Ritver Menntaskólans á Akureyri

Ritver Menntaskólans á Akureyri Ritver Menntaskólans á Akureyri

02/02/2022

Heil og sæl, nú höldum við að bókunarkerfið sé komið í lag. Vonandi verðið þið dugleg að bóka tíma, hlökkum til að sjá ykkur í Ritverinu🙂

08/11/2021

Kæru nemendur,
Borið hefur á því að bókunarkerfið okkar í Ritverinu sé ekki alveg að virka og viljum því biðja ykkur að senda okkur skilaboð hér ef þið viljið fá tíma.
Líka hægt að kíkja til okkar á bókasafnið, þarf ekki alltaf að bóka tíma :)
Hlökkum til að sjá ykkur.
Guðný, Jónína & Linda

13/09/2021

Heil og sæl kæru nemendur,
Nú er starfsemi Ritversins komin á fullt aftur og þið getið bókað tíma hjá okkur á Facebook síðu versins. Endilega sendið okkur skilaboð ef bókunarhnappurinn virkar ekki, það gerist stundum.
Það þarf ekki alltaf að bóka, getið bara komið við á bókasafninu og fengið aðstoð hjá þeim sem er að vinna í verinu þann daginn. Mælum þó með að bóka ef mikilvægt er að fá aðstoð á ákveðnum tíma.

Hlökkum til að sjá ykkur.
Guðný, Jónína og Linda

21/03/2021

Heil og sæl
Á mánudaginn mun starfsemi Ritversins fara á fullt aftur og nú er hægt að bóka að nýju, sendið okkur endilega skilaboð ef bókunarhnappurinn virkar ekki – gerist stundum.
Það er alltaf hægt að kíkja við í Ritverinu á afgreiðslutíma og við hlökum til að sjá ykkur
Kærar kveðjur,
Brynjar, Guðný, Jóhann og Linda

AFGREIÐSLUTÍMI RITVERSINS:
Mánudaga:
Kl. 10:00 – 11:25 Jóhann (stærðfræði & eðlisfræði)
Kl. 12:40 – 13:40 Brynjar
Kl. 15:00 – 16:00 Guðný
Þriðjudaga:
Kl. 10:00 – 12:00 Linda
Miðvikudaga:
Kl. 12:20 – 13:45 Jóhann (stærðfræði & eðlisfræði)
Kl. 15:00 – 16:00 Guðný
Fimmtudaga:
Kl. 11:40 – 12:40 Brynjar
Föstudaga:
10:00 – 11:25 Jóhann (stærðfræði & eðlisfræði)

12/01/2021

Kæru nemendur.
Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir samstarfið á liðnu ári.
Ritverið tekur fagnandi á móti ykkur öllum á nýju ári og byrjar að aðstoða nemendur frá og með 19. janúar. Við erum sérstaklega spennt fyrir hönd allra þeirra nemenda sem eru skráðir í lokaverkefnisáfanga enda oft frábær verkefni og hugmyndir sem fæðast og verða að veruleika í þeim áfanga!

Opnir tímar, sem hægt er að bóka hér á FB síðu Ritversins, verða að sjálfsögðu á sínum stað á:
Þriðjudögum klukkan 10:30 - 12:00
Miðvikudögum klukkan 12:00 - 13:30
Fimmtudögum klukkan 12:30 - 14:00

22/11/2020

Sæl og blessuð.

Bókunarhnappurinn hefur því miður stundum ekki virkað. Ef þið lendið í vandræðum með að bóka tíma er líka alltaf hægt að senda Ritverinu skilaboð og biðja um tíma :)

18/11/2020

Kæru vinir.

Takk fyrir allar heimsóknirnar í Ritverið síðustu vikur, nánast allir tímar voru bókaðir. Ritverið mun halda áfram að aðstoða nemendur og geta þeir núna komið við í Ritverinu á bókasafninu án þess að eiga bókaðan tíma. Einnig verður áfram hægt að bóka tíma hér á FB síðu Ritversins og fá aðstoð á staðnum eða á zoom. Munum eftir grímum 😷 Ritverið er opið:
Mánudagar klukkan 10:00 – 11:30
Miðvikudagar klukkan 12:30 – 14:00
Fimmtudagar klukkan 14:00 – 15:30

Hlakka til að sjá ykkur og aðstoða við verkefni á lokametrunum :)

19/10/2020

Heil og sæl.

Ritverið mun halda áfram að aðstoða nemendur þrátt fyrir hertar sóttvarnarreglur. Nú er í boði að fá persónulega ráðgjöf bæði á staðnum á bókasafninu og með rafrænum hætti. Nemendur verða að eiga bókaðan tíma og bóka þeir tíma hér á síðunni. Hlakka til að sjá ykkur 😊

Munum eftir grímum, handþvotti og að spritta. Við gerum þetta saman 😷

07/10/2020

Kæru vinir

Þrátt fyrir hertar sóttvarnarreglur þá mun Ritverið halda áfram að aðstoða nemendur með ýmis verkefni. Meðan hertar reglur eru í gildi verður aðstoðin eingöngu með rafrænum hætti. Nú er hægt að fá persónulega ráðgjöf beint heim með því að nota zoom og þar er hægt að deila skjá og fara sameiginlega yfir verkefnin.

Þið getið ennþá bókað tíma hér á facebook síðu Ritversins. Ég mun senda ykkur zoom link þegar þið hafið bókað. Hlakka til að sjá ykkur með rafrænum hætti 😊

19/09/2020

Takk fyrir heimsóknirnar í Ritverið í vikunni. Ritverið vonar að aðstoðin gagnist ykkur sem allra best og óskar ykkur alls hins besta í komandi verkefnatíð 😊

Endilega látið ritversorðið berast, líkið við síðuna, deilið og haldið áfram að skrifa frábærar ritgerðir og verkefni!

Address

Akureyri

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ritver Menntaskólans á Akureyri posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share