórnunarbókum sem hann mælir sérstaklega með.
Síðan var ekki annað hægt en að koma aðeins inná fortíð okkar í útvarpinu þ.s. við vorum saman með morgunþátt, bæði á Bylgjunni og á FM957.
Hér er hægt að horfa og hlusta á þáttinn á YouTube
https://www.youtube.com/watch?v=VZGI-bxG_JI
Hér er hægt að hlusta á þáttinn á Spotify
https://open.spotify.com/episode/4hTcEjf787PmbQfhPAKs57
23/05/2025
Hvaða áskoranir standa stjórnendur frammi fyrir í fjarvinnuumhverfi?
Ólöf María Stefánsdóttir kynnir lokaverkefni sitt til MS gráðu í stjórnun
13/05/2025
Stjórnun í 100% fjarnámi
Kynntu þér framhaldsnám í stjórnun við Viðskiptadeild HA!
04/03/2025
Nýr þáttur af hlaðvarpinu Forysta og samskipti er kominn í loftið en umsjónarmaður er Sigurður Ragnarsson, forseti Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri (HA) og stjórnenda- og forystuþjálfari. Gestir Sigurðar í þættinum eru Dr. Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar HA, og Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri gervigreindar við HA og einn fremsti sérfræðingur landsins í gervigreind 👇
🎧 Forysta og samskipti: Hvað er gervigreind og hvers vegna þurfum við að tileinka okkur hana? - Gervigreindin mælir með að þú missir ekki af þessum þætti…
🗣 Nýr þáttur kominn í loftið! Gestir Sigga að þessu sinni eru: Dr. Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar HA, og Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri gervigreindar við HA
Nýr þáttur af hlaðvarpinu Forysta og samskipti er kominn í loftið en umsjónarmaður er Sigurður Ragnarsson, forseti Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri (HA) og stjórnenda- og forystuþjálfari. Gestir Sigurðar í þættinum eru Dr. Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar HA, og Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri gervigreindar við HA og einn fremsti sérfræðingur landsins í gervigreind.
Í þættinum er farið út um víðan völl gervigreindar en sérstakur fókus er á notkun hennar og hvernig hún getur nýst stjórnendum og forystufólki.
Komið er inn á þætti er varða mannleg samskipti, tilfinningagreind, siðferði og hvernig gervigreind getur hjálpað við að taka betri ákvarðanir. Einnig er innleiðing gervigreindar rædd og hvernig hún getur gagnast til að bæta samskipti á vinnustöðum. Komið er inn á alls konar pælingar, eins og stafræna föstu, hreinskilni gervigreindar, sem og hver framtíðarþróunin verður.
Ef þú hefur áhuga á gervigreind þá mælir gervigreindin með að þú missir ekki af þessum þætti!
Þú getur hlustað eða horft, sjá hlekki í athugasemd!