Byggingadeild Verkmenntaskólans á Akureyri

Byggingadeild Verkmenntaskólans á Akureyri Fylgist hér með því sem gerist á Byggingadeild Verkmenntaskólans á Akureyri

Það er alltaf gaman að heyra sýn nemenda á námið, "þetta er fullkomin núvitund!"
04/02/2026

Það er alltaf gaman að heyra sýn nemenda á námið, "þetta er fullkomin núvitund!"



Kolbeinn

Magnaður hópurinn okkar í kvöldskólanum í húsasmíðinni. Nemendur byrjuðu námið í haust og eru nú að smíða þjónustuhús se...
04/02/2026

Magnaður hópurinn okkar í kvöldskólanum í húsasmíðinni. Nemendur byrjuðu námið í haust og eru nú að smíða þjónustuhús sem rýkur upp þessa dagana!



Þjónustuhús

Í dag fengum við skemmtilega heimsókn, okkur var færð gjöf frá Slippfélaginu, allskonar góss sem léttir okkur lífið á by...
04/02/2026

Í dag fengum við skemmtilega heimsókn, okkur var færð gjöf frá Slippfélaginu, allskonar góss sem léttir okkur lífið á byggingadeild og er í stöðugri notkun.

Það er gott að eiga góða að! Takk fyrir Slippfélagið!

https://www.slippfelagid.is/

Í gær kepptu nemendur VMA í Sturtuhausnum 2026 í Sjallanum. Anna Lovísa og Emilía Björt Hörpudóttir sigruðu í þetta skip...
23/01/2026

Í gær kepptu nemendur VMA í Sturtuhausnum 2026 í Sjallanum. Anna Lovísa og Emilía Björt Hörpudóttir sigruðu í þetta skiptið en Emilía er einmitt nemandi á lokaönn í húsasmiðnum.
Þessir núverandi og tilvonandi meistarar verða væntanlega fulltrúar VMA í söngkeppni framhaldsskólanna 2026.



Anna Lovísa og Emilía Björt Hörpudóttir sigruðu Sturtuhausinn 2026 í Sjallanum í gærkvöld. Þær fluttu lagið Something in the orange eftir Zack Bryan með miklum glæsibrag. Í öðru sæti var Ásta Ólöf sem tók lagið Einmanna eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson (ávaxtakarfan) Í þ...

Stefán og Rúnar, tveir öflugir nemendur af byggingadeild, en þar eru í dag yfir 120 nemendur að læra húsasmíði, múrsmíði...
23/01/2026

Stefán og Rúnar, tveir öflugir nemendur af byggingadeild, en þar eru í dag yfir 120 nemendur að læra húsasmíði, múrsmíði eða pípulagnir.



húsasmíði

Sumir dagar eru bara skemmtilegri en aðrir á byggingadeild! Við eigum svo sannarlega góða að sem sýna það hér í verki.  ...
05/12/2025

Sumir dagar eru bara skemmtilegri en aðrir á byggingadeild! Við eigum svo sannarlega góða að sem sýna það hér í verki.

# þór .þorsteins

Gjöf

Á dögunum bættist í myndarlegan hóp iðnaðarmanna á svæðinu. Byggingadeild VMA átti nokkra í þeim hóp sem voru sannarlega...
16/05/2025

Á dögunum bættist í myndarlegan hóp iðnaðarmanna á svæðinu. Byggingadeild VMA átti nokkra í þeim hóp sem voru sannarlega vel að skírteininu komin. Til hamingju með þetta öllsömul!



Það var ánægjuleg stund við afhendingu sveinsbréfa í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 10. maí sl. þegar yfir 60 nýsveinar fengu afhent sveinsbréf.

Við settum á okkur fasteignasalahattinn og skelltum í stutt vídjó sem sýnir flotta húsið sem magnaðir nemendur í húsasmí...
15/05/2025

Við settum á okkur fasteignasalahattinn og skelltum í stutt vídjó sem sýnir flotta húsið sem magnaðir nemendur í húsasmíði, pípulögnum og rafiðn eiga heiðurinn að.

Nánari upplýsingar um húsið er að finna á www.vma.is

https://youtu.be/QnMfxspGfvU

Vetur hvern smíða nemendur í byggingagreinum við VMA sumarhús sem svo selt er að vori. Þau fara að nálgast 30 að tölu sem er að finna víða um land og eiga up...

Magnað frístundahús til sölu! Enn eitt vorið hafa flottir nemendur smíðað frístundahús. Í þetta skiptið er það sama teik...
15/05/2025

Magnað frístundahús til sölu! Enn eitt vorið hafa flottir nemendur smíðað frístundahús. Í þetta skiptið er það sama teikning og undanfarin ár, 64 fermetra hús með 8 fermetra svefnlofti. Húsið er mjög langt komið, eftir er að setja gólfhita og flota, innihurðir fylgja óuppsettar, eftir er að klæða lagnakassanna og aðliggjandi útvegg á þeirri hlið. Flest annað er klárt.

Húsið verður ekki boðið út í þetta skiptið heldur verður það til sölu í sumar í gegnum ríkiskaup, nánari upplýsingar hér:

https://fasteignir.visir.is/property/719951
og hér:
https://www.vma.is/is/skolinn/frettir/fristundahus-vma-til-solu-1

Í gegnum árin hafa sölur húsanna aðstoðað byggingadeild við endurnýjun búnaðar og kunnum við því vel að meta myndarleg tilboð í þetta flotta hús.

Address

Hringteigur 2
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+3544640300

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Byggingadeild Verkmenntaskólans á Akureyri posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category