FVA - Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi

FVA - Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi FVA er stór og rótgróinn framhaldsskóli með fjölbreytt námsframboð og fjörugt félagslíf Við skólann starfa um 70 manns. Við skólann er öflug sérnámsstarfsbraut.

Fjölbrautaskóli Vesturlands er framhaldsskóli með um 500 nemendur, stofnaður 1977 og staðsettur við Vogabraut 5 á Akranesi. Bæði er hægt að læra til stúdentsprófs á bóknámsbrautum með mismunandi sérhæfingu og stunda iðnnám í húsasmíði, vélvirkjun, rafvirkjun og á sjúkraliðabraut. Einnig er hægt er að sækja um á félagsliðabraut og lotunám í málaraliðn. Skólinn er notalegur, með góðu bókasafni, þægilegri vinnuaðstöðu fyrir kennara og frábæru mötuneyti ásamt heimavist með 30 tveggja manna herbergjum. Skólameistari er Steinunn Inga Óttarsdóttir.

Ungmennaþing Vesturlands! Umsóknarfrestur til 21. september nk.
16/09/2026

Ungmennaþing Vesturlands! Umsóknarfrestur til 21. september nk.

Ungmennaþing Vesturlands verður haldið á Hótel Borgarnesi helgina 25.-27.september 2026. Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, Ungmennaráðs Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og er fjármagnað af Sóknaráætlun Vesturlands. Markmið með ....

Fréttabréfið Skruddan er komið út eins og alltaf á þriðjudögum. Þar er m.a. dagskrá heilsuvikunnar og sagt frá heimsókn ...
15/09/2026

Fréttabréfið Skruddan er komið út eins og alltaf á þriðjudögum. Þar er m.a. dagskrá heilsuvikunnar og sagt frá heimsókn Vigdísar forseta til Höllu forseta.

Svo spennandi!
08/09/2026

Svo spennandi!

Utís Online er menntaviðburður á neti fyrir skólafólk og kennara um land allt. Viðburðurinn skipulagður frá grunni fyrir net til að auka aðgengi skólafólks, að gera fyrirlestrana og umræður aðgengilegar fleirum og efla umræðu um skólamál og skólaþróun á Íslandi. Utis Onlin...

Skrá sig!
08/09/2026

Skrá sig!

08/09/2026

Næsta STEM Kveikja fjallar um:
SAMFÉLAGIÐ SEM AUÐLIND Í STEM KENNSLU 🌱

Í vefstofunni skoðum við hvernig fólk, þekking, fyrirtæki, stofnanir og staðir í nærumhverfinu geta stutt við STEM nám og kennslu.

Hvernig getum við tengt námið við raunveruleg viðfangsefni? Hvaða auðlindir leynast í samfélaginu í kringum okkur? Og hvernig getur samstarf skapað ný tækifæri fyrir nemendur án þess að öll ábyrgðin hvíli á kennaranum?

📅 8. september
⏰ 15:00 - 16:00
💻 Á Zoom
🔗 Skráning: https://us06web.zoom.us/meeting/register/W448EvirSsS2c53Drkxqyg

Vefstofan fyrir kennara og aðra sem koma að STEM menntun. Vefstofuröðin er hluti af evrópska verkefninu Project Stream It og er þátttaka ókeypis en skráning nauðsynleg.

Sól og Skrudda! Lífið er yndislegt!(slóð í frækilegt fréttabréf í fyrstu ummælum)
08/09/2026

Sól og Skrudda! Lífið er yndislegt!

(slóð í frækilegt fréttabréf í fyrstu ummælum)

Góð þátttaka var á kynningarfundi fyrir forráðafólk nýnema sem haldinn var í síðustu viku.Á fundinum fóru fulltrúar skól...
07/09/2026

Góð þátttaka var á kynningarfundi fyrir forráðafólk nýnema sem haldinn var í síðustu viku.

Á fundinum fóru fulltrúar skólans meðal annars yfir helstu áherslur í skólastarfinu, stuðningsúrræði fyrir nemendur, félagslíf nemenda, helstu skólareglur og fleira hagnýtt við upphaf skólagöngu.

Lögð var áhersla á mikilvægi góðs samstarfs milli heimilis og skóla og hvernig sameiginlegur stuðningur getur stuðlað að farsælli skólagöngu nemenda. Einnig gafst fólki kostur á að spyrja spurninga og ræða við starfsfólk skólans.

Við þökkum fyrir góða mætingu, áhuga og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á komandi skólaári.

Address

Akranes

Telephone

+3544332500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when FVA - Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to FVA - Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi:

Shortcuts

Share